blaðið - 03.02.2007, Qupperneq 30
30 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007
blaðið
„Ég er metnaðargjörn en er
kannski að uppskera pað
núna að éghefekki verið
hörkutól sem kemur í bakið
á mönnum/'
§
Þú hefur verið harðorð í garð Nýs
afls. Hvernig heldurðu að fari nú
þegar Frjálslyndi flokkurinn og Nýtt
afl eru gengin í eina sœng?
„Ég er sannfærð um að aðkoma
Nýs afls að Frjálslynda flokknum
muni bara verða til að veikja hann
og gera hann að allt öðruvísi flokki
en hann var. Síðastliðið sumar var
farið að tala um samstarf Frjálslynda
flokksins við Nýtt afl. Ég viðurkenni
fúslega að þar sýndi ég engan sveigj-
anleika. Ég sagði: Þetta eru gamlir
kverúlantar sem munu spilla ímynd
flokksins. Við vorum orðin stjórn-
málaflokkur með skýr markmið og
traustan fjárhagsgrunn. Mér fannst
öllu þessu ógnað. Kosningabarátta
Nýs afls fyrir alþingiskosningar 2003
beindist einvörðungu gegn Frjáls-
lynda flokknum og reynt var að rífa
niður það sem við vorum að gera. Ég
sá ekki að þessir menn gætu verið
samherjar og ég segi enn: Forystu-
menn Nýs afls spilla ímynd Frjáls-
lynda flokksins.“
Ógnaði körlunum
Frjálslyndi flokkurinn virðist orð-
inn mjög karllægur flokkur nú þegar
þú og aðrar konur sem voru í forystu
hafa gengið úr honum. Geturðu sagt
að þú hafir ftmdið fyrir því innan
um þessa menn að ekki væri tekið til-
lit til skoðana þinna vegna þess að þú
ert kona?
„Ég fann að það var tekið mikið
mark á mér alveg þangað til ég fór að
vilja upp á dekk. Þá breyttist margt.“
Fannst körlunum að þú væri að
ógna þeim?
„Já, og með réttu fannst þeim að
ég ógnaði þeim. Ég er þeim að mjög
mörgu leyti fremri til dæmis í töluðu
og rituðu máli og hef breiðari þekk-
ingu á mörgum sviðum en þeir. Ég
held að þessi vitneskja hafi þétt sam-
stöðu þeirra.“
Er erfitt að vera kona í
stjórnmálum?
„Já, það er ekki vandræðalaust.
Þar er margt sem gerir mér enda-
laust gramt í geði. Til dæmis það að
þegar verið er að svipast um eftir
mögulegum kvenkyns frambjóð-
endum er fyrsta spurningin alltaf:
,Er hún hugguleg?“ Það eru gerðar
ákveðnar kröfur til kvenna í stjórn-
málum. Kona í stjórnmálum á að
vera hávaxin, hugguleg og mátulega
dimmrödduð. Hún má ekki bera
áberandi skartgripi því þá er enginn
að hlusta á hana heldur eru allir að
tala um eyrnalokkana hennar. Hún
á að stunda útivist og lifa fullkomnu
fjölskyldulífi í þeirri geðveiki sem
stjórnmálin geta verið. Á meðan
mega karlarnir vera 300 kíló og skrol-
landi. Þorgerður Katrín er dæmi um
konu sem uppfyllir þær kröfur sem
ég nefni, en henni hefur líka verið
líkt við ofurfyrirsætuna Elle McPher-
son og varla getum við allar verið
þannig."
Sjálfri mér samkvæm
Hvernig stjórnmálamaður viltu
verða?
„Ég er frjálslynd, staðset mig hægra
megin við miðju. Ég veit fyrir hvað ég
stend og reyni að vera sjálfri mér sam-
kvæm því mér finnst það mikilvægt.
Ég styð einkaframtak og samkeppni
og vil einnig standa vörð um þá sem
verða undir í lífsbaráttunni og gamla
fólkið. Ég vil ekki skattastefnu sem
hyglir þeim sem allra best hafa það á
kostnað þeirra sem hafa það verst.“
Hefur það háð þér að vera dóttir
Sverris Hermannssonar, manns sem
var mjögáberandi í stjórnmálum?
„Já, það hefur háð mér mjög. Það
er stundum talað eins og ég sé einka-
ritari föður míns og iðulega sagt að
ég sé strengjabrúða hans. Mér finnst
það mjög ósanngjarnt. Ég hef leitt
lista i alþingiskosningum og verið
í öðru sæti í tvennum borgarstjórn-
arkosningum. Hef verið varaþing-
maður og varaborgarfulltrúi. Ég hef
skrifað fjöldann allan af greinum í
mörg ár, hef tjáð mig og haldið ótal
ræður og er stjórnmálamaður á eigin
forsendum. Samt er jafnvel látið
að því liggja að pabbi sé að semja
fyrir mig greinar. Hann hefur allt
annan stíl en ég og gæti hreinlega
ekki samið greinar á hversdagslegu
mannamáli, eins og allir vita. Synir
stjórnmálaforingja hafa ekki verið
kallaðir strengjabrúður feðra sinna,
eins og Jón Baldvin Hannibalsson,
Steingrímur Hermannsson, Árni
Mathiesen og fleiri, þótt ég sé ekki að
líkja mér við þá.“
Mótaði það þig að alast upp á pólit-
ísku heimili?
„Ég var alin upp í bullandi pólitík
og ég held að það sé frábært að fá
að alast upp við þær kringumstæður
vegna þess að þá er maður ekki
andaktugur gagnvart fólki í háum
embættum eða virðingarstöðum.
Maður hugsar fyrst og fremst um
það hvernig manneskjan er. En þótt
ég hafi verið alin upp í pólitík var ég
ekki alin upp í stjórnmálaflokki og
„Mér fannst aldrei bera
skugga á samstarf
okkar Guðjóns. Eftir
á hefég hugsað: Var
hann kannski stundum
óánægður? En ég held
ekki
ég held að það sé gott. Ég gekk aldrei í
Sjálfstæðisflokkinn og er ekki „flokks-
þröng“ eins og yngri konur í Sjálfstæð-
isflokknum eru sumar hverjar. Það er
eins og þeim finnist að þeir sem eru
í öðrum stjórnmálaflokkum hljóti
að vera ómögulegir. Ég hugsa ekki
þannig, ég hef gaman af fólki og get
vingast við fólk úr öllum flokkum.
Ég er áhugamanneskja um mannlegt
eðli og þeim mun flóknara sem það
er því skemmtilegra finnst mér það.
Þannig að í öllum þessum darraðar-
dansi get ég horft yfir sviðið og litið
á það sem gerðist eins og menn hafi
verið að tefla skák.
Ertu nœgilegt hörkutól?
„Ég er metnaðargjörn en er kannski
að uppskera það núna að ég hef ekki
verið hörkutól sem kemur í bakið á
mönnum. Það heyrðust raddir um
að ég ætti að leiða lista Frjálslynda
flokksins í síðustu borgarstjórnar-
kosningum. Ólafur F. Magnússon
hafði komið til okkar á þeim einu
forsendum að verða borgarfulltrúi,
sérfróður um þau mál. Hann bauðst
ekki til að víkja fyrir mér og mér
hefði fundist ég vera að koma í bakið
á honum ef ég hefði sóst eftir sætinu.
En svo sýnist mér að maður uppskeri
ekkert fyrir náungakærleik. Það
sama gerðist þegar ég vék fyrir Magn-
úsi Þór á síðasta landsþingi, það er
algjörlega gleymt af hans hálfu. En
svona er þetta.“
Hvað hefurðu lœrt afþessu?
„Mjög mikið. Ekki síst að konur
eiga alltof erfitt uppdráttar í pólitík
og það er verulegt áhyggjuefni.“
Að lokum, þú hefur enga ákvörðun
tekið um það hvar þú œtlar að lenda
í pólitíkinni?
„Nei. Ég ætla að fara varlega. Ég hef
líka þá trú að það sé ekkert slæmt að
framboð komi seint fram ef búið er
að undirbúa það vel. Þannig að ég
hef alltaf verið sátt við að vera seint
á ferðinni og reyna að toppa á réttum
tíma.“
kolbrun@bladid.net