blaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 3. FEBRÖAR 2007
blaðið
Nýtt námskeið í fluguköstum hefst sunnudaginn 4.
febrúar íT.B.R.húsinu Gnoðavogi 1 kl 20:00.
Kennt verður 4., 1118. og 25. febrúar.
Við leggjum til stangir.
Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.
Verð kr 8.500.- en kr 7.500.- til félagsmanna,
gegn framvísun gilds félagsskírteinis.
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
KKR, SVFR og SVH
Jeppabreytmgar
Vantar gáðan
starfsikraft!
Krafur:
• Gáður grunnur í málmsmídi
• Duglegur, jákvæður og stundvís
• IMámsfus
í boði:
• Sanngjörn laun
• Traust vinnuumhverfi
• Góð vinnuaðstaða
■
■
Jeppaþjónustan • Breytir- Formverk
Stórhöfða 35,110 Reykjavík
S: 567-7722, www.breytir.is
við höfum lausnina...
Sérhæfum okkur í að finna lausnir sem hámarka nýtingu á
plássi. Komdu með hugmynd oq við framkvæmum, hvort sem
pað er fyrir heimilið eða fyrirtækið.
— Kr. 8.985,-
Viðbótareining kr. 6.825,-
Kr. 5.789,------------
Viðbótareining kr. 3.629,-
AIETflStSTEMv
Skrúfufrítt - einfalt í
uppsetningu
ISOldehf.
Nethyl 3-3a -110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 5673609
INNLENT
LÖGREGLAN
Maður játar íkveikju
Karlmaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa kveikt í parhúsi í Þorláks-
höfn. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi í hálfan mánuð og sagði frétta-
stofa Útvarpsins frá því að lögreglan vilji framlengja það. Hann hefði verið
í mikilli lyfjavímu og hafi ætlað að stela verðmætum og eyða verksum-
merkjum með þvi að kveikja í húsinu.
Svindla á erlendum
rútubílstjórum
■ Til rannsóknar hjá Vinnueftirlitinu ■ Ásakanirnar virðast réttar
■ Þetta er alrangt, segir annar eigandi GT verktaka
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Ég staðfesti að málið er í rannsókn
og kvörtun hefur einnig borist til
Vinnueftirlitsins. Ég efast ekki um
að eitthvað af þessum ásökunum
reynist á rökum reist,“ segir Oddur
Friðriksson, trúnaðarmaður starfs-
manna við Kárahnjúkavirkjun.
GT verktakar starfa sem undir-
verktakar á virkjunarsvæðinu á Aust-
urlandi og á þeirra vegum starfar
rúmur tugur lettneskra og rúss-
neskra rútubílstjóra sem aka starfs-
mönnum milli starfsstöðva. Fyrir-
tækið er sakað um að greiða þeim of
lág laun fyrir of mikla vinnu ásamt
því að veita þeim ekki tilskilda papp-
íra fyrir launagreiðslurnar.
Beðið eftir svörum
Þórunn Sveinsdóttir, sérfræð-
ingur í eftirlitsdeild Vinnueftirlits
ríksins, staðfestir að málið sé til
skoðunar hjá eftirlitinu. Hún segir
að beðið sé eftir svörum frá forsvars-
mönnum fyrirtækisins.
„Við erum búin að senda fyrirtæk-
inu bréf þar sem við köllum bæði eftir
skýringum og vinnutímaskýrslum
starfsmanna. Kvartað var til okkar
vegna þess að starfsmenn fyrirtækis-
ins væru að vinna alltof langa vinnu-
daga,“ segir Þórunn. „Það er mikil-
vægt að fyrirtæki virði lög og reglur
um vinnutíma. Nú bíðum við eftir
svörum frá fyrirtækinu og frestur
þeirra rennur út innan skamms.“
Óviðunandi skýringar
Aðspurður hefur Oddur áhyggjur
af því að forsvarsmenn fyrirtækja
nýti sé takmarkaða málkunnáttu
erlendra starfsmanna. Þannig sé
reiknað með þvi að þeir kvarti ekki
undan kjörum sínum. „Ég hef út á
það að setja að fyrirtækið er með
alltof fáa starfsmenn til að sinna
þessum verkum og þannig vinna
þeir of langan vinnudag. Launin
virðast í fljótu bragði ekki í sam-
ræmi við þann langa vinnudag og
ég myndi halda að ásakanirnar eigi
rétt á sér,“ segir Oddur.
„Ég er búinn að inna eftir öllum
pappírum frá fyrirtækinu því starfs-
mennirnir sjálfir hafa fengið tak-
markað af launaseðlum. Að mínu
mati hafa forsvarsmenn fyrirtækis-
Ég myndi halda að ásakanirnar
fl eigiréttásér
Wm & ■ Oddur Friðriksson,
trúnaðarmaður
ins ekki gefið viðunandi skýringar
á málefnum bílstjóranna."
Kannast ekki við málið
Trausti Finnbogason, annar eig-
andi GT verktaka, segir fyrirtækið
ekki hafa fengið neinar kvartanir
til sín, hvorki frá starfsmönnum né
Vinnueftirlitinu. Hann segir alveg
ljóst að fyrirtækið leggi sig fram um
að fara rétt að hlutunum.
„Ég kannast ekki við þetta mál og
við eigum því erfitt með að fara yfir
það án þess að vita nákvæmlega um
hvað þetta snýst. Heilt yfir er þetta
alrangt, ég vísa öllum þessum at-
riðum á bug enda höfum við ekki
fengið eina einustu kvörtun," segir
Trausti. „Við munum að sjálfsögðu
vera samstarfsfúsir og ef eitthvað
hallar á okkur þá beitum við okkur
fyrir því að laga það.“
Olíubirgðastöðin í Örfirisey:
Tankar á lausu í Reykjanesbæ
Talið er að íbúðabyggð i Örfirisey
geti stafað hætta af oliubirgðastöð-
inni sem þar er. Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar, segir sjálfsagt
að skoða þann möguleika að flytja
stöðina til fyrrum varnarsvæðis.
Fjórir af sjö olíutönkum sem eru
á fyrrum varnarsvæði í landi Garðs,
norðan við Helguvík, eru ónýttir í
dag, samkvæmt Árna, en talið er að
flugvöllurinn þurfi eingöngu þrjá
tanka til að anna þörfum flugsvæðis-
ins. Auk þess er svæði í beinu fram-
haldi af því sem hægt væri að stækka
undir frekari olíugeymslu.
„Islenskir aðilar eru byrjaðir að
flytja inn flugvélaeldsneyti í þessa
gáma fyrir alþjóðaflugvöllinn en
fyrsta skipið kom núna fyrir hálfum
Olíubirgðastöð ógnar íbúðabyggð í Örfirisey,
Olíuflutningar um Fteykjanesbrautina aukast ef g
birgðastöðin flyst til Reykjanesbæjar.
mánuði. Þetta gefur vísbendingar
um það að þetta sé mjög aðgengilegt
þarna,“ sagði Árni.
Björn Ingi Hrafnsson, formaður
borgarráðs og formaður starfshóps
um framtíð Örfiriseyjar, var er-
lendis í gær og náðist ekki í hann til
að ræða þetta mál.