blaðið - 03.02.2007, Síða 35
blaðið
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 35
Tónlist í Kefas
Lovísa ólst upp í Laugarneshverf-
inu og segist í rauninni ekki hafa
gert sér grein fyrir tónlistaráhuga
sínum fyrr en hún fór að eldast.
„Ég fór að spila á bassa þegar ég var
unglingur og byrjaði að leika með
hljómsveitum. Ég var í fríkirkju
sem heitir Kefas og á sunnudögum
var mikið spilað á samkomum. Þar
fékk ég fyrst tækifæri til að spila
með hljómsveitum og fékk góða
æfingu. Leið mín lá síðan í Mennta-
skólann í Hamrahlíð en þar tók ég
ekki þátt í tónlistarlífi og hélt mig
reyndar mjög til hlés. Var hvorki
i kór né öðru. Mest var ég að spila
fyrir mig sjálfa heima, hafði raunar
ekki hugsað mér að gera neitt meira
á þessu sviði heldur en það. Ég nýt
þess mjög að vera ein með sjálfri mér
en ég er líka félagsvera og á marga
góða vini. Reyndar hefur vinahóp-
urinn stækkað mikið á undanförnu
ári.“
Fékk heilaæxli
Lovísa er 24 ára, fædd árið 1982.
Hún hefur sagt frá því áður í viðtali
að hún hafi veikst alvarlega árið
2001, fékk æxli við heila. Lovisa náði
sér fullkomlega af þeim veikindum
og segist alls ekki vilja velta sér upp
úr því tímabili í lífi sínu. Hún sé full
af orku en viti þó ekkert hvað gerist
á næstu mánuðum.
„Allt mitt líf hefur gjörsamlega snú-
ist við á einu ári, tók óvænta stefnu
sem mig hefði ekki órað fyrir. Ég
ætlaði að verða geislafræðingur, fór í
geislafræði og fannst það afar spenn-
andi nám fyrst en fann mig síðan
ekki í því. Leið mín lá þá í Listahá-
skólann í tónsmíðar og ég var eigin-
lega nýbyrjuð í því námi þegar ég var
uppgötvuð,“ útskýrir hún. „Satt að
segja er ég ekki enn búin að ákveða
hvað mig langar í raun og veru að
gera í framtíðinni.“
Ekkert fram að færa!
Fyrir þá sem eru að kynnast Lay
Low hér og nú skal það upplýst að
hún setti eitt lag inn á myspace á
Netinu þar sem félagar á umboðs-
skrifstofunni Cod, sem þá var ný-
stofnað fyrirtæki, uppgötvuðu hana
og buðu plötusamning. „Það voru
margir vinir mínir búnir að hvetja
mig til að koma mér á framfæri en
mér fannst ég ekki hafa neitt fram
að færa. „Þetta er samt auðvitað allt
mér sjálfri að kenna, ég setti lagið á
Netið,“ segir hún hlær. „En ég átti
ekkert von á öllu þessu sem hefur
fylgt í kjölfarið. Ég ætlaði að deila
þessari tónlist með þeim fáu sem
væru kannski að grúska á svipuðum
nótum og ég.“
Ný plata?
Þegar Lovísa er spurð hvort hún
sé byrjuð að vinna í næstu plötu seg-
ist hún ekki hafa haft tíma til þess.
„Mig langar að gera aðra plötu en það
hefur ekkert verið ákveðið með hana
enn þá. Ég á lög en þau eru ekki full-
kláruð og ég þarf að gefa mér tíma til
að ljúka við þau. Ég finn fyrir þrýst-
ingi á aðra plötu en vil gera hana á
mínum tíma. Ég vil að næsta plata
verði þannig að ég verði fullkomlega
sátt við hana. Kannski kemur bara
ekki neitt, kannski er ég búin með
kvótann," segir hún í þreytulegum
tóni, en því trúir vitaskuld enginn.
Þessi unga söngkona er bara rétt
að byrja. „Að minnsta kosti veit ég
ekki enn hvernig næsta plata kemur
til með að líta út, ef af henni verður,
enda á ég erfitt með að staðsetja mig
í tónlist. Ég hef þó alltaf haft áhuga
á kántrí- og blústónlist og hlusta
mikið á gömlu kántrímeistarana."
Noregur og USA
Ferðalög hafa verið allnokkur á
undanförnum mánuðum, bæði inn-
anlands og utan, og umboðsmaður-
inn er að þreifa á útlendum mörk-
uðum. Eftir viku fer Lovísa til Noregs
og síðan eru Bandarikin á listanum
i vor. Ýmsir staðir úti í heimi eru í
deiglunni en meðan ekkert er neglt
niður telur Lovísa ekki rétt að greina
frá framhaldinu, allt geti breyst. „Ég
hef virkilega gaman afþví að ferðast
og þótt ég hafi alls ekki hugsað mér
að fara út og sigra heiminn þá langar
mig til að spila hér og þar.“
Mamma og SMS
Tilnefningarnar til Islensku tónlist-
arverðlaunanna komu henni mikið á
óvart. „Ég hefði kannski trúað að ég
kæmist að sem byrjandi ársins en
alls ekki söngkona ársins né heldur
vinsælasti flytjandinn, ég var mjög
hissa á þeim verðlaunum þar sem
ég hélt að ég höfðaði ekki til allra,"
segir hún. Gantast reyndar með að
mamma hennar hefði setið spennt i
salnum með símann í hendi... „Svo
hún hlýtur að hafa átt einhvern þátt í
þessu,“ bætir hún við kímin.
„Ég hefði verið alsæl með tilnefn-
ingarnar þótt ég hefði engin verð-
laun fengið. Annars var ég mjög
Lovísa veiktist alvarlega
árið 2001, fékk æxli við
heila. Hún náði sérfull-
komlega afþeim veikindum
og segist ekki vilja velta sér
upp úr því tímabili í lífi
sínu.
stressuð að spila í beinni útsendingu
en kvöldið var frábært og ég er virki-
lega glöð með þetta allt saman.“
Hún segist líka hafa fengið góð við-
brögð frá öðrum tónlistarmönnum
sem gladdi hana. „Það er gaman að
fá hrós,“ segir hún með bros á vör.
„Eldri tónlistarmenn hafa lika haft
samband við mig áður og boðið mér
að spila með þeim, sem mér hefur
fundist ánægjulegt."
(hljómsveit
Lovísa er einnig í hljómsveit sem
heitir Benny Crespo’s Gang en þar er
leikin allt önnur tónlist og langt frá
því sem Lay Low er að gera. „Við í
Benny Crespo’s Gang erum að fara að
gefa út plötu en við leikum rokktón-
list svo það er mjög ólíkt því sem ég
er að gera sem Lay Low. Sú hljómsveit
varð upphaflega til á Selfossi og ég var
fengin til að vera hljómborðsleikari og
söngkona en einnig tek ég í gítarinn.“
Hún segir að strákarnir í bandinu
séu ánægðir með frama hennar, enda
styrki það hljómsveitina.
Á lausu
Lovísa segist bæði vera gamaldags
og unglingur í sér. Hún er róleg að
eðlisfari og segist ekkert vera að spá
í ástarmálin þessa dagana, þegar hún
er spurð hvort hún sé í sambandi.
Hún var með einum hljómsveitarfé-
laga sínum en í dag eru þau bara góðir
vinir. „Ég vil einbeita mér að tónlist-
inni og setja allan minn kraft í hana.
í framtíðinni ætla ég þó að stofna fjöl-
skyldu, eignast börn og allt það, en það
er nægur tími,“ segir hún og brosir. I
textum hennar gætir þó sterkra til-
finninga, en hún segir að þeir séu
sambland af tilfinningum, reynslu og
bulli. „Það er hvorki pólitík né ádeila
í textunum mínum,“ segir Lovísa og
vinnustaðahljómsveitin er farin að
sýna óþreyju að bíða eftir henni.
Hún segist ekki vera nein draum-
óramanneskja heldur bara ósköp
venjuleg stelpa. Stelpa sem er blanda
af íslenskum víkingi og indónesískum
blóðhita. „Ég er engin skandalastelpa
og hef alltaf verið frekar rólynd."
elin@bladid.net
Tími til að
fagna!
Mikið framboð sæta
á ótrúlega lágu verði!
KeflavíkoOsló
“ Kr. 15.590
Keflavík oStokkhólmur
“ Kr. 12.000
Skattar og flugvallargjöld innifalið.
33% afsláttur fyrlr börn •
Aðrir áfangastaðir í Noregi og Svíðjóð á frábæru verði aukfjölda tenginga um Evrópu.
Flug til Stokkhólms hefst 27. apríl.
Bókaðu núna á: www.flysas.is.
Sírni fjarsölu: 588 3600 " Börn á aldrinum 2 til 15 ára. Scandinavian Airlines
A STAR ALLIANCE MEMBER
S4S