blaðið - 20.01.2007, Síða 17
blaðið
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007 17
Kostnaður íslands af innrás í írak tæpar 400 milljónir:
44 milljónir í flutning hergagna
íslensk stjórnvöld vörðu 44 millj-
ónum króna í flutning hergagna til
íraks á árinu 2006. Á sama ári fóru
12,9 milljónir króna í söfnunarsjóð
NÁTO vegna þjálfunar íraskra ör-
yggissveita og 12 milljónir í kostnað
vegna starfs fjölmiðlafulltrúa á
vegum íslensku friðargæslunnar.
Þann 8. apríl 2003 samþykkti ríkis-
stjórnin að veita 300 milljónir króna
til neyðar- og mannúðaraðstoðar og
endurbyggingarstarfs í Irak. Síðan
þá hafa þau ráðstafað samtals 388,7
milljónum króna til starfsins, þar
af áðurnefndum 89 milljónum á
síðasta ári. Þetta kemur fram í svari
utanríkisráðherra við fyrirspurn
Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns
Frjálslynda flokksins.
„Það sem mér finnst vera mesta
áhyggjuefnið er það sem var að ger-
ast á síðasta ári. Þegar við erum að
flytja hergögn finnst mér við vera
komin út á mjög hálan ís,“ segir Sig-
urjón. „Það hefur verið á allra vitorði
í allavega tvö ár að þetta er hræðilegt
stríð, en engu að síður erum við að
flytja hergögn til íraks. Hluti af
þessum 388,7 milljónum króna af
skattpeningunum fer í stoðtækjaverk-
efni í samstarfi við Össur hf. og fleiri
slík verkefni og ég amast ekki við því,
enda getum við með því móti að ein-
hverju leyti bætt fyrir okkar stuðning
við stríðið. En það að við séum að fly-
tja byssur og sprengjur til Iraks sýnir
bara að við erum virkir þátttakendur
í stríðinu. Það vill þjóðin ekki og hún
á rétt á umfjöllun um þetta mál
BURTOn
FJALLIÐ ER OPIÐ
FJALLAHJOLABUÐIN FAXAFENI 7
S. 5200 200 VMVw.gap.íb MAN - FOS. KL. 9-18 LAlL KL. 10-14. W'WW.CJOp, IS
Ekki pissa
í skóinn
Asics eru sérfræðingar í skóhönnun og þá eru
handboltaskór ekki undanskildir. Veldu trausta
og endingargóða skó í handboltann.
Block BY302-9093 (karla og kvenna)
Topp skór með góða dempun í hæl og á tábergi. Skórinn er með stýringu
i hæl sem réttir af skakkt niðurstig og stýrir fætinum f eðlilegt niðurstig.
Beyond BN601 -2293 (karla og kvenna)
Með nýjustu tækninýjungina frá Asics, Solyte tækni sem er notuð
f topp hlaupaskóm. Þú finnur muninn á dempun og léttleika.
Útilíf // Intersport II Sportver - Akureyri II Flexor - Suðurlandsbraut //
Axel Ó. - Vestmannaeyjum // Sportbær - Selfossi II Hafnarbúðin - Isafirði //
S.Ú.N - Neskaupstað og Reyðarfirði II Tákn - Húsavik // Maraþon - Kringlunni II
Fitnessport - World Class II Sportbúð Óskars - Keflavik II Hlaup.is