blaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 38
3 8 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007
blaðið
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Yngstur í íshokkí
Nýiiðinn Sidney Crosby varð um daginn yngsti ishokkíleikmaður
sem leikið hefur i Stjörnuleiknum árlega í NHL. Crosby sem stundar
iðju sina með Pittsburg Penguins leiðir stigalista NHL-deildarinnar
með 82 stig sem þykir ótrúlegt hjá 19 ára gömlum leikmanni.
Skeytin
Harmsögu
Michaels
Owen ætl-
ar seint að
ljúka. Eftir að
þrautagöngu
hans hjá Real
Madrid lauk með
rasssæri eftir setu á bekknum hefur
litið tekið við hjá Newcastle nema
erfið meiðsli. Er nú orðið ljóst að
hann kemur vart við sögu í vetur
en á því er ekki vanþörf eins og
Newcastle er að spila þessa dagana.
tórstjömunar vestanhafs detta
hver um aðra þvera við að
sýna David Beckham stuðn-
ing vegna þeirrar ákvörðun-
ar hans að flytjast til Los
Angeles. Sá síðasti er Tiger
Woods sem segir víst að
Beckham muni lyfta
knattspyrnu
á hærra plan.
Hanntekurþó
fr am að knatt-
spyrna sé
ekki í sérstöku
uppáhaldiþóhann
hafi gaman af leik og leik.
0»
12.15 SkjárSport
Knattspyrna
Liverpool - Everton
12.55 RÚV __________________
Handbolti
Island - Spánn
14.50 SkjárSport
Knattspyrna
Charlton-Chelsea
15.20 RÚV____________________
Handbolti
Króatía - Rússland
17.05 SklárSport______________
Knattspyrna
Middlesbrough - Arsenai
19.20 SkjárSport_____________
Knattspyrna
Juventus - Riminl
20.50 Sýn____________________
Knattspyrna
Valencia - Atietico Madrid
Sunnudagur
09:00 Sýn
Golf
Dubai Desert Ciassic
12.50 RÚV____________________
Handbolti
Danmörk - Frakkland
15.20 RÚV ___________________
Handbolti
Póliand - Þýskaland
15.50 Sýn__________
Knattspyrna
Sevilla - Real Sociedad
15.50 SkjárSport_____________
Knattspyrna
Tottenham - Manchester United
17.50 Sýn____________________
Knattspyrna
Real Madrid - Levante
19.20 SkjárSport_____________
Knattspyrna
Inter Mifan - Roma
19.50 Sýn_________
Knattspyrna
Osasuna-Barcelona
22.45 Sýn
NFL
Bears - Colts
■ Spilað um sjöunda sætið ■ Ekki unnið Spán í tíu ár ■ Skiptir máli fyrir Ólympíuleikana
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
íslensku strákarnir í landsliðinu
leika sinn síðasta leik á HM í hand-
bolta í dag þegar liðið mætir Spán-
verjum 1 leik um sjöunda sætið í
mótinu. Þó liðið sé þessa dagana
að spila um sífellt lægri sæti gerast
andstæðingarnir ekkert auðveldari.
fsland hefur ekki sigrað Spán í tíu
ár og síðasti leikur liðanna endaði
með átta marka sigri Spánverja.
Spænskir fjölmiðlar gera leiknum
lítil skil þrátt fyrir almennan hand-
boltaáhuga í landinu. Helgast það
af döpru gengi liðs þeirra en fyrir
mótið gerðu þarlendir fjölmiðlar
því skóna að eitt af fjórum efstu sæt-
unum væri sjálfsögð krafa til liðsins
enda Spánn verið meðal fremstu
þjóða i langan tíma.
En enginn skal velkjast í vafa
SÍÐUSTU LEIKIR ÞJÓÐANNA ÍSLAND - SPÁNN
Jan 2005 31-39
Ágú 2004 23-31
Jan 2003 31-32
Jan 2002 24-24
Jan 2001 25-27
Maí 1997 32-23
um að leikurinn er mikilvægur
fyrir bæði lið því sjöunda sætið er
það síðasta sem gefur beint sæti í
forkeppni Ólympíuleikanna í Kína.
Það vilja Spánverjar ekkert síður
en fslendingar því ella verður að
fara Krísuvíkurleiðina þangað og
ná fyrsta eða öðru sæti á Evrópu-
mótinu í Noregi eftir ár.
íslensku strákarnir fengu kær-
komna hvíld í gær en sökum þess
hve lítil breidd er í liðinu hefur Al-
freð Gíslason þjálfari þurft að keyra
LEIÐ SPÁNVERJA
Spánn - Egyptaland 33-29
Spánn - Qatar 41-18
Spánn - Rússland 33-29
Spánn - Danmörk 23-27
Spánn - Ungverjaland 33-31
Spánn - Króatía 28-29
Spánn - Þýskaland 25-27
Spánn - Króatía 27-35
HVERJA BER AÐ VARAST?
Juan Garcia Lorenzana 42 mörk
Iker Romero Fernandes 40 mörk
Jose Maria Vaquero 29 stoðsendingar
Alberto Entrerrios 28 stoðsendingar
helstu máttarstólpa mun lengur en
æskilegt væri. Sést greinilega á með-
fylgjandi töflu að nánast allt byrjun-
arlið íslands hefur leikið lengur en
þeir sem mest hafa spilað fyrir Spán.
Engin spurning er að í slíkri keppni
ÞREYTUSTUÐULL
(LEIKNAR MÍNÚTUR)
island
Guðjón Valur 8:54:57
Alexander 8:25:16
Ólafur 7:25:10
Birkir Ivar 6:01:17
Logi 5:55:25
Snorri 4:50:10
Sigfús 4:15:04
Spánn
VictorTomas Gonzales 5:18:03
David Davis Camara 5:08:15
lon Belaustegui Ruano 4:54:39
Jose Maria Vaquero 4:44:41
David Baruffet Boflll 4:42:47
Iker Romero Fernandez 4:28:51
Jose Javier Hombrados 4:16:33
þar sem leiknir eru margir leikir
í röð með litlum hléum á milli þá
telur slíkt þegar líða fer á leik.
Eggert Mngnús
son Hættir sem
formaður KSl
Geir Þorsteinsson
Ásælist starf Eggerts
Ársreikningur Knattspyrnusambands íslands birtur
Sjóðirnir gildna og tútna út
Knattspyrnusamband íslands
hagnaðist um tæpar hundrað millj-
ónir króna á síðasta ári samkvæmt
ársreikningi sambandsins sem
birtur var í gær. Hefur afkoman
aldrei verið betri og voru alls tæpar
300 milljónir króna í sjóðum þess
í árslok.
Heildartekjur KSf voru 517 millj-
ónir króna á liðnu ári meðan heild-
argjöld reyndust vera 417 milljónir.
Ákvað stjórn sambandsins að láta
heilar 16 milljónir af hendi vegna
góðærisins til aðildarfélaga þess og
varð því niðurstaða ársins í heild
83,2 milljónir króna í plús.
Athygli vekur að laun og launa-
kostnaður jókst um tæpar tíu millj-
ónir milli áranna 2005 og 2006
meðan aðeins einu og hálfu starfs-
gildi var bætt við á sama tímabili.
Er það rúmum átta milljónum
króna umfram áætlun fyrir árið
2006 en engar nánari skýringar
eru gefnar á þessu í skýrslunni sem
birt er.
Kostnaður við íslensku lands-
liðin vegur þungt i rekstri KSf.
Reyndist kostnaður við A-landslið
karla vera um 54 milljónir króna
meðan stúlkurnar í A-landsliðinu
voru léttari á fóðrum en sú útgerð
kostaði tæpar 19 milljónir. Er það
munur upp á 35 milljónir króna.
Knattspyrnusambandið hefur
komið að uppsetningu sparkvalla
víðs vegar um landið og eru nú 76
slíkir í notkun. Kostnaður vegna
þess verkefnis skagar hátt í 200
milljónir króna.
Landslagið innan sambandsins
breytist fljótlega á ársfundi sem
haldinn verður um næstu
helgi því þá tekur nýr
formaður við stjórnar-
taumum af Eggerti Magn-
ússyni sem gegnt hefur
starfinu í sautján ár. f
framboði eru þau Geir Þor-
steinsson, Jafet Ólafsson og
Halla Gunnarsdóttir.