blaðið - 03.02.2007, Page 36
36
LAUGARDAG
FEBRUkiÍ2007
|
\
Ljósir litir vorsins
Komandi vortíska einkennist meöal annars af Ijósum litum og daufum tónum.
Margir tónar af gráum og sandbrúnir í bland við Ijósbleika liti og kremhvíta.
Fötin eru einföld en þó meö ákveðnum einkennum eins og ýktum ermum eða
hálsmáli. Efnin eru fínleg og gegnsæ I bland við grófari og stífari efni.
blaðið
Munstraðir mínikjólar.
Litlir munstraðir mínikjólar í anda 6. áratugarins þykja mjög
móðins þessa dagana. Scarlett Johansson og Nicole Richie
láta þá ekki framhjá sér fara og klæddust slíkum kjólum
með stuttu millibili á dögunum.
: mrlH k J
tiska tiska@bladid.net
SÓLGLERAUGUN: Póst-kjarnorku-
stríðs-beatnik-sólgleraugun mín
frá 1950, framleidd I Japan.
Með hækkandi hitastigi
og heitu stríði þá
verða allir að eiga
góð sólgleraugu.
HJÓLABRETTIÐ: KROOKED-brettið
mitt eftir listamanninn Mark Gonzales
með Independent-öxlum, Spitfire-
dekkjum og Swiss Bones Ceramic-
legum. Ef þetta Pretti væri bíll væri
það Porsche.
SAMSKIPTATÆKIN: Persónulega
samskipta-, sköpunar-, menningar-
og lærdómsmiðstöðin mín: Fartölvan,
flakkarinn, myndavélar og góður sími
sem passa í bakpokann.
SKÓRNIR: Strigaskór, klassískt og
gott orð yfir þá fyrstu sem gerðir voru
úr striga. Strigaskór
eru mjög spenn-
andi árið 2007.
Jordan
nr. 2 og
nr. 3 frá
árunum
1988-89
voru tíma-
mót í hönnun, blandað var saman
notagildi og stíl. Endurútgáfur, nýjar
hugmyndir, efni, litir og stíll gætu
ekki verið fjölbreyttari, óútreiknan-
legri en í dag.
HÚNNUNARLEIKFÖNGIN: Verk Med-
icom er vettvangur hönnuða, lista-
manna og jaðarmenningar í hinum
víðasta skilning, farðu á Christie’s
og Sotheby’s eftir 10 ár eða komdu í
BELLEVILLE í dag!
ÚRIÐ: Þegar ég rak augun í þetta úr
eftir popplistamanninn Robert Indi-
ana með hinu fræga LOVE kom ekkert
annað til greina. Það var gefið
út í mjög takmörkuðu upp-
lagi á Valentínusardaginn
árið 2004.
Mín tenging við LOVE Ro-
þert Indiana er LOVE PARK
í Fíladelfíu, einn besti og
virtasti staður i heimi til að
stunda götuhjólabrettastíl.
Bjarni Einarsson rekur hönnunarbúð-
ina Belleville á Laugaveginum ásamt
kærustu sinni Önnu Clausen. Búðin er
samsuða hjólabrettamenningar og jað-
artísku og þar kennir ýmissa grasa.
Bjarni nefnir hér nokkra hluti sem eru
lýsandi fyrir hans persónulega stíl og
hann gæti helst ekki verið án.
Tíska vorsins
Nú er útsölum að ljúka og senn fyllast verslanir af nýjum vörum vortískunnar. Blaðið kynnti sér hvað nokkrar verslanir
hafa upp á bjóða í vortískunni og fékk að vita hvað verður áberandi í tískunni á næstu mánuðum.
Töffaralegt vor
Svava Árnadóttir vinnur í Kúltúr og hún
segir að það sé alltaf gaman þegar farið
er að taka uþp nýjar flíkur fyrir vorið.
Hún segir að í vortískunni kenni ýmissa
grasa en föt í Ijósum og hvítum litum
séu þar áberandi eins og venja er á
vorin. Svava segir mikið um gallaefni
og þá i klassískum gallabuxum
og litium og sætum
gallajökkum. Vor-
tískan að þessu
sinni sé mjög
töffaraleg,
það sé mikið
af allskyns saumum og
vösum á flíkunum sem
geri þær töffaralegar
og einstakar. Svarti liturinn
er inni eins og alltaf en nú í bland við hressandi
liti. Það er mikið um einfalda svarta jakka sem eru
aðsniðnir og jakkar með smá stéli eru það nýjasta
í vor. Skyrtur hafa verið mikið í tísku og þær sem
komu fyrir vorið eru mjög skemmtilegar en efnið
er krumpað sem gerir þær mjög töffaralegar.
V_J
Allir litir vorsins eru metal
Arndís Bára Ingimarsdóttir er verslunarstjóri í Oasis. Hún
segir að allir metallitir séu litir vorsins auk þess
sem svartur og þrúnn og gulur séu með í för.
Skemmtilega skærir en þó mildir bláir og
bleikir tónar læðist þar líka með. Áhrifa geim-
aldar gæti í vortískunni þar sem metallitir eru
eins og fyrr segir áberandi og í fötunum er
ákveðin framtíðarsýn.
Arndís segir að blöðrukjólar verði allsráð-
andi í vor og kjólar og kápur með ýktu sniði,
eins og stórum ermum séu mikið að koma
inn. Hún segir að áhrifa frá 7. áratugnum gæti,
sérstaklega í kjólum sem minna á babydoll-
kjóla þess tíma.
Fylgihlutir vorsins eru frekar ýktir; þar flögra um
fiðrildahálsmen og um að gera hengja á sig stór
hjartahálsmen og bera stórar töskur á öxl.
Arndís bætir við að mittislínan fari hækkandi og
að stuttbuxur, nú með háu mitti, haldi sínu striki.
Kvenleg og hátt mitti
Margrét Theodórsdóttir,
verslunarstjóri hjá
Zöru, er í óðaönn að
taka upp vorvörurnar
en nú eru svokall-
aðar preseason-vörur
að koma í verslunina.
Hún segir að fötin fyrir
yngri aldurshópinn séu
frekar hippaleg í bland við
eighties-lúkkið. Mikið sé
um skæra liti í bland
við svartan og hvítan.
Margrét segir að vor-
tískan beri alltaf með
sér fallega kjóla og
að þessu sinni eru
kjólarnir stórmunst-
raðir og margir
með kimonosniði.
Húnsegirað kven-
tískan sé kvenleg
og hásnið
eru þar
áberandi
en mittið
hækkar bæði
á buxum og
þilsum. Einnig
eru svokallaðar
hotpants
mjög í tísku.
Þeim er hægt
að klæðast við
ýmis tækifæri
og meðan
sól er ennþá
lágt á lofti er um að
gera að vera í sokkabuxum
innanundir en þær fara einnig
vel við bera leggi þegar sólin
fer að skína. Púffermar segir
Margrét að séu mjög mikið
í gangi á kjólum jafnt sem
jökkum og bolum. Töskur vors-
ins eru stórar lakktöskur og að
sama skapi eru lakkskór hluti af
skótísku vorsins.
Hrein og tær húð
Til að húðin viðhaldi heilbrigði sínu og ljóma er mjög nauðsynlegt að
hreinsa hana vel á hverjum degi. Það eru margs konar hreinsivörur í boði
og þær stuðla margar að fitujafnvægi húðarinnar og djúphreinsa hana. Kon-
ur eru oft duglegar að fjárfesta í góðum kremum og förðun en ekki eins
duglegar að nota góð hreinsikrem og vökva. Það er samt mikilvægt að hafa
það í huga að góð krem og farðar virka skammt ef húðin er ekki hreinsuð
reglulega. Hrein húð er tærari, jafnari og mýkri og ljómar afheil-
brigði.
Pure Focus
Matifying Puri-
fying Lotion
hreinsar og þéttir •
svitaholurnar
og gerir húðina purk focus
matta með því ,
að drekka í sig 'ZZz'íz."4
fitu. Notað eftir ...... .
hreinsun kvölds
og morgna.
Prodigy Make Up Remover er
það nýjasta í Prodigy lúxuslínu He-
lenu Rubinstein. Hreins-
irinn er krem sem
umbreytist í olíu þegar
hann hitnar á húðinni
og hreinsar óhreinindi
mjög vel auk þess sem
hann hreinsar dauðar
húðfrumur og stuðlar að
frumuendurnýjun húðar. ---------
Biosource Softening Cleansing milk
og Softening Lotion Hreinsar vel án þess að raska
náttúrulegri vörn húðarinnar. Inniheldur Petp-efni
sem róar húðina og örvar frumustarfsemi hennar. Inni-
heldur auk þess stein- og snefilefni sem eru orkubúst
fyrir húðina. Vatnið er alkóhóllaust, gefur raka og
blæs nýju lífi í húðina auk þess sem það styrkir, örvar
og gefur Ijóma.
Pure Focus Foaming Facial Scrub frá Lancome fjarlægir dauðar
húðfrumur og djúþhreinsar húðina vel. Stuðlar að endurnýjun frumna
þar sem það inniheldur örfín korn sem hefur góð áhrif á losun dauðra
húðfrumna og húðin verður tær og mjúk.
Pure Focus Masque maski sem hefur svokölluð sánaáhrif. Hann
húðina þannig að svitaholur opnast og óhreinindi
og fita koma upp á yfirborðiö og djúphreinsar
þannig húðina. Maskinn kemur reglu á fitufram-
leiðslu og róar húðina og vinnur gegn bakteríu-
myndun á yfirborði. Hann hefur frískandi áhrif og
húðin fær tærari og jafnari áferð.
Pure Focus Deep Purifying Cleansing Gel er gel
sem hreinsar óhreinindi og farða af yfirborði húðar-
innar og húðin verður hrein og fersk.
hitar
20% afsl. Af öllum BRONSON vítamínum 1-15 Feb
Gingseng - Q 10 - íjölvítamín - grænt te - acidophilus - andoxunar pakkar
V ?*'
i
•rAí.ítMH**'**' W
BRONSON bestu bætiefnin