blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 12

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 20. JANUAR 2007 blaóiö :: UTAN ÚR HEIMI ÍRAK Aðstoðarmaður al-Sadr gripinn Talsmenn Bandaríkjahers í Irak sögðu aö þeir hefðu handtekið háttsettan aðstoðarmann sjítaklerksins Muqtada al-Sadr i Bagdad í gær, en talið er að um sé að ræða fjölmiðlafulltrúa al-Sadr. Mehdi-her al-Sadr er talinn bera ábyrgð á fjölmörgum sprengjuárásum í (rak síðustu mánuði og ár. Röng aðferð Stefna stjórn- valda í meöferö viö áfengis- og vímuefnavanda er gagnrýnd og dregiö í efa aö trúfélög séu rétta úrræðið til að taka á vandanum. Forstööumaður Samhjálpar vísar gagnrýninni á bug og segir með- feröina ekki vera trúboð. Yfirlæknir á Vogi um meðferðarúrræði hins opinbera: Trú og lækningar fara ekki saman ■ Sjúkdómur en ekki synd ■ Forstöðumaður Samhjálpar undrast Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net „Það má ekki misskilja mig á þann hátt að ég sé að ráðast gegn trúfé- lögum. Þau hafa sinn tilgang og fagmenn í lækningum hafa sinn tilgang. Almennt er ég mótfallinn rví að trúin sé notuð til meðferðar- ækninga, alveg eins og ég er á móti )ví að trúfélögin myndu sinna til dæmis barnageðdeildinni,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi. Fjársvikamál stjórnenda Byrgisins kemur til kasta ríkissaksóknara og líklegt er talið að stjórnendur þess verði sóttir til saka fyrir undanskot á opinberu fé vegna einka- neyslu. Þar að auki hafa verið lagðar fram tvær kærur gegn Þetta eru svo miklar alhæfingar að mér blöskra slíkar rangfærslur. Ég er náttúrlega afskaplega undrandi á þessu, svo ekki sé fastara að orði kveðið," segir Heiðar. „Allt það sem Þórarinn sagði um kristileg meðferðarúrræði er rangt. Okkar meðferð snýst alls ekki um trúboð. Það kemur rækilega fram hjá okkur að við meðhöndlum vímuefnavand- ann ekki sem synd, þó svo að slíkt hafi hugsanlega verið gert í Byrginu. Það vita þeir sem vinna í meðferðar- geiranum og ég vísa því þess- ari gagnrýni alfarið á bug.“ Sjúkdómur ekki synd Valdimar L. Friðriksson, óháður þingmaður, telur óeðlilegt að vímuefnameð- ferð hér á landi sé í höndum trúfélaga. „Fólk sem hefur fyrrum forstöðumanni Byrgis- ins vegna kynferðisbrota gegn skjólstæðingum þess á meðan þeir voru þar í meðferð. Byrg- inu hefur verið lokað og leitað hefur verið til Samhjálpar um að taka við þeim skjólstæð- ingum sem í Byrginu voru. I Undrandi á umræðunni Heiðar Guðnason, forstöðu- maður Samhjálpar, vísar allri gagnrýni á bug og er þeirra skoðunar að trú og lækningar geti farið saman. Hann er ósáttur við ummæli Þórarins um Samhjálp sem ofsatrúarfélag. „Ég þekki ekki þessa ofsatrú sem verið er að tala um og verð því að vísa þessu til föðurhúsanna. enga faglega þekkingu og enga faglega menntun er fengið til að annast veikt fólk eða fólk með heilaskaða eftir áfengis- og vímuefna- vanda. Þetta er sjúkdómur en ekki synd líkt og með- ferðaráherslur trúfélaganna byggja á,“ segir Valdimar. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, tók í sama streng. „Hvers vegna eru þessir hlutir ekki skoðaðir ofan í kjölinn og settur tilsjónarmaður yfir þessari starfsemi með eðli- legum hætti? Þess í stað setur félagsmálaráðherra málefnið í hendur næsta trú- félags án nokkurrar umhugs- unar,“ segir Steingrímur. *► Þettaersjúk- | § dómur en ekki f S,.- finW synd HeiðarGuðnason, .A A forstöðumaður Samhjálpar Þetta ersjúk- dómur en ekki synd Valdimar L. Friöriksson, þingmaöur Faglega stefnu skortir Þórarinn leggur á það áherslu að farið verði vel yfir stefnu hins opinbera í meðferðarmálum í ljósi reynslunnar af málefnum Byrgis- ins. „Samkvæmt nútímaþekkingu og faglegu starfi er trúin ekki notuð til lækninga. Ég vil fyrst og fremst að menn dragi nú djúpt and- ann og myndi í kjölfarið faglega og heilladrjúga stefnu í meðferðar- málum, án þess að meiða nokkurn í leiðinni,“ segir Þórarinn. Aðspurður segist Heiðar ósam- mála gagnrýni á að fela trúfélögum þá ábyrgð að sinna meðferð við áfengis- og vímuefnavanda enda sé æðri máttur mikilvægur til að sjúklingar nái andlegri heilsu. „Minn æðri máttur er ekkert verri heldur en Þórarins eða nokkurs annars. Samhjálp eru eldri sam- tök en SÁÁ og því höfum við gríð- arlega reynslu í þessum efnum. Þar að auki byggjum við einnig á sporum AA-samtakanna líkt og gert er á Vogi,“ segir Heiðar. Hvorki náðist í Magnús Stef- ánsson félagsmálaráðherra né Dagnýju Jónsdóttur, formann félagsmálanefndar, við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.