blaðið - 20.01.2007, Blaðsíða 8
■1
8
LAUGARDAGUR 20. JANUAR 2007
blaöió
UTAN ÚR HEIMI
Tamíl-tígrar hörfa
Stjórnarherinn á Srí Lanka náði bænum Vakarai, einu af höf-
uðvígjum uppreisnarmanna Tamíl-tígra í austurhluta landsins,
á sitt vald á miðvikudaginn. Tæplega fjögur hundruð létust í
átökunum og þúsundir óbreyttra Tamíla eru á flótta frá bænum
sem hefur verið vettvangur átaka um margra vikna skeið.
Keyrt á fleiri elgi
Fjöldi árekstra í umferðinni þar sem keyrt var á elgi jókst stórlega
í Svíþjóð á síðasta ári. Tölur sýna að slys þar sem eigir komu við
sögu voru 4.957 talsins í fyrra sem er aukning um tuttugu pró-
sent milli ára. Átta létust í umferðinni í Svíþjóð í fyrra af völdum
áreksturs við villt dýr og komu elgir við sögu í öllum þeim tilfellum.
Chavez einráður í átján mánuði
Þjóðþingið í Venesúela hefur samþykkt að Hugo Cha-
vez, forseti landsins, fái leyfi til að sniöganga þingið
og stjórna landinu með tilskipunum næsta eina og
hálfa árið. Þetta er gert til að hraða þeim breytingum
sem fyrirhugaðar eru í landinu í anda sósíalisma.
Meiri verðlækkun á
Þýskaland:
Barist um
útsölunni
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
blaðið ms
tölvuleik
Þrír voru fluttir á sjúkrahús eft-
ir að slagsmál brutust út í verslun
í Köln í Þýskalandi vegna tölvu-
leiks.Verslunin
bauð nýja
World of
Warcraft-leik-
inn til sölu
á sérstöku
tilboðsverði
og brutust
slagsmálin
út þegar
ljóst var að
ekki voru til nægilega margir
leikir fýrir allan þann fjölda sem
sóttist eftir eintaki. Lögregla
var kölluð á staðinn, en rúður
brotnuðu og urðu talsverðar
skemmdir á innanstokksmunum.
Bílasamningur // Bílalán // Einkaleiga
LYSING.IS // 540 1500
; Þarftu betri bíl?
Þarftu stærri, nýrri, lengri eða einfaldlega betri bil?
Hjá Lýsingu bjóðum við þér sniðua lausn til þess að eignast draumaþílinn.
Þú getur nálgast bllafjármögnun Lýsingar hjá bilaumboðum, bílasölum og ráðgjöfum okkar.
> -ieGLUÍ>
Leit að fíkniefnum Björn Bjarnason dómsmálaráöherra segir ómögulegt
aö áætla hversu mikið magn fíkniefna sé í umferð á hverjum tíma. Hann
segir ósamræmda skráningu lögregluembætta koma í veg fyrir vitneskju
um götuverðmæti ólöglegra fíkniefna hér á landi. Mynd/iúimSigurjónsson
Fíkniefnamarkaðurinn á íslandi:
Lítil yfirsýn
ráðuneytis
■ Þingmaður hissa á upplýsingaleysi
■ Ósamræmd skráning lögreglu
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
hefur ekki vitneskju um verðmæti
ólöglegra fíkniefna á f slandi síðustu
tuttugu ár, enda er skráning lögregl-
unnar á svonefndu götuverði fíkni-
efna ekki samræmd á landsvísu og
upplýsingar um götuverðið því ekki
til. Ómögulegt er að áætla hversu
mikið magn fíkniefna er í umferð á
hverjum tíma,“ segir í svari Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra á
Alþingi við fyrirspurn Jóhönnu Sig-
urðardóttur, þingmanns Samfylk-
ingarinnar, um verðmæti og magn
ólöglegra fíkniefna hér á landi. í
svari ráðherra kom jafnframt fram
að lauslega væri hægt að áætla
magnið hverju sinni út frá þeirri
reglu að lögreglan nái að leggja hald
á fimm til tíu prósent af því magni
sem í umferð er.
Hissa á slakri yfirsýn
Björgvin G. Sigurðsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, er hissa
á svörum ráðherra og þeirri stað-
reynd að ráðuneytið sé ekki með
puttann á púlsinum þegar kemur
að fíkniefnaheiminum. „Merki-
legt að lesa að ráðuneytið telur sig
ekki hafa upplýsingar um og segir
ómögulegt að vita um magn ólög-
legra fíkniefna á landinu eða áætlað
götuverðmæti efnanna. Sérkenni-
legt hve lítið er fylgst með þessum
málum og hve slælega virðist staðið
ÆTLAÐ GÖTUVERÐ
ARIÐ 2005
Hass 2.000-2.500
Amfetamín 5.000-7.000
Kókaín 13.000-17.000
Marijúana 2.000
* allar tölur eru I íslenskum krónum
og miöast viö eitt gramm af hverju efni fyrir sig. |
Ómögulegt er
að áætla hversu
mikið magn fíkni-
efna erí umferð
á hverjum tíma
Björn Bjarnason,
dómsmálaráðherra
Sérkennilegt hve
lítið er fylgst
með þessum
málum
Björgvin G. Sigurðsson,
þingmaður
að upplýsingaöflun um grundvallar-
gögn í átökunum við fíkniefnasal-
ana,“ segir Björgvin.
Víkur sér undan
Þórarinn Tyrfingsson, yfir-
læknir á Vogi, telur Björn vera að
víkja sér undan því sem spurt var
um. Að vissu leyti telur Þórarinn
að sú afstaða sé skynsamleg hjá ráð-
herra. „Það eru ekki til neinar hald-
bærar tölur í þessum efnum því
allt er þetta byggt á áætlunum. Við
höfum reynt að meta magnið út frá
fjölda fíkla hér á landi og þannig
fengið út magnið sem á götunni er
hverju sinni,“ segir Þórarinn. „Ég
skil ráðherra vel að víkja sér undan
nákvæmum svörum. Þrátt fyrir
það þarf hann að gera sér betur
grein fyrir markaðnum til að sjá
hvort starf hans og undirmanna
í þessum geira sé að bera árangur
eða ekki.“
HALDLÖGÐ FÍKNIEFNI SÍÐUSTU ÞRJÚ ÁR:
2005 2004 2003
Hass (g) 20.772 36.945 54.968
Marijúana (g) 4.832 2.373 3.362
Amfetamín (g) 8.932 15.783 2.945
Amfetamin (stk.) 986 75 310
Kókaín (g) 1.139 6.160 1.192
E-töflur (stk.) 1.519 7.532 3.190
Heróín (g) 0 0,05 2,89
LSD (stk.) 4.346 2.032 1