blaðið - 03.02.2007, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007
blaðið
SOGUSYNI
Landsbankinn
120 ára
Opið um helgina------------------
Sögusýningin spannar 120 ára sögu bankans og þjóöarinnar
og er skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna.
Á Sögusýningu Landsbankans er
margt markvert að sjá og skoöa, ekki
aðeins úr bankasögunni heldur eru
dregnar upp myndir úr þjóðlífi fyrri
tíöar enda saga bankans og þjóðar-
innar samtvinnuð á ýmsan hátt.
Laugardag og sunnudag:
Sveinbjörn Quðbjarnarson verður á
staðnum, leiðbeinir gestum og svarar
spurningum.
Sögusýning Landsbankans
Aðalstræti 6 (húsnæði TM)
Sími: 410 4300
Opið virka daga kl. 11:00-17:00
og um helgar kl. 13:00-17:00
Enginn aðgangseyrir
L Landsbankinn
Banki allra landsmanna í 120 ár
Heildsöluverð á veiðivörum
Það styttist í fyrstu vorsendingarnar.
Við seljum eldri veiðivörur á kostnaðarverði
og heildsöluprís á lager okkar í Skeifunni 8
Neopren vöðlurfrá 6.995 (áður 16.995)
Öndunarvöðlurfrá 9.995 (áður 21.900)
Veiðijakkarfrá 5.000 (áður 12.995)
Flugustangirfrá 1.995 (áður 5.995)
Kaststangir frá 1.99íffáður 4.995)
Fluguhjól frá 1.995 (áður 4.995)
Kasthjól frá 995 (áður 2.995)
Skotveiðijakkar 14.995 (áður 24.900)
Skotveiðibuxur 10.995 (áður 18.900)
10 spúnaraðeins 1.995 (áður 3.950)
Flugulínurfrá 1.500 (áðurfrá 4.995)
og margt fleira á ótrúiegu verði
Opið í örfáa daga
Komdu strax í dag því síðast seldist allt upp á 5 dögum
Opið frá 10 til 16
UTAN UR HEIMI
Gulur snjór vekur undrun
Rússnesk stjómvöld hafa sent sérfræðinga á vettvang til að
rannsaka illa lyktandi, gulan, grænan og appelsínugulan snjó
sem hefur fallið á um 1.500 ferkílómetra svæöi í Síberíu. Enn er
beðið eftir niðurstöðum rannsókna en almenningur er hvattur til
að halda sig fjarri snjónum sem er olíukenndur viðkomu.
Félag fasteignasala og eftirlitsnefnd þess:
Berjast um
starfsheiti
■ Óeölilegur málarekstur ■ Óttast holskeflu
»
Eftir Trausta Hafsteinsson
■trausti@bladid.net
Þetta snýst um það hvort starfs-
menn á fasteignasölum megi nota
starfsheitið fasteignaráðgjafi, líkt og
dæmi eru um. Notkun heitisins var
til meðferðar hjá eftirlitsnefndinni
sem úrskurðaði að notkunin væri
heimil. Því mótmælum við algjör-
lega enda kemur þetta skýrt fram í
lögum,“ segir Grétar Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Félags fasteignasala.
Málflutningur fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur hefur þegar farið fram
þar sem Félags fasteignasala stefndi
eftirlitsnefnd Félags fasteignasala
vegna úrskurðar sem heimilaði
starfsmanni fasteignasölu að notast
við starfsheitið fasteignaráðgjafi.
Beðið er uppkvaðningu dómsins.
Ekki villandi
Þorsteinn Einarsson, formaður
eftirlitsnefndar Félags fasteignasala,
staðfestir málareksturinn og grund-
völl hans. Hann telur sérstakt að
félagið hafi ákveðið að höfða málið
og segir forvitnilegt að sjá hver nið-
urstaða dómstólsins verður.
„Þetta byggist á ákvörðun nefnd-
arinnar um starfsheitið fasteigna-
ráðgjafi. Eftir að hafa farið vel yfir
málið töldum við þetta hvorki brjóta
gegn lögunum né vera villandi.
Þessi ákvörðun var tekin eftir bestu
þekkingu um lögin og hvernig þau
eigi að túlka,“ segir Þorsteinn.
„Auðvitað geta menn haft hinar
og þessar skoðanir á því hvernig
málin megi túlka en að sjálfsögðu
stöndum við við okkar ákvörðun.
Félag fasteignasala hefur ekki viljað
una þessari niðurstöðu og höfðar
málið til að fella ákvörðunina úr
gildi“
Óeðlilegur málarekstur
Franz Jezorski, löggiltur fasteigna-
sali og eigandi fasteignasölunnar
Hóls, er sammála og telur óeðliegt
að Félag fasteignasala standi í mála-
rekstri vegna málsins. Einhverjir
sölufulltrúar Hóls hafa notast við
starfsheitið fasteignaráðgjafi.
„I sjálfu sér finnst mér það voða
lítið mál hvort menn kalli sig ráð-
gjafa eða eitthvað annað
Ég get ekki
ímyndað mér
aðþetta værí
heimilað í ððrum
stéttum
GrétarJónasson,
framkvæmdastjóri
Töldum þetta
hvorki brjóta
gegn lögunum
né vera villandi
Þorsteinn Einarsson,
lögmaður
í sjálfu sér
finnst mér þetta
voða lítið mál
Franz Jezorski,
löggiltur fasteignasali
þeirrar skoðunar að þetta valdi rugl-
ingi. Mér finnst þetta bara mjög létt-
vægt atriðisegir Franz. „Að stjórn
félagsins séu að eyða miklum pen-
ingum félagsmanna í málarekstur
finnst mér ofboðslega óeðlilegt.
Menn eiga bara að ræða málin og
málaferlin eru í raun það eina óeðli-
lega í þessu.“
Óttast holskeflu
Aðspurður segist Grétar óttast að
fjöldi starfsmanna fasteignasala bíði
í röðum eftir því að taka upp starfs-
heitið. Hann segir niðurstöðu eftir-
litsnefndarinnar ekki standast lög.
„í lögum er alveg ljóst að enginn
megi kalla sig fasteignasala, eða
nokkuð annað sem er lýsandi fyrir
starfsemi fasteignasala og getur
þannig valdið ruglingshætti hjá
neytendum. Akkúrat þessu berj-
umst við yfir til að vernda bæði
starfsheiti okkar og hag neytenda,“
segir Grétar.
„Við getum einfaldlega ekki sætt
okkur við niðurstöðu eftirlitsnefnd-
arinnar. Ég get ekki ímyndað mér
að þetta væri heimilað í öðrum
stéttum, að til verði til dæmis lög-
mannaráðgjafar og læknaráðgjafar.
Þaðerbara m engumsem
d e 11 u r það til
hugar.“