blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 28

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 28
32 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 blaöið Er nógu mikill áhugi eða viður- kenningá þekkingariðnaði í íslensku þjóðfélagi hjá stjórnmálamönnum? „í stjórnmála- og þjóðfélagsum- ræðunni finnst mér mjög van- metin þau verðmæti sem búa í fólkinu sjálfu. I leiðara dagblaðs á dögunum var sagt að hér væru þrjár höfuðstoðir þjóðfélagsins: sjávar- útvegur, orka og fjármagn. Ekki var minnst á fólkið, menninguna og hugvitið. í heiminum í dag er ísland líklega þekktast fyrir Björk, Sigur Rós, Eið Smára og af bókum Arnaldar Indriðasonar í Þýska- landi. Nokkur öflugustu fyrirtæki landsins i dag, fyrir utan bankana, eru fyrirtæki sem menn trúðu ekki á fyrir nokkrum árum, til dæmis Marel, Össur, íslensk erfðagreining og Latibær. Fyrirtæki þar sem efnis- leg verðmæti voru engin þegar lagt var af stað. Engin fjárfesting í stein- steypu eða virkjunum heldur í hug- viti fólksins. Verðmæti hugans eru orðin útflutningsvara. Mér finnst það lýsa virðingarleysi þegar stjórn- málamenn tala ekki við þjóð sína um þau verðmæti sem búa í fólkinu sjálfu, í þjóðinni, í tungumálinu og menningunni. Banki er ekki peningakassi. Banki snýst um fólk og þekkingu. Orka hefur alltaf verið á íslandi. Af hverju er hún orðin verðmæt núna? Það er vegna þess að það er mikil þekking á bak við nýtingu hennar. Við erum svo lánsöm að búa við endurnýtanlega orku en þá verðum við líka að gæta þess að steypa ekki öllu á kaf í skyndigróða því þessi orka fer ekki frá okkur. Ef það þarf að vinna eitthvert verk erum við svo gjörn á að hugsa: ,Já, nú þarf að byggjá'. Aldrei virðist skorta pening í efnislegar framkvæmdir. Setja má spurning- armerki við framkvæmdir eins og göng á fáförnum slóðum á sama tíma og við verðum ítrekað sambandslaus við umheiminn ef einn sæstrengur verður óvirkur og annar bilar. Þegar slíkt gerist er ekki hægt að halda uppi alþjóð- legri bankaþjónustu, Marel getur ekki tengt sig inn á frystihús út um allan heim, Latibær getur ekki sent út sjónvarpsefni og íslensk útrás stöðvast." Skortur á framtíðarsýn Finnst þér stjórnmálamenn landsins vera á villigötum í þjóðfélagsumrœðu nni? „Af ágætri reynslu sem ég átti við þá þegar ég starfaði í opinberri þágu í tvö ár hjá Reykjavíkurborg á finnst mér þeir vel meinandi. g dáist að þeim fyrir að gefa sig í erfið stjórnmálastörf. Mér finnst þeir hins vegar oftar en ekki hugsa til skamms tíma fremur en til langs tíma. Þeir hugsa stundum frekar um að fylgja skoðanakönnunum en að leiða skoðanamyndun. Stundum finnst mér að það vanti fólk með framtíðarsýn í stjórnmálin. Ég hef afskaplega gaman af að fylgjast með fólki sem hefur sýn. Ég las til dæmis Draumaland Andra Snæs Magnasonar af áhuga. Ég var ekki sammála öllu sem þar stóð en mér finnst afskaplega gaman þegar menn líta upp úr daglega stritinu og velta því fyrir sér hvað verður eftir fimm ár eða tíu ár. Viljum við vera þekkt fyrir menningu okkar, listir og mannlíf eða viljum við einfalda allt og verða „álþjóðin"? Það er hollt fyrir okkur að horfa til framtíðar og það hvílir sú skylda á þeim stjórnmálamönnum sem hafa tekið að sér að vinna fyrir okkur að hafa sýn og standa og falla með henni. Þeir eiga ekki að vera í stjórnmálastarfi til að rýna í niðurstöðu nýjustu skoðanakönn- unarinnar og fylgja henni svo þeir eigi fyrir brauði á morgun." Ekki á framboðslista Þú varst í pólitísku starfi sem borgarstjóri í Reykjavík. Var það ekki stundum þreytandi og leiðinleg vinna? „Nei, ég hafði mjög gaman af því starfi. Sumir sem gegnt hafa því embætti hafa sagt að það sé skemmtilegasta starf sem hægt sé að sinna. Eg held að það sé margt til í því. Þegar ég hóf störf sem borg- arstjóri þekkti ég best rekstrarhlið starfsins, kunni að láta hluti ganga samkvæmt áætlun og átti ekki í neinum erfiðleikum með að um- „Viljum við vera þekkt fyrir menningu okkar, listir og mannlíf eða viljum við einfalda allt og verða „álþjóðin"? Það er holltfyrir okkur að horfa til framtíðar og það hvílir sú skylda á þeim stjórnmála- mönnum sem hafa tekið að sér að vinna fyrir okkur að hafa sýn og standa ogfalla með henni." gangast fólk. Ég þekkti minna til samspils hins tvískipta valds, ann- ars vegar embættismana og hins vegar stjórnmálamanna. Eg var ekki stjórnmálamaður og þegar ég var ráðinn missti ég út úr mér setninguna: „Ég verð aldrei emb- ættismaður". Með þvi móðgaði ég sennilega alla borgarstarfsmenn og hafði nóg að gera í tvö ár við að vinna mig út úr því. En ég fann snemma minn stíl og ég lít svo á að ég hafi staðið mig vel í starfi. Þegar leið á var ég þó búinn að ákveða með sjálfum mér að ég myndi ekki bjóða mig fram á fram- boðslista fyrir stjórnmálaflokk í borgarstjórnarkosningum." Afhverju ekki? „Eg taldi að það ætti betur við mig að vinna í sátt við ólíka flokka og strauma. Ég hef aldrei verið flokks- bundinn og sé mig ekki fyrir mér sem flokksbundinn stjórnmála- mann. Það eru margir betri í slíku en ég. Það getur vel verið að ég hefði verið tilbúinn að starfa undir einhverjum svipuðum formerkjum og þeim sem voru í upphafi þar sem ég var ópólitískt ráðinn borgar- stjóri. Ef sú staða hefði verið uppi í aðdraganda kosninga þá hefði ég kannski gefið kost á mér. En það kom ekki til þess að ég þyrfti að taka slíka ákvörðun." Þú sagðir af þér embætti borgar- stjóra vegna ólgu í kjölfar olíumáls- ins svonefnda. Mörgum fannst að það vœri ekki alveg sanngjarnt. Hvernig horfir málið viðþér núna? „Ég er mjög sáttur við það hvernig líf mitt hefur þróast frá þessum atburðum. Ég erfi það liðna ekki við nokkurn mann. Ég starfaði í rúm fjögur ár hjá Olíufélaginu og ég held að allir viti að ég bar ekki ábyrgð á rekstri olíufélaga á íslandi á síðustu öld." Fannst þér þú ekki geta gert neitt annað en segja afþér? „Ég átti ýmsa valkosti en þetta var ákvörðun mín og minna nánustu og ég varð strax sáttur við hana." Hver er skoðun þín á olíumálinu eins og staðan er í dag? „Ég ætla ekki að tjá mig um það, það eru nógu margir til þess." Að sækja sér viðmót Þeir starfsmenn þínir sem ég þekki segja þig hafa mjög jákvœtt hugarfar. Hefur það alltaf verið þér eðlislægt? „Ég er glaðsinna maður og á auð- velt með að hlæja. Get þó verið fljótur upp en er snöggur niður aftur. Er ekki langrækinn. Ég hef átt mína dökku daga eins og allir. Sá maður er mjög kjarkaður sem heldur þvi fram að hann hafi aldrei átt sinn „föstudaginn 13“. Ég er samt örugglega heppnari en margir í því sambandi. Ég hef trú á því að maður geti breytt umhverfi sínu á jákvæðan hátt. Það er alþekkt niðurstaða í viðmótskönnunum varðandi hulduheimsóknir á vinnustaði að sá sem kemur inn með jákvæðu viðmóti fær betri þjónustu. Sá sem kemur inn með neikvætt viðmót og kvartar eða er með innibyrgða reiði hann fær líka neikvæðari svörun. Ég held að maður sæki sér stundum það viðmót sem maður hefur beðið um sjálfur og á skilið. Það skiptir líka miklu máli að hafa hlutverk í lífinu. Hugarfar fólks verður svo miklu jákvæðara ef það hefur hlutverk. Það er þekkt að hægt er að hafa áhrif á líkamlega vellíðan með hugarfarinu. Jákvætt hugarfar er því eins og lyfjagjöf. Þegar ég var borgarstjóri leitaði til min fólk sem hafði starfað undir merkjum Hugarafls. Þetta var hópur sem fylgdi þeirri hugmynda- fræði að fólk sem glímdi við andleg veikindi gæti sjálft haft nokkur áhrif á bata sinn. Þetta fólk var ekki að biðja mig um neitt heldur var að segja mér frá starfi sínu. í framhaldi af því kallaði ég saman hóp fólks sem vinnur að því að koma af stað starfsendurhæf- ingu fyrir einstaklinga sem glíma við andlega erfiðleika. Það setur á að heita Hlutverkasetur. Atvinnu- lífið vantar vinnandi hendur og það er nóg af vinnufúsu fólki sem þarf að fá hvatningu og hlutverk til að komast út í atvinnulífið aftur." kolbrun@bladid.net ,Ég erfi það liðtia ekki við nokkurn mann. Ég starfaði í rúmfjögtir ár hjá Olíufélaginu og ég held að allir viti að ég har ekki ábyrgð á rekstri olíufé laga á Islandi á síðustu öld."

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.