blaðið - 23.02.2007, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007
blaðið
INNLENT
LÖGREGLAN
Þjófar handteknir
Tæplega þrítugur karlmaður var handtekinn fyrir þjófnað úr
sérverslun í miðborginni á miðvikudagsmorgun. Eftir hádegi
sama dag var 15 ára piltur staðinn að hnupli í matvöru-
verslun í Hafnarfirði. Um kaffileytið var síðan 16 ára piltur
einnig tekinn fyrir hnupl í Kringlunni.
REYKJAVÍK
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Stútur undir stýri
Karlmaður á tvítugsaldri keyrði út af við hringtorgið við
Úlfarsfell um hádegisbil í gær. Maðurinn var ölvaður og var
með tvo farþega, sem einnig eru á tvítugsaldri, í bílnum.
Forðuðu þau sér öll frá bílnum en náðust hins vegar
skömmu síðar.
Hraði við IKEA
Tveir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur
við verslunina IKEA í gærmorgun. Á þeim stað þar
sem þeir voru stöðvaðir er hraðinn lækkaður niður
í 50 km vegna framkvæmda. Annar ökumaðurinn
var tekinn á 107 km hraða en hinn á 109.
Fréttablaðið:
Guðni Ágústsson um ísland meðal staðfastra þjóða:
Aðstandendur
fá 1,5 milljón
Samfélagsverðlaun Frétta-
blaðsins voru afhent í gær og
fékkAðstandendafélag aldr-
aðra, AFA, verðlaunin. Fékk það
peningaverðlaun upp á eina
milljón króna. Verðlaunað var í
fimm öðrum flokkum og voru
verðlaunin þar ýmist ferða-
vinningar eða tölvuverðlaun.
Hvunndagshetjan er
Ævar Jóhannesson en hann
bruggar lúpínuseyði og gefur
krabbameinssjúku fólki.
Aðrir sem fengu verðlaun voru
Sjónarhóll, Freyja Haraldsdótt-
ir, Þorgerður Ingólfsdóttir og
Benedikt Erlingsson.
Sameinuðu þjóðirnar:
Frestur írana
útrunninn
mbl.is Frestur Irana til að hætta
við kjarnorkuáætlun sína er runn-
inn út og hafa íranar ekki orðið
við kröfu Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar (IAEA). Fram
kemur í skýrslu stofnunarinnar
að íranar séu búnir að koma sér
upp 300 skilvindum f kjarnorku-
stöð, sem ætlaðar eru til þess
að augða úran í miklu magni.
franar eiga á hættu að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
beiti þá refsiaðgerðum þar sem
þeir hafa ekki orðið við kröfu
SÞ og virt að vettugi þann frest
sem þeim var gefinn til að
hverfa frá kjarnorkuframleiðsl-
unni, segir á fréttavef BBC.
Islendingar misnotaðir
■ Alger misskilningur ■ Smánarblettur af ■ Bush-stjórnin ósvífin
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Ég tel að það sé alger misskilningur
hjá Guðna að Bandaríkjamenn hafi
með einhverjum hætti misnotað
vilja fslendinga. Það var fjöldi ann-
arra lýðræðisríkja sem lýsti yfir
stuðningi við aðgerðir sinna banda-
manna á þeim tíma þótt deila megi
um síðar hvort upplýsingarnar sem
lágu fyrir hafi verið réttar." Þetta
segir Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
um þau ummæli Guðna Ágústs-
sonar landbúnaðarráðherra á þingi
í gær að Bandaríkjamenn hefðu
misnotað vilja fslendinga með
því að lýsa því yfir að íslendingar
væru f hópi viljugra og staðfastra
þjóða. Það hefði verið þeirra einhlið
ákvörðun.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Vinstri grænna, spurði í upp-
hafi þingfundar í gær hvort til greina
kæmi að falla frá stuðningi við f raks-
strlð, viðurkenna mistökin og aftur-
kalla heimildir um afnot af íslensku
landi í
ljósi þess að tvær hinna svokölluðu
viljugu þjóða, Danir og Bretar, hefðu
ákveðið að kalla herlið sín heim frá
írak.
Geir Haarde forsætisráðherra
minnti á að íslendingar hefðu á
sínum tíma lagt 300 milljónir til end-
uruppbyggingar í frak samkvæmt
samþykkt Alþingis. Steingrímur
sagði stjórnarandstöðuna ekki vilja
afturkalla fjárstuðninginn. Hún
vildi að smánarblettur yrði þveginn
af nafni íslands.
Guðni Ágústsson benti á að for-
maður Framsóknarflokksins, Jón
Sigurðsson, hefði lýst því yfir að
ákvörðunin um stuðning við innrás-
ina í frak hefði verið tekin á grund-
velli rangra upplýsinga. „Það liggur
fyrir að þessi ákvörðun um stuðn-
ing var tekin af fyrrverandi forsæt-
isráðherra og utanríkisráðherra
eins og komið hefur fram við þessa
umræðu."
Guðni sagði jafnframt eftirfar-
andi: „Ég vil segja að það liggur
fyriraðBanda-
Smánarblettur
verði þveginn af
Steingrímur J. Sigfús-
son, þingmaður Vinstri
grænna
ríkjamenn misnotuðu einnig þann
vilja okkar sem við höfum oft látið
í té þegar ástandið er þess eðlis með
því að lýsa yfir að við værum í hópi
viljugra og staðfastra þjóða. Það var
einhliða þeirra ákvörðun."
Sigurður Kári vísar í fyrri ágrein-
ing innan Framsóknarflokksins.
„Ég held að það megi skýra þessi
ummæli Guðna með hliðsjón af ára-
löngum ágreiningi hans við sinn
fyrra formann, Halldór Ásgríms-
son,“ segir hann.
Aðspurður kveðst Guðni aldrei
hafa haft trú á að Bandaríkjamenn
hefðu haft leyfi til að nota nafn
íslands eins og þeir gerðu.
„Ég hef aldrei haft trú á
að Bandaríkjamenn hafi
Misnotuðu vilja
okkar
Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra
Misskilningur
hjá Guðna
^Sigurður Kári Krist-
jánsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksíns
haft leyfi þessara manna sem hina
ákvörðunina tóku til að nota nafn Is-
' lands í því skyni sem þeir gerðu. Ég
á við að Bush-stjórnin hafi ósvífin
notað hinn viljann, að þeir mættu
fljúga hér yfir og lenda ef svo bæri
undir, til þess að setja okkur
á lista með þessum
viljugu og staðföstu
þjóðum."
Hernaður í Irak Stjórnarandstaðan
vill afturkalla stuðning við íraksstriðið
LATIÐ FAGMANN
VINNA VERKIÐ!
- Dúkalögn
- Veggfóðrun
Félag dúldagninga- og
veggfóðrarameistara
- Teppalögn
dukur@simnet. is - www.dukur.is
SOFT DEATH OF A SOLITARY MASS eftir André Gingras
IN THE NAME OF THE LANDeftir Roberto Oliván
AÐRAR SÝNINGAR: 25.02 - 04.03 - 11.03 - 18.03 - 25.03
MIÐASALA: s. 568 8000 - www.id.is
ISLEIUSKI
DAIUSFLOKKURini
FRUMSYNIR Há
I KVOLD mt
Vöröu- og Ná mufélagar
[.... fá 50% afsláttá sýníngár íd.
Borgarstjóri biður um frest á kæru:
Ber blak af vini
og flokksfélaga
Stjórn Skógræktarfélags Reykja-
vikur hefur ákveðið að verða við bón
Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgar-
stjóra Reykjavíkur, um að fresta því
að kæra Kópavogsbæ og verktaka-
fyrirtækið Klæðningu fyrir náttúru-
spjöll í Heiðmörk. Borgarstjóri hefur
lýst því yflr að hann vilji finna lausn
á málinu í þágu umhverfisins.
Dofri Hermannsson, varaborgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, telur að
um vinargreiða sé að ræða. „Þarna
er borgarstjórinn náttúrlega að bera
blak af vini sínum og flokksfélaga,
Gunnari Birgissyni bæjarstjóra, sém
er ábyrgur í málinu. Það er óheppi-
legt fyrir borgina fari þetta ekki
kæruleiðina. Þótt náungakærleikur
sé göfugur er hann ekki heppilegur
í þessu tilfelli."
Náttúruverndarsamtök Islands
hafa lagt fram kæru vegna umhverf-
isspjalla í Heiðmörk og fara fram á
að rannsókn verði þegar hafin. „Ég
veit náttúrlega ekki hvaða samninga-
leiðir borgarstjóri er að tala um. Eg
held kannski ekki að borgarstjóri
geti miðlað lögum ef lögreglustjóri
Mynd/RAX
höfuðborgarsvæðis finnur út að
þarna hafi verið brotin lög. Þá brey tir
samningsvilji borgarstjóra engu um
það,“ segir Árni Finnsson, formaður
Náttúruverndarsamtakanna.
I kæru Náttúruverndarsamtak-
anna segir að ekki verði annað séð
en að um skýlaust brot sé að ræða á
skipulags- og byggingarlögum sem
og lögum um náttúruvernd. Einnig
kunni að vera um að ræða brot á
fleiri lögum.
Landspítalinn:
Mátti reka
yfirlækninn
mbl.is Hæstiréttur hefur sýkn-
að íslenska ríkið af bótakröfú
fyrrum yfirlæknis á Landspítala
- háskólasjúkrahúsi en starf hans
var lagt niður og honum sagt
upp störfum. Dómurinn féUst
hins vegar á kröfu læknisins
um að hann ætti rétt á þóknun
til lögmanna vegna innheimtu
biðlauna, sem honum bar.
Læknirinn var yfirlæknir skurð-
deildar kvennasviðs spítalans en
í janúar 2004 var honum tilkynnt
að framkvæmdastjórn spítalans
hefði tekið ákvörðun um að
flytja stjórnun á skurðstofum
af kvennasviði yfir til svæfinga-,
gjörgæslu- og skurðstofusviðs.
Læknirinn krafðist
samtals rúmlega 5,1 miUj-
ónar króna í bætur.