blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 bla6ið VIÐSKIPTI Hagnaðurinn fjórfaldast Hagnaður Nýherja á siðasta ári var fjórfalt meiri en árið áður. Félagið hagnaðist um rúmar 300 milljónir króna 2006 en 76 millj- ónir árið 2005. VELFERÐ Stofna öflugan sjóð Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, og kona hans, Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt, kynna í dag stofnun nýs mannúðarsjóðs sem styrkir velferðarverkefni heima og erlendis. Sjóðurinn er sagður sá öflugasti á sínu sviði á (slandi. STJÓRNMÁL Þingmenn fá helgarfrí Þingfundi var slitið klukkan fimm síðdegis í gær en fram að þessu höfðu ailir þingfundir vikunnar staðið til miðnættis eða lengur vegna umræöna um RÚV. Ein ástæða þess að þingfundi lauk snemma ku vera sú að flokks- ráðsfundur Vinstri grænna hófst klukkan fimm í gær og stendur þar til síðdegis í dag. Næsti þingfundur verður í næstu viku. Taívan: Henti skó í ræðumann Slagsmál brutust út í þingsal taívanska þingsins eftir að stjórn- arþingmaður henti öðrum skó sínum í ræðumann á síðasta degi vetrarþings í gær. 1 kjölfar kastsins var skónum hent aftur í átt að eig- andanum og fóru þingmenn þá að ýta frá sér og hrinda hver öðrum. Átökin brutust út eftir að deilt hafði verið um nefndaskipan í kosninganefnd þingsins. Fréttir af slagsmálum og ryskingum í taívanska þinginu berast nokkuð reglulega. alla daga Auglýsingasíminn er 510 3744 JT5AU VtUWSCðQN SÓFAR - SÓFASETT - HORMSÓFAR Afar vönduð ítölsk sófasett með leðri eða slitsterku áklæði Verð m/áklæði frá kr. 169.000.- Verð m/leðri frá kr. 229.000.- Vandaður slökunarstóll með skemli og sterku áklæði eða leðri Margir l'rtir Verð m/áklæði kr. 39.900.- Verð m/leðri kr. 59.900.- Opið: Virkadaga 10-18 Laugardaga 11-16 Sunnudaga 13-16 www.valhusgogn.is Röltu um verslunina okkar I rólegheitum á netinu meö nýja 360* sýningarkerfinu okkar Þetta veröur þú aö prófal vsqogn Ármúla 8 - 108 Reykjavík Simi 581-2275 ■ 568-5375 Enn greiður aðgangur Herinn kveður. Mynd/ÞÖK Leynilegu viðaukarnir við varnarsamninginn: Slá við því sem áður hefur komið fram ■ Yfirtaka á flugstjórn ■ í fullu gildi enn ■ Skýrt brot á stjórnarskrá Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Mér finnst auðvitað margt merkilegt hafa komið fram á liðnu ári um ýmis- legt það sem borgarar landsins fengu enga vitneskju um og var á seyði. En ég sé ekki betur en að þessar seinustu upplýsingar slái við þeim sem áður voru komnar.“ Þetta segir Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra, um innihaldviðaukannaviðvarnarsamn- inginn sem Valgerður Sverrisdóttir ut- anríkisráðherra hefur létt leynd af. „Þarna eru mörg ákvæði sem eru mjög gagnrýnisverð og umdeilanleg, sérstaklega það að Bandaríkjamenn skuli hafa heimild til að yfirtaka alla flugstjórn á Keflavíkurflugvelli hve- nær sem þeir álíta að þess sé þörf, jafn- vel þótt þeir séu farnir,“ segir Ragnar. Hann segir ákvæðið um að þeim beri engin skylda til að bæta það umhverf- istjón sem þeir hafa valdið til dæmis skýra hvers vegna þeim sem reynt hafi að sækja rétt sinn, til dæmis bændum á Langanesi, hafi lítt orðið ágengt. „Það var algjörlega farið á bak við Alþingi á sínum tíma hvað þetta varðar,“ rifjar Ragnar upp. „Þann 5. maí 1951 var herverndarsamningur- inn svokallaði gerður án samþykkis Alþingis sem ekki var kallað saman. Síðan kom herinn tveimur dögum seinna. Þetta var skýrt brot á stjórnar- skránni. Þeir afsökuðu sig með því að herverndarsamningurinn var lagður fyrir Alþingi um haustið og hann samþykktur þar. En svo kemur bara á daginn núna að daginn eftir komu hersins voru gerðir margir leynilegir viðaukar við samninginn sem inni- halda efnisatriði sem engin heimild var til að samþykkja í sjálfum her- verndarsamningnum eða lögunum sem sett voru. Auðvitað hefði Alþingi átt að fjalla um það líka,“ leggur Ragnar áherslu á. Hann bendir á að þar sem her- verndarsamningurinn sé enn í fullu gildi séu viðaukarnir það þar af leiðandi líka. „Þetta er alls ekki mál sem horfir fyrst og fremst til fortíðar. Þetta varðar nútíðina og fortíðina og er mál sem á að skoða rækilega á komandi vikum og mánuðum. Þetta hlýtur að verða mikið rætt á Alþingi," segir Ragnar sem lýkur lofsorði á ut- anríkisráðherra fyrir að hafa aflétt leyndinni. „Þetta var nauðsynlegt verk sem hefði þurft að gera miklu fyrr.“ Eftirsóttur páfagaukur: Fleiri vilja Tívolígaukinn Páfagaukurinn sem leitaði skjóls á veitingastaðnum Tívolí síðastlið- inn miðvikudag er með endemum vinsæll enda fallegur fugl þar á ferð. Nafn páfagauksins er enn ekki vitað en hann tyllti sér á öxl viðskipta- vinar sem var á leið í hádegismat. Starfsmenn staðarins tóku hann í fóstur og þar dvaldi hann í góðu yf- irlæti þar til í fyrradag. Þá gáfu tvær konur sig fram við starfsmenn veit- ingastaðarins og kváðust þær báða vera eigendur páfagauksins, en ekki er enn vitað hvort réttur eigandi fékk fuglinn í sínar hendur. 1 gær hringdu svo fjórir í veit- ingastaðinn og sögðust vera til- búnir til að skjóta skjólshúsi yfir páfagaukinn ef eigandi hans gæfi sig ekki fram. Það er því öruggt að það verður ekki smjörsteiktur páfa- gaukur á matseðli veitingastaðarins á næstunni. Vinsaell páfagaukur Margir vilja hafa hendurí fjöðrum gauksa enda með eindæmum litskrúðugur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.