blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 13

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 13
blaðið LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 13 Múlakaffi: Þorramatur sívinsæll „Þetta er stærsti dagur ársins, enda koma hingað að jafnaði um 3000 manns á þorranum. Þannig hefur það verið í 40 ár,“ segir Jón Örn, yfirkokkur á Múlakaffi, á bóndadag sem er fyrsti dagur þorra.„Við bjóðum upp á allan þorramat á hlaðborði í hádeg- inu og á kvöldin auk þess sém við erum með veisluþjónustu þannig að það er meira en nóg að gera. Til að anna eftirspurn- inni erum við til dæmis búnir að vera að vinna frá því í nótt.“ Það er því engin ástæða til að ætla að vinsældir þorramatarins fari dvínandi með árunum. Skráðir utan trúfélaga: Rúmlega sjö þúsund Þeir sem hafa skráð sig utan trúfélaga eru rúmlega sjö þúsund samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Islands og hefur þeim íjölgað jafnt og þétt. Þeir sem eru í óskráðum trúfélögum eða þeir sem upplýsingar vantar um eru nálægt sautján þúsundum. „Meirihlutinn er útlendingar, og af þeim eru langflestir Pólverjar, sem hafa ekki með markvissum hætti skráð sig í trúfélag. I þess- um hópi eru aðeins eitt til tvö hundruð Islendingar," segir Ólöf Garðarsdóttir hjá Hagstofimni. Fiskadauði: Drápust úr súrefnisskorti Mbl.is Niðurstöður rannsókna Hafrannsóknastofnunar á fiska- dauða í Grundarfirði nýlega benda til þess að súrefnisskorti í sjónum sé líklega um að kenna. Mikið magn síldar í firðinum orsakaði lágt súrefnisinnihald sjávar og olli sennilega því að þorskurinn í kvínni drapst. Hafrannsóknastofnun segir, að þetta sé þekkt fyrirbrigði, m.a. í norskum fjörðum þar sem vetursetustöðvar norsk- íslensku síldarinnar eru. Svíþjóð: Elgir valda usla á vegum Mbl.is Bílslysum sem rekja má til elga hefur fjölgað um 20% í Sví- þjóð á einu ári. og létust alls átta einstaklingar í slíkum slysum í fyrra. Ekki hefur fundist nein ein skýring á fjölguninni milli áranna, Á síðasta ári urðu 4.940 bílslys í Svíþjóð sem rekja má til elga sem er fjölgun um 848 slys milli ára. Að sögn talsmanns sænsku lögreglunnar stendur lög- reglan ráðþrota því elgum hefur ekki fjölgað í landinu. Verkstjórum meinað að ganga í Verkstjórafélag Akraness: Erfitt að höfða mál „Það er eins og við séum komin dálítið langt aftur í tímann þar sem það er svo gamalt baráttumál hjá laun- þegum að fá að vera í stéttarfélagi,“ segir Kristín Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri Verkstjórasambands Islands. Eins og fram kom í Blaðinu síðast- liðinn fimmtudag hafa yfirmenn á Grundartanga meinað verkstjórum að vera í Verkstjórafélagi Akraness. Verkstjórasamband Islands hefur gert athugasemdir við Norðurál og Járnblendifélag íslands vegna málsins. Engin svör hafa borist af Grundartanga. „Þetta er auðvitað dálítið snúið mál, enda er erfitt fyrir stjórnendur að standa í deilum við sína yfirmenn þar sem slíkt veldur trúnaðarbresti. Menn hika við að leggja starf sitt undir og því biðja þeir okkur um að fara mjúku leiðina í samningum, sem er eðlilegt," segir Kristín. Hún segir að Verkstjóra- sambandið myndi óhikað höfða mál á hendur fyrirtækjum í svona málum ef það væri hægt án þess að nöfn einstakra verkstjóra yrðu lögð fram. „Það er þröskuldur sem við höfum aldrei komist yfir. Með því að fara í mál við yfirstjórnendur sína eru menn að leggja starfið sitt undir og á meðan menn eru ekki tilbúnir til þess getum við lítið gert.“ Ragnar Hall lögmaður segir mál þar sem vinnuveitendur banna sínum undirmönnum að vera í stéttarfélagi eldd vera algeng. „Það ríkir félaga- frelsi í landinu og svona mál eru ekki algeng hér á landi.“ Nú fáanlegur í 2L umbúdum Toppur T2™ er frískandi vatnsdrykkur með hreinum ávaxtasafaog inniheldur aðeins þriðjung hitaeininga sambærilegra drykkja. apwductef 5X»&et£&6empaAY "Toppur T2" is a tradamark of Tha Coca-Cola Company. O 2006 Tha Coca-Cola Company. All rights rasarvad. Alvöru ávöxtur - Alvöru bragð

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.