blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 36

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 36
40 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 blaðið Oddný Sturludóttir tekur sæti í borgarstjórn BlaÖiÖ/Eyþór Oddný Sturludóttir tekur við sæti Stefáns Jóns Hafstein sem borgar- fulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur þann í. febrúar næstkomandi. Oddný fór ekki þessa klassísku leið í stjórn- málum, í gegnum ungliðahreyfingu heldur kom inn í borgarmálin á síð- asta ári með reynslu af ritstörfum og tónlist. Sjálf segist hún hafa orðið geysilega pólitísk þegar hún eign- aðist börnin sín tvö. „Ég vildi hafa áhrif á hvernig borg börnin mín æl- ust upp í og sveigja samfélagið að þörfum kvenna og barnafólks. Þetta er mjög misjafnt, sumir verða minna pólitískir við það að eignast börn og stjórnmálin verða innantómt arga- þras. Hjá mér var þetta öfugt en auðvitað hef ég verið pólitísk frá upp- hafi vega annars væri ég að fást við eitthvað annað.“ Fjölmenningin er frábær Oddný ólst upp í Árbænum til sex- tán ára aldurs og segist hafa verið mjög klassísk úthverfamær. „Þegar ég flutti þaðan þá stefndi ég á 101 Reykjavík en reyndar með viðkomu í nokkrum öðrum hverfum. Ég hafði alltaf horft með mikilli glýju á 101 þegar ég var að alast upp og það er fyndið að rifja upp þá óttablöndnu virðingu í dag. Um leið og færi gafst flutti ég á Laugaveginn þar sem há- vaðinn var sem tónlist í eyrum mér, enda einungis tvítug. Það er óhætt að segja að ég hafi nýtt mér allt sem miðborgin hafði upp á að bjóða á þeim tíma, bæði stemningu, tónlistar, mat og drykk. Þetta voru ljúfir tímar og ennþá finnst mér miðborgin ofboðslega skemmtileg þó ég sé ekki eins dugleg að dansa á nóttunni. Ég bý ennþá í 101 og hef búið hér í tíu ár með einhverjum hléum erlendis en auðvitað kem ég auga á gallana líka. Eitt hefur þó breyst og það er fjöldi útlendinga. Fjölmenningin blómstrar í miðbænum og þó henni fylgi vissulega mörg viðfangsefni fyrir sveitarfélögin er hún á margan hátt heillandi og gerir gott hverfi betra.“ Séríslenskur kraftur Oddný segir stærsta ókost Reykjavíkurveraofmiklabílaumferð. „Ef við hefðum ekki sjálfvirk hreins- unartæki í sunnlenska rokinu og rigningunni þá væri ekki líft hér fyrir svifryksmengun. Ég reyni að leggja mitt af mörkum með því að labba og hjóla. Ég er þó enginn Það er sorglegt að sjá hve þreytt nútímakonan er og það sem eitt sinn var saumaklúbbur hefur í mörgum tilfellum breyst í áfallahjálp. Konur reyna að standa sig t vinnunni og í barnauppeldinu og eru dauðþreyttar. íþróttaálfur, ég bý og starfa í sama póstnúmeri og það eru heilmikil lífsgæði fólgin í því að þurfa ekki að byrja og enda daginn í bíl. Að öðru leyti er Reykjavík náttúrlega frábær borg. Ég hef búið í tveimur öðrum borgum og það er sjaldgæfur kraftur í Reykvíkingum, sérstöðu okkar, fámenninu, sköpunargleðinni, barnaláninu og vinnugleðinni," segir Oddný og bætir við að miðborgin hafi tekið stórt stökk fram á við síðustu ár en það hafi líka orðið hljóðlát bylting í hverfunum. „Samfylkingin leggur mikla áherslu á að byggja upp sterk hverfi og það er stefna sem er mér mjög að skapi. Að mínu mati eru þjónustumiðstöðvarnar sex í hverfunum algjör bylting. Eftir því sem ég kynnist þeim betur því heill- aðri verð ég. Þjónustumiðstöðvarnar eru blómin í vasa hvers hverfis og ef þær fá að vaxa og dafna í takt við þarfir íbúanna geta þau sífellt bætt á sig fleiri spennandi verkefnum. Það sem einu sinni var sótt í eitt grátt hús í miðbænum er núna sótt á sex mismunandi staði, víðs vegar um borgina. Þekkingin leynist víða og kraftana á að nýta heima í héraði. Þannig býr hvert hverfi sér til eigið samfélag og grasrótin á greiðari leið að stjórnsýslunni." Eins og ný tengdafjölskylda Oddný viðurkennir að góður ár- angur hennar í prófkjöri í fyrra hafi komið henni á óvart. „Á vissan hátt leið mér skringilega að hafa fengið allt „upp í hendurnar" en það var fljótt að rjátlast af mér. Að koma inn í stjórnmálaflokk er svolítið eins og að koma inn í nýja tengda- fjölskyldu, þar er mikið af nýjum andlitum, vinnulag og stemning sem myndast hefur um eitthvert skeið. Það besta við Samfylking- una er hvað flokkurinn sjálfur er ungur þór rætur hans séu gamlar. Hann hentar fólki eins og mér vel, sem er ungt í pólitík bæði í árum og starfsaldri, því innviðirnir eru ekki greyptir í eldgamalt form og plássið er þvi nóg fyrir nýtt blóð. það er nóg pláss fyrir ungt og nýtt fólk. Ég gæti ekki fyrir mitt litla líf starfað í stjórnmálaflokki sem væri rígbundinn af hefðum. Ég hafði raunar þá mynd af öllum flokkum og gat ekki ímyndað mér að það væri gefandi að taka þátt í starfi stjórnmálaflokks, leiðinlegir kvöldfundir með kverúlöntum sem 30% afsláttur af rúmum Baðsloppar 20% afsláttur Handklæði 30% afsláttur Rúmteppasett 20-40% afsláttur Sængurfatnaður 20% afsláttur Utsala 20-50% afsláttur C rúmco rafstillanleg og hefðbundin. Nýtt kortatímabil Langholtsvegi 111,104 Rvk. Sími 568 7900 Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-16

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.