blaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 33

blaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 33
blaðið FÖSTUDAGUR 23. FEBRÖAR 2007 33 Vetrarhátíð Orðlaus mælir með viðburðum á Vetrarhátíð sem stendur yfir í Reykjavík 22. til 24 febrúar. Skemmtilegt framtak og ýmislegt spennandi fyrir augu og eyru sem léttir lund. Auðvitað á að fagna vetrinum en ekki bíða endalaust eftir sumrinu. Kynnið ykkur dagskrána á www.vetrahatid.is. viðtal Biggi Mausverji býr í London þar sem hann hefur haft nóg fyrir stafni IMasterar Sefur stundum til hádegis % Biggi eða Birgir eins og hann vill láta kalla sig í London, því hið fyrrnefnda getur misskil- ist sem hinn stóri á enskri tungu, hefur búið og starfað í London frá því í september 2004. Hann er oftast kenndur við hljómsveitina Maus sem sigraði svo eftirminnilega í Músík- tilraunum árið 1994 og hefur verið meðal vin- sælustu hljómsveita á Islandi allar götur síðan. Birgir hefur nú hafið sinn sólóferil í London og á síðasta ári gaf hann út sína fyrstu plötu, ID, sem hefur fengið ágætisdóma. Þar lætur Birgir ekki staðar numið og hefur hann ýmis önnur verkefni íbígerð. Afhverju varð London fyrir valinu? Mér var farið að leiðast svo í vinnunni heima, var kominn í frekar leiðinlegan 9-5 pakka svo ég ákvað að breyta til og flytja hingað til Lond- on í september 2004. Þegar Eggert í Maus til- kynnti okkur að hann ætlaði að flytja til San Francisco og allir hinir í hljómsveitinni voru að fara hver í sína áttina, þá fannst mér alveg timi til kominn að gera eitthvað sjálfur. Það var ekkert sem batt mig heima, engin kærasta eða börn svo fyrir mitt leyti snerist þetta dálít- ið um að finna sjálfan mig. Ég var í rauninni í algjörri óvissu þegar ég ákvað bara að hætta í vinnunni og fara og ég vissi í rauninni ekkert hvað beið mín. Var ekkert mál að koma sérfyrir í London? Ég var svo heppinn að fá í hendurnar frítt húsnæði og ég þekkti nokkra góða vini hérna sem gáfu mér ástæðu til að flytja. Það tók smá tíma að kynnast fólki og mynda sambönd svo ég ákvað að byrja að vinna á hverfisbarnum til að eignast kunningja. Það var mjög arðsamt þar sem ég kynntist fólkinu sem skipar hljóm- sveit mína í dag. Þetta voru allt krakkar sem eru í sama tónlistarskólanum hér í London og þau spila öll á mjög svona óhefðbundin hljóð- færi sem mér fannst hentugt þar sem ég spila ekki á nein þeirra. Eruð þið búin að vera dugleg í tónleika- haldi? Já, eftir að platan mín ID kom út höfum við haft nóg að gera. Við erum búin að spila mikið í Englandi, túra um Italíu og höfum svo farið til íslands og spilað á síðustu Airwaves-hátíð. Við erum öll í mismunandi verkefnum svo það er í rauninni bara þegar allir hafa tíma sem færi gefst á því að koma saman. Þú hefur verið viðloðandi Silvíu Nótt? Já, ég hef verið að vinna að nýjustu plötunni hennar með Sölva Blöndal. Mér fannst alveg frábært að vinna að þeirri plötu. Maus hefur alltaf spilað hreina popptónlist, sem við gef- um okkar alla í á tónleikum, en þegar maður semur tónlist fyrir aðra getur maður alveg sleppt öllu egórugli. I því liggur ákveðið frelsi. Platan hennar Silvíu er algjör poppplata. Við komum að öllum þáttum plötunnar nema söngnum. Ágústa, leikkonan á bak við Sylvíu, er alveg þveröfug við karakter hennar. Hún kvartar aldrei og hitar te fyrir okkur strákana. Hún er rosalega frjó og kemur með margar skemmtilegar hugmyndir og er fagmannleg á allan hátt. Hvernig er svona dœmigerður dagur hjá Bigga í London? Það er nefnilega svo frábært að það er eng- inn dæmigerður dagur. Ég er að vinna að nokkrum mismunandi verkefnum, eins og t.d. fyrir tónlistarmanninn Gísla sem er á samn- ingi hjá EMI, þegar hann kallar þá mæti ég bara í vinnuna. Fyrir utan það get ég gert hvað sem er. Ég ræð mínum tíma algjörlega sjálfur og leyfi mér því stundum að sofa til hádegis. Stundum eyði ég heilu dögunum í að semja sögur eða tónlist og hitta vini mína. Ég bara nýt þess að búa hérna. ísland togar samt allt- af í mann. Ég ætlaði að vera löngu farinn en það er dálítið erfitt að losa sig úr stórborginni. Alltaf einhver verkefni sem þarf að klára og svoleiðis. Ég ætla til dæmis að gera aðra plötu með krökkunum í hljómsveitinni, ekki til að gefa út, bara til þess að eiga sjálfur. Svo bíður tónleikahald um heiminn með Gísla og verk- efni með Kimono heima á íslandi. Árið á því eftir að vera erilsamt lijá mér. Kolbrún Karlsdóttir Hér gefur að lita föt úr smiðju Roksanda llincic Hún sýndi nýverið fíkur fyrir vetur 2007 á tískuvikunni í London. Hún segir að þegar hún hannaði þessa línu hafi hún haft áhuga á hreyfingu og bylgjum. Nú er stórar og efnismiklar flíkur, stórar púffermar, blöðrupils og kjólar allsráðandi í tískunni en áður en æöið greip um sig var tískuhönnuðurinn Roksanda llincic búin að mastera fyrirbærið og fyrir henni hafa vol- ume og ýktar línur veriö eðlilegt fyrirbæri þegar kemur að þvi að hanna föt. Föt Roksanda bera þess merki að hún lagði stund á arkitektúr þar sem fötin taka á sig ótrúlegustu form. Roksanda er fædd í Belgrad og áður en hún kláraði arkitekta- námið uppgötvaði hún ástríðu sína fyrir tísku og hönnun og flutti til London þar sem hún læröi fatahönnun í hinum virta skóla Central St Martins. Eins og nafn hönnuðarins bera föt hennar einnig með sér ákveðna dulúð og blossandi rómantík. Hún hefur ástríðu fyrir 5. áratugnum og gamaldags glamúr-rómantík og það sést ávallt á fötum hennar. Föt hennar vekja jafnan kátínu og undrun og hún leikur sér að því að gera efnis- miklar flíkur sem eru stórar og miklar og um leið mjög kvenlegar. Að sama skapi má sjá í hönnun hennar ákveðinn hráleika og fötin eru nútímaleg, með spennandi smáatriðum og hver kjóll er gersemi. Tísku- sýningar Roksanda þykja einnig viðburður út af fyrir sig en þær heldur hún yfirleitt að morgni dags og þær eru sveipaðar gamal- dags glamúr. Roksanda var nýlega tilnefnd sem besti nýi hönnuður ársins á British Fashion Awards.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.