blaðið - 03.02.2007, Síða 37
blaðið
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 2007 37
Með silfurbjarta nál
Lilja Árnadóttir, fagstjóri Munasafns Þjóðminjasafnsins, verður með
sérfræðileiðsögn um textílsýninguna Með silfurbjarta nál í Bogasaln-
um sunnudaginn 4. febrúar kl. 15. Einnig er boðið upp á leiðsögn um
grunnsýningu Þjóðminjasafnsins kl. 14.
Dans með frjálsri aðferð
Islandsmeistaramót í tíu dönsum með frjálsri aðferð fer fram í Laug-
ardalshöll sunnudaginn 4. febrúar og hefst kl. 11. Samhliða mótinu
fer fram keppni í samkvæmisdönsum með grunnaðferð og B-flokkar
verða með danssýningar.
helgin@bladid.net
Pétur Ben gerir víðreist um þessar mundir
UM HELGINA
og syngur fyrir Dani
í víking til Danmerkur Pétur Ben
tónlistarmaður er nýkominn af stórri
tónlistarhátið i Hollandi og heldur
senn til tónleikahalds i Danmörku.
/ ÍJ
L0
v .../
Leikur
Pétur Ben tónlistarmað-
ur er á leið til Danmerk-
ur í næstu viku þar
sem hann mun leika
og syngja fyrir heima-
menn. I kvöld fá aftur á móti Ak-
ureyringar og nærsveitamenn að
njóta tónlistar Péturs sem kemur
fram á skemmtistaðnum Græna
hattinum. Pétur verður einn og
óstuddur á sviðinu sem hann segir
að geti verið ótrúlega skemmtilegt
og kúnstugt. „Það skapast að ein-
hverju leyti meiri nánd við áheyr-
endur og maður getur líka stjórnað
betur hvert tónleikarnir fara. Svo
finnst mér ég standa sterkari að
vígi þegar ég hitti hljómsveitina aft-
ur,“ segir hann.
Bundinn íbænum
Fram að þessu hefur Pétur ekki
spilað mikið utan borgarmúranna.
„Ég hef sáralítið farið út á land.
Því er nú verr og miður. Ég hef líka
verið svolítið bundinn í bænum. Ég
var að gera tónlistina fyrir bíómynd-
irnar Börn og Foreldra og líka fyrir
leikhúsið þannig að ég hef haft lít-
inn tíma til að ferðast og spila fyrir
fólk,“ segir hann.
1 Danmörku mun Pétur halda
ferna tónleika á þremur dögum.
Tónleikarnir verða í Álaborg,
Kaupmannahöfn og Árhúsum.
Góð gagnrýni í Danmörku
„Þessi ferð kom til af því að það
eru íslendingar í Kaupmannahöfn
sem kalla sig Beatless Propaganda
sem hafa verið að flytja inn íslenska
artista til borgarinnar. Þau höfðu
áhuga á að flytja mig inn og ég var
bara til. Svo er ég í tengslum við bók-
ara í Danmörku og hann hjálpaði
mér að koma á tvennum öðrum tón-
leikum,“ segir Pétur.
Plata Péturs Wine for My
Weakness hefur verið fáanleg í
Danmörku og eru Danir því ekki
ókunnugir tónlist Péturs.
„Ég veit ekki hvernig viðtökurnar
hafa verið en ég hef alla vega fengið
smá viðbrögð á myspace-síðunni
frá dönsku fólki. Svo hef ég feng-
ið rosalega góða gagnrýni bæði í
Politiken, Gaffa og Sound Venue,“
segir Pétur.
Áuk danskra aðdáenda Péturs má
búast við að Islendingar fjölmenni á
tónleikana enda eru þeir ófáir í land-
inu. „Kannski er ég bara að fara að
spila fyrir íslendinga í Danmörku
og það er bara allt í lagi. Það hafa
nú fleiri gert það. Ég vona samt að
það komi einhverjir Danir líka,“ seg-
irhann.
Bókarar sperra eyrun
Pétur gerir víðreist um þessar
mundir því að fyrir skemmstu kom
hann ásamt hljómsveit sinni fram á
Eurosonic-tónlistarhátíðinni í Hol-
landi.
„Þetta er svona bransafestival svip-
að og Iceland Airwaves,“ segir Pétur
og bendir á að hátíðin sé mikið sótt
af fólki sem vinni við tónleikahald
og bókanir. „Ég er búinn að fá svo-
lítil viðbrögð frá því. Bókarar hafa
sperrt aðeins eyrun og spurt eftir
mér. Það er eitthvað smávegis í píp-
unum en ég veit ekki hvað ég get
fjallað um það. Fólk er alla vega byrj-
að að spyrja mig um diska í Þýska-
landi og Englandi en ég veit ekki
hvað kemur síðan út úr því. Fyrst
um sinn er þetta ábyggilega spurn-
ing um að og spila eina, tvenna eða
þrenna tónleika eins og í Danmerk-
urferðinni. Þetta er allt saman í
startholunum en ég held að góðir
hlutir gerist hægt,“ segir Pétur Ben
að lokum.
Byssur til sýnis
Veiðisafnið á Stokkseyri hefur
starfsár sitt með árlegri byssu-
sýningu í dag og á morgun kl.
11-18 í húsakynnum Veiðisafns-
ins Eyrarbraut 49 á Stokkseyri.
Karlakór og þorrahlað-
borð
Karlakórinn Heimir skemmtir
gestum á Broadway í kvöld.
Söngstjóri er Stefán Reynir Gísla-
son og undirleikari dr. Thomas
Higgerson á flygil. Á undan
verður boðið upp á þorrahlað-
borð. Hljómsveitin Hunang leikur
síðan fyrir dansi fram á nótt.
Bernska Gorkís
Kvikmyndin „Bernska Gorkís"
sem gerð var í Sovétríkjunum
1938 (leikstjórn Marks Donskoj
og er byggð á fyrsta hluta sjálf-
sævisögu Maxíms Gorkí verður
sýnd í MÍR-salnum sunnudag-
inn 4. febrúar kl. 15. Myndin
er sýnd með enskum texta.
Aðgangur ókeypis.
Tala meira.
„Ég er alsæl,“ segir ung námsmær í Reykjavík.
„ Þetta er allt
annað líf “
Ung stúlka í Reykjavík segir líf sitt
hafa breyst eftir að hún fékk sér SKO.
„Ég get tíl dæmis farið oftar á kaffihús og í bíó. Ég get einfaldlega leyft mér
svo miklu meira,“ segir hún. Alls hafa um 5.000 fslendingar skráð sig í
þjónustu SKO síðan í apríl á síðasta ári og ekkert lát virðist vera á æðinu.
SKO býður jafngóða GSM-þjónustu og hin símafyrirtækin, innanlands og erlendis. Eini munurinn er lægra
verð! Það kostar EKKERT að færa GSM-símanúmerið til SKO. Þú skráir þig í þjónustuna á www.sko.is.
Foreldrar
undrandi yfír
SKO-æðinu
„Ég er ekki viss um að það sé hollt
að tala svona mikið í símann, þó að
það sé ókeypis“
Foreldrar SKO-ungmenna eiga oft erfitt með að skilja
hvað vakir fýrir þeim. Einkum vekja grunsamlega lágir
símreikningar ungmennarma furðu, enda á fólk ekki að
venjast þessum upphæðum. „Þetta er ekki einleikið,“
sagði áhyggjufull móðir við blaðamann í gær. „Dóttir
mín virðist alltaf getað talað við vini sína, en samt er
símreikningurinn hennar ekkert hærri en áður. Hún
segir að það sé vegna þess að það sé ókeypis að hringja í
aðra SKO-síma, en hvemig getur það staðist? Ókeypis
að hringja?“ segir móðirin og hlær.
Strámaður ársins 2006
Þrjátiu og átta ára gamall Haíhfirðingur, Sigurgeir
Björgvinsson, var í gær kosinn Strámaður ársins 2006. Á
fimmta þúsund kjósenda greiddi atkvæði í símakos-
ningu að þessu sinni og hlaut Sigurgeir yfirburða-
kosningu en alls voru yfir 100 manns tilnefndir.
Sigurgeir hefur verið ötull strásafnari um árabil og vann
hann hug og hjörtu þjóðarinnar þegar hann safnaði
ríflega hálfum kassa af stráum á síðasta ári. Stráin verða
geymd í sérstöku strásafúi sem hann hefur komið sér
upp á heimili sínu í Smárahverfinu. Sigurgeir var hinn
kátasti þegar ff éttamaður heimsótti hann í gær. „Þetta er
mikil hvatning fyrir mig til að halda áfram strásöfnun-
inni. Þetta er vissulega mikil vinna en mjög gefandi,"
sagði Sigurgeir.
Hringt í SKO GSM-síma
Hringt í aðra GSM- og heimasíma
í alla GSM-síma á íslandi