blaðið - 03.02.2007, Qupperneq 13
blaöiö
LAUGARDAGUR 3. FEBRUAR 2007
13
Heimska Halldórs Blöndals
Davíð Oddsson, fyrrverandi forsæt-
isráðherra, og Halldór Ásgrímsson,
fyrrverandi utanríkis- og forsætis-
ráðherra, ákváðu á yfirstandandi
kjörtímabili að styðja ófriðarför Ge-
orge W. Bush og Tony Blair á hendur
írösku þjóðinni. Sú þjóð hafði ekkert
til sakar unnið svo vitað sé; bjó hins
vegar við vonda stjórn og stjórnar-
hætti, en það á líka við um aðrar
þjóðir.
Ráðherrunum datt ekki í hug að
bera þátttöku Islands í Íraksstríð-
inu undir utanríkismálanefnd Al-
þingis, sem er ein af svokölluðum
fastanefndum Alþingis og starfar allt
árið um kring. Samkvæmt þingskap-
alögum er hlutverk utanríkismála-
nefndar að vera ríkisstjórn til ráðu-
Þeir borgi
sem menga
Það er gott að umhverfisráð-
herra skuli loksins ætla að gefa
eftir virðisaukaskatt á strætó. Fyrr
mátti vera! Það er líka gott að fólk
á Akureyri fær ókeypis í strætó. Ég
var farinn að óttast að sá fallegi
bær myndi verða einkabílavæðing-
unni að bráð en nú sé ég að þarna
getur hæglega myndast fallegur
þéttbyggður kjarni þar sem allt er í
raun innan göngu- og strætófæris.
Við í Reykjavík ættum að taka
okkur þetta til fyrirmyndar. Því
£% Við eigum
1 að hverfa
frá þessum
ægilega
einkabílisma.
Umrœðan
Dofri Hermannsson
miður virðist það ekki endilega
vera í kortunum því það er ný-
búið að hækka strætógjöldin í
Reykjavík og nágrenni. Formaður
umhverfisráðs sagði reyndar að
það hefði engin áhrif á farþega-
fjölda sem er einhver ný útfærsla á
lögmálinu um framboð og eftir-
spurn. Ég er ekki viss um að sam-
flokksfólk hans sem stýrir Akur-
eyri ásamt Samfylkingunni sé
sammála honum.
Við eigum að hverfa frá þessum
ægilega einkabílisma. Það er
ekkert sjálfsagt að þróa borgina
út frá einkabílnum í stað
þess að miða við öflugar almenn-
ingssamgöngur og góða reiðhjóla-
og göngustíga. Eg hef yfirleitt
ferðast á hjóli til og frá vinnu
undanfarin 15 ár og 360 daga
ársins er það ekkert mál. Þvert á
móti þá er það eiginlega lúxus.
í stað þess að vera útúrstress-
aður á leið í vinnu í köldum
bíl fær maður korters hóflega
áreynslu, súrefni í kroppinn og
mætir hress. í stað þess að rjúka
úttaugaður úr vinnunni í lok dags
út í umferð þar sem allir eru að
reyna að koma sér heim í einu,
þá stígur maður á hjólið og upp-
götvar eftir nokkur hundruð metra
að allt sem maður var að stressa sig
á í vinnunni skiptir í raun engu
máli. Maður kemur sæll og glaður
heim.
Ég held að ef borgin ætti að sjá
um heilbrigðisþjónustu ibúanna
að fullu þá myndum við sjá hag-
kvæmnina í að draga úr notkun
einkabílsins.
Hann er eins og flest annað
- óhollur í óhófi.
Höfundur er varaborgarfulltrúi
Samfylkingarinnar
Greinin ertekin afsiðunni
www.dofri.blog.is
Umrœðan
Gerðir Halldórs
Blöndals nú
bera heimsku
hans einni vott.
Sigurður G. Guðjónsson
neytis um meiriháttar utanríkismál.
Skal ríkisstjórnin ávallt bera slík
mál undir nefndina jafnt á þingtíma
sem í þinghléum. Ráðherrarnir virtu
þessa skýlausu lagaskyldu að vettugi
og það sem verra var, hvorki þáver-
andi forseta Alþingis né þáverandi
formanni utanríkismálanefndar,
sem báðir eru í hópi þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins, datt í hug að standa
vörð um sjálfstæði Alþingis gagnvart
framkvæmdavaldinu og knýja á um
að ráðherrarnir gerðu grein fyrir
þessari ákvörðun á fundi með utan-
ríkismálanefnd og sæktu sér umboð
til stríðsrekstrar til þingsins. Það
þurfti George W. Bush að gera.
Halldór Blöndal, fyrrverandi for-
seti Alþingis, lætur stundum eins og
honum sé annt um orðspor og virð-
ingu þingsins, eins og heyra mátti
m.a. í hádegisviðtali Kristjáns Más
Unnarssonar við hann á Stöð 2 á dög-
unum. Tilefni hádegisviðtalsins virt-
ist það, að Halldór Blöndal, sem nú
er formaður utanríkismálanefndar,
vill rannsaka gerðir og ákvarðanir
forseta fslands, sem leyft hefur sér
það eitt að setjast í svokallað Þróun-
arráð Indlands, sem gott eitt virðist
geta leitt af, ef marka má fréttir Morg-
unblaðsins af ráði þessu. En Morgun-
blaðið hefur líkt og Halldór Blöndal
mikinn áhuga á þessari ráðssetu for-
setans. Halldór Blöndal vill af þessu
tilefni efna til fundar í utanríkismála-
nefnd og fá til fundar við nefndina
utanríkisráðherra og jafnvel forseta-
ritara. Væntanlega vill formaður
utanríkismálanefndar spyrja emb-
ættismennina um hina friðsamlegu
för forseta íslands til Indlands. Hvar
Halldór Blöndal finnur hins vegar
þessum afskiptum sínum af gerðum
forseta íslands stað í lögum um þing-
sköp Alþingis væri fróðlegt að vita.
Virðing Alþingis eykst ekki með því
að þingforseti og formaður utanríkis-
málanefndar stingi hausnum í sand-
inn þegar ráðherrar ákveða að fara í
stríð en rísi svo upp á afturlappirnar
þegar forseti Islands reynir að bæta
orðstír íslands á alþjóðavettvangi.
Forsetinn hefur fullt frelsi til að inna
af hendi margs konar ólaunuð störf
hér á landi og erlendis án þessa að
fá til þess sérstakt leyfi einstakra
ráðherra, hvað þá utanríkismála
nefndar. Gerðir Halldórs Blöndals
nú bera heimsku hans einni vott, líkt
og heimastjórnarafmælið, sem hann
sem þingforseti og Davíð Oddsson,
þáverandi forsætisráðherra, efndu til
í fjarveru forseta íslands.
Höfundur er hæstarréttarlögmaður
Gamla góða
Óskajógúrtin
- bara léttarí
jógúrt^
jógúrt
jógúrt.
‘DRYKKI
jógúrt
iRYKKURí
Frískandi, hollur
og léttur drykkur í dós
Svalandi,
próteinríkur
og fitulaus
Silkimjúkt,
próteinríkt .
og fitulaust JÍ
Fitusnauðar
og mildar ab-vörur
dagleg neysla stuðlar að bættrí
heilsu og vellíðan
MJÓLKURVÖRUR
í SÉRFLOKKI
A rDK,KKJA* Ju; tMMAile1.
iÓGÚRÍ fete
V /!•/ Wm 1 * i
1' ^ v? m ■ 9
U * 1 ;
■ ^
m-Æ 1 > j
Hugsaðu um heilsuna!