blaðið - 20.01.2007, Side 22
22 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2007
blaðiö
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Hafið þið sett fram
einhverjar kröfur?
„Lausnargjaldið" cr frestun á gildistöku frumvarpsins."
Magnús Þór Hafsteinsson,
alþingismaður
Sigurður Kári Kristjánsson, formaður menntamálanefndar, hefur sagt að
stjórnarandstaðan haldi Alþingi í gíslingu með gegndarlausu málþófi.
Enn sem komið er hafa„gíslatökumennirnir" ekki sleppt neinum saklaus-
um þingmönnum úr haldi.
HEYRST HEFUR...
Hjallastefna Margrétar Pálu
hefur vakið mikla athygli
í gegnum tíðina og Hjallaskóli
þykir öðrum
skólum góð
fyrirmynd.
Ný stjórn var
kjörin nýlega
og vekur það
athygli að eig-
inkona Bjarna Ármannssonar
bankastjóra, Helga Sverrisdóttir,
er orðin stjórnarformaður.
Helga er dóttir Guðrúnar
Helgadóttur,
fyrrverandi
alþingismanns
og rithöfundar.
Mörg önnur
þekkt nöfn eru
í stjórn skólans
svo sem Inga Lind Karlsdóttir,
fyrrverandi sjónvarpsstjarna,
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár
(bróðir Árna bæjarstjóra í
Reykjanesbæ), Halla Tómas-
dóttir, framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs, auk Margrétar
Pálu sjálfrar.
orrinn var blótaður víða um
landið í gærkvöldi og má
fullvíst telja að einhvers staðar
séu timburmenn að berja á
hausum í dag. íþróttafélög hafa
nú fundið tekjulind í þorranum
og var t.d. uppselt á þorrablót
Stjörnunnar,
sem haldið
var í félags-
heimilinu í
gærkvöldi,
en menn létu
6ooo króna
miðaverð
ekki aftra sér frá því að taka
þátt í gleðinni. Hljómsveitin
Milljónamæringarnir stóð
vaktina og Kastljósmaðurinn
Sigmar Guðmundsson var
ræðumaður kvöldsins. Búast
má við að þekktir sjónvarps-
menn hafi nóg að gera sem
ræðumenn næstu helgar en
Logi Bergmann var lengi vin-
sæll á þessu sviði. Eða kannski
það fylgi Gettu betur-stjórn-
endum að vera ræðumenn...
fflO; 51 ffl
Edda Guðmundsdóttir heldur sína
fyrstu einkasýningu á morgun,
sunnudag Hún hefur alltaf haft áhuga j
á listsköpun en leyfði málaraástríð-
unni fyrst að blómstra fyrir 15 árum.
Opnar einkasýningu
á sjötugsafmælinu
Edda Guðmundsdóttir opnar
sína fyrstu málverkaeinkasýningu
á morgun. Edda segir að mynd-
listin sé sannarlega ástríða í sínu lífi
þó að hún hafi ekki farið að sinna
henni af alvöru fyrr en fyrir um 15
árum.
„Það hefur alltaf blundað í mér
frá því að ég var unglingur að mála
og mér hefur alltaf þótt gaman að
hverskonar listsköpun. Áður var ég
að dunda við þetta eins og maður
segir en fyrir 15 árum ákvað ég að
fara að læra. Ég fór fyrst til Rúnu
í Myndmáli og síðan hef ég verið í
Myndlistaskóla Reykjavíkur," segir
Edda og bætir við að fyrir 15 árum
hafi líka skapast meiri tími í sínu
lífi. Edda er eiginkona Steingríms
Hermannssonar og hún segir að
þegar eiginmaðurinn hætti í pólitík-
inni og það hægðist um í lífi þeirra
hjóna hafi hún leyft málaraástríð-
unni að springa út fyrir alvöru.
Mamma nennir ekki
að bíða lengur
Það vill svo skemmtilega til að
Edda fagnar einnig sjötugsafmæli
sínu á morgun en hún segir að
afmælið sé ekki endilega tilefni
sýningarinnar.
„Það hittist bara svona skemmti-
lega á að ég á afmæli þennan dag.
Annars held ég að mamma eigi nú
mikinn þátt í því að ég ákvað að
halda sýningu núna. Hún er lengi
búin að hvetja mig til að halda mynd-
listarsýningu og nennir ekki að bíða
lengur, enda orðin 96 ára gömul.”
Edda málar aðallega olíumálverk
og segir að verkin sem hún sýni á
sýningunni séu abstraktmyndir í
léttum stíl. „Mér finnst mjög gaman
að reyna eitthvað nýtt og prófa mig
áfram. Ég skipti sýningunni svo-
lítið í tvennt: gömul verk og ný. Ég
hef málað ýmislegt í gegnum tíðina
en undanfarið hef ég mikið málað
abstraktmyndir.“
Edda segir ennfremur að það sé
ýmislegt sem heilli þegar kemur
að myndlistinni. „Stundum er það
eitthvað í myndum sem grípur
mann, eitthvað sem erfitt er að
festa hendur á og það er ákveðin
ögrun að reyna að gæða myndirnar
sínar þeim áhrifum,“ segir Edda að
lokum.
Sýningin verður opin alla næstu
viku og fram á næsta sunnudag
milli 15.00 og 18.00 en hún er til
húsa að Garðatorgi 7 í Garðabæ.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri llnu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
8 7 1 5 9 2 6 3
2 7
6 3 5 7 1 2
4 8 2 6 9
1 2 6
7 • 1 4 5
6 3 4
9 1 8 7
3 8 5
3 9 6 4 5 7 8 2 1
4 5 2 8 6 1 9 7 3
7 8 1 9 3 2 4 5 6
i 7 5 3 4 8 2 6 9
2 3 4 6 7 9 1 8 5
8 6 9 1 2 5 7 3 4
5 1 8 7 9 6 3 4 2
6 4 7 2 1 3 5 9 8
9 2 3 5 8 4 6 1 7
eftir Jim Unger
^UmghingStoc|OntemBtionaUncydistJ>^nite^edia^004
3-28
Við ætium að borga í sitt hvoru lagi, takk.
Hvað bar hæst
í vikunni?
Bryndls lsfold Hlöðversdóttir, samfylk-
ingarkona
Það sem bar hæst í vikunni
var vanræksla ríkisins í því
að sinna sinu lögbundna eftirliti
með meðferðarstofnunum en
sú vanræksla hefur komið í ljós
undanfarið í Byrgismálinu. Það
var ótrúlegt að fylgjast með
fréttum og sjá hvernig marg-
ítrekaðar vísbendingar komu
fram um fjárhagslegt misferli og
misnotkun forstöðumanna Byrg-
isins á skjólstæðingum sínum án
þess að brugðist hefði verið við.
Það yrði seint samþykkt i annars
konar heilbrigðisþjónustu að fólk
þyrfti að gangast undir trúboð til
að sækja sér lækningu.“
Sóley Tómasdóttir, varaborgarfulltrúi
Vinstri grænna
Það var tímamótaframboð
Höllu Gunnarsdóttir til for-
manns Knattspyrnusambands
íslands. Þetta er með stærri
skrefum sem stigin hafa verið í
jafnréttisbaráttu fram til þessa.
Ég geri fastlega ráð fyrir þvi að
hún verði kjörin; ég held að þetta
sé borðleggjandi mál. Þetta er
það sem Knattspyrnusambandið
þarf helst, öflug kona með ástríðu
fyrir knattspyrnu en samt sem
áður aðeins öðruvísi sýn en hefur
verið.“
Guðjón Bergmann, rithöfundur, fyrirles-
ari og jógakennari
Þetta hefur verið hin rólegasta
vika hjá mér lengi og því
ekkert sérstakt sem bar hæst.
Ég kláraði helgarnámskeið á
sunnudagskvöldið og síðan hef
ég tekið því rólega. Ég hef sinnt
erlendum samskiptum, skrifað
greinar og undirbúið ritstörf árs-
ins. í fréttum var áhugaverðast
hvernig er verið að draga umræð-
una um Rikisútvarpsfrumvarpið
á langinn þegar önnur mikilvæg
mál hafa fengið minni umræðu.
Það hafa því mestmegnis verið
rólegheit hjá mér.“