blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 34

blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 34
30 LAUGARDAGUR 20 AR 2007 tiska Stórar og litlar Það gildir engin meðalmennska þegar kemur að töskuvali þetta tískutímabilið og annaðhvort skulu töskur vera pínupons eða risastórar. Nú þegar nauðsynjar eins og símar verða sífellt minni og minni eru handtöskurnar líka í míníatúr. Það þykir heldur ekkert áhugavert að spranga um með tösku sem rúmar hálfa bú- slóð og að hægt sé að skríða ofan í hana þegar þreytan tekur völdin. blaðið 5. áratugurinn Áhrifa 5. áratugarins gætir í vortískunni og pinup-stúlkulúk- kið er við völd. Lágskornar bikinibuxur með háu mitti og svífandi kjólar, fellingar í efni, stórar ermar og aðsniðin pils sem undirstrika mjaðmirnar eru nú við völd og kvenleikinn fær að njóta sín með vorinu sem enn virðist viðs fjarri. tiska@bladid.net Hönnunarfyrirtækið Elm Föt hönnuð af konum fyrir konur Verslunin Elm er staðsett á Laugaveginum og fötin í versluninni þykja bæði falleg og vönduð en þau eru hönnuð af þremur íslenskum vinkonum. Það sem fáir vita er að verslunin er einungis toppurinn á Elm-veldinu og fatnaður undir merkjum Elm er seldur í yfir 130 verslunum um heim allan. Fyrir- tækið hefur stækkað mjög hratt og til að mynda hefur framleiðsl- an aukist um 50 -60% árlega á und- anförnum árum. Erna Steina, Lísbet og Matthildur stofnuðu Elm fyrir tæpum átta árum Fatnaður þeirra ernú seldurút um allan heim íyfir 130 verslunum. Stórhuga í upphafi Vinkonurnar á bak við Elm-hönn- unarfyrirtækið eru þær Erna Steina Guðmundsdóttir, Lísbet Sveinsdótt- ir og Matthildur Halldórsdóttir og það eru fyrstu stafirnir í nöfnum þeirra sem mynda nafnið á fyrirtæk- inu. „Við vorum stórhuga í upphafi og hugmyndir okkar hafa gengið eftir þannig að ég er kannski ekkert mjög hissa hversu vel hefur gengið,“ segir Erna Steina þegar hún er spurð út í velgengni fyrirtækisins. Fyrirtækið var stofnað árið 1999 eftir að hugmyndin kviknaði á eft- irmiðdagsspjalli þeirra vinkvenna einn laugardag í Reykjavík. „Við fengum þá hugmynd að hanna föt úr alpacaull og láta trarútsaCal Úlpur á 4.500/voru á 8.900 Peysur/Toppar/Bolir á 30-70% afslætti Ódýra sláin 1.200/ 2000/ 3000 Bútasaumsefni í úrvali á 600 kr/m ‘Diza Laugavegi 44 . S: 561-4000 • www.diza.is framleiða fötin í Perú. Matthildur hafði búið lengi í Perú og þar kom tengingin við efniviðinn og fram- leiðsluna. Við opnuðum verslunina á Laugaveginum mjög fljótlega en það var alltaf hugmyndin að fara í útrás. í fyrstu einblíndum við á Bandaríkjamarkað, fengum okkur umboðsmann og héldum tískusýn- ingu í New York. Það má því segja að við höfum kastað okkur beint út í djúpu laugina,“ segir Erna Steina og bætir við að þær hlæi stundum að því í dag hversu fljótt hlutirnir gengu fyrir sig í upphafi. Fyrirtæk- ið hefur sannarlega vaxið hratt og nú selja þær föt í 130 verslanir um heim allan og nýjustu flaggskipin þar sem Elm-merkið kemur við sögu eru Harvey Nichols, Selfridges og Libertys vöruhúsin i London og Takashimaya vöruhúsið í New York Tímalaus föt og Qórar fatalínur á ári Fyrstu fjögur árin segir Erna að þær hafi einbeitt sér að því að vera prjónafyrirtæki en síðan þegar fyrir- tækið fór að stækka og eftirspurnin varð meiri hafi þær ákveðið að færa út kvíarnar. I dag senda þær frá sér fullkomnar tískulínur þar sem þær blanda saman prjóni og saumuðum fötum auk þess sem þær framleiða töskur og belti úr leðri. Allar prótótýpur og hönnun fer fram á Islandi en framleiðslan fer fram í Perú. Fötin frá Elm eru tímalaus og bera með sér einkennandi og fágað- an stíl. „Við hönnum fötin í samein- ingu og það er okkar styrkur hversu ólíkan bakgrunn við höfum, ég er textílhönnuður og Lísbet myndlist- arkona og Matthildur býr í Perú og þekkir framleiðsluferlið mjög vel. Við fylgjumst að sjálfsögðu með því sem er að gerast í heimi tískunnar hverju sinni en bindum okkur ekki við ströngustu tískukröfur og vilj- um skapa okkar eigin stíl. Við leggj- um mikið upp úr gæðaefnum og ein- kunnarorð okkar eru föt hönnuð af konum fyrir konur.” I TSALAX I FULLIJM (ÍAMÍI ALLT Al> 60% AFSLÁTTUR BIRNA Skólavörðustígur 2. Sími: 445-2020 www.birna.net r tm r m n i i i MK m Ar B 1 J im, Æ Á hverju ári senda þær frá sér fjór- ar fatalínur sem þykir mjög mikið innan tískuheimsins. „Það hafa ein- faldlega komið þær kröfur frá mark- aðinum að gera fleiri línur,“ segir Erna um ástæðu þessa. Línurnar eru haust- og vetrarlína, sérstök holiday-lína sem kemur í verslanir rétt fyrir jól, vor- lína og síðasta línan er síð- sumarslína. „Hönnunarferlið er farið að ná saman þannig að um leið og ein lína er búin förum við að vinna að næstu. Nú er- um við að leggja lokahönd á vetrarlínuna 2007/2008 og í lok mánaðarins förum við til Kaupmannahafnar, New York, Los Angeles og París að kynna hana,“ segir Erna og játar því að það sé mjög mikil vinna sem fylgi þessu öllu saman en hún sé að sama skapi mjög skemmtileg og sérstak- lega gaman að sjá þegar allt kemur saman að lokum og fötin fái góðar viðtökur. I Föt úr vor- og sumarlínu Elm 2007 Elm hefuralltaf lagt áherslu á að leggja áherslu á fallegt markaðs- efni og Ari Magg hefur tekið tiskumyndirnar fyrir þær frá upphafi. Elísabet Davíðs- dóttir fyrirsæta er orðin að andliti fyrirtækisins en hún hefur setið fyrir á tískumynd- um fyrir sfðustu 3 línur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.