blaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007 blaöið UTAN ÚR HEIMI RÚSSLAND r Minnkandi lífslíkur vekja ugg Rússnesk stjórnvöld íhuga nú hvernig mögulegt sé að snúa við þeirri þróun að lífslíkur landsmanna, sér í lagi karlmanna, fari sífellt minnkandi. Lífslíkur rússneskra karla eru sextíu ár, nærri fimmtán árum færri en í flestum öðrum iðnvæddum ríkjum. Auka á meðferð á sjúkdómum á borð við alnæmi. Veiddu risasmokkfisk Sjómenn á Nýja-Sjálandi hafa veitt smokkfisk sem talinn er sá stærsti sem veiddur hefur verið. Það tók sjómennina tvo tíma að koma honum um borð í skipið og var hann frystur um leið. Smokkfiskurinn var tíu metrar að lengd og 450 kíló að þyngd. SUÐUR-KÓREA Forseti verður óháður Roh Moo-Hyun, forseti Suður-Kóreu, hefur ákveðið að segja sig úr stjórnarflokknum Uri og mun sitja sem óháður út kjörtímabilið. Þá hefur Han Myeong-sook forsætisráð- herra boðist til að segja af sér embætti til að geta boðið sig fram til forseta í kosningunum í desember næstkomandi. Danmörk: Rusladeilan í Árósum leyst Sorphirðumenn í Árósum í Danmörku hafa takið til starfa á nýjan leik eftir að þeir náðu samkomulagi við yfirmenn sína á miðvikudaginn. Sorphirðu- mennirnir lögðu niður störf fyrir rúmum tveimur vikum eftir að tveimur starfsmönnum, sem höfðu verið í löngu veik- indaleyfi, var hótað uppsögnum. Sorphirðumenn víðar í Dan- mörku lögðu einnig niður störf á tímabili til að styðja starfsbræð- ur sína í Árósum í baráttunni. Bandaríkin: Sátt um iPhone Bandarísku tölvufyrirtækin Apple og Cisco Systems hafa náð samkomulagi um iPhone-nafn- ið og munu bæði fyrirtækin framvegis fá að nota nafnið. Apple kynnti iPhone-farsíma sinn í síðasta mánuði, en hann er væntanlegur á bandarískan markað í júní næstkomandi. Síminn er nokkurs konar blanda af farsíma, tölvu, tónlistarspilara, myndefnisspilara og myndavél. Jón Gerald játar sök í Baugsmálinu: Segir Baugsmenn hafa svikið sig ■ Óttaðist að pólitísk öfl gegn sér ■ Kvennamálin fyrirferðarmikil Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net Jón Gerald Sullenberger játaði fyrir héraðsdómi í gær að hafa gefið út til- hæfulausankreditreikning upp á 569 þúsund Bandaríkjadali sem á þeim tíma, árið 2001, nam í kringum 60 milljónum króna. Jón Gerald sagð- ist hafa útbúið reikninginn að ósk Tryggva Jónssonar en ekki vitað í hvaða tilgangi hann kynni að verða notaður. Hins vegar hafi hann ekki búist við að hann yrði færður inn í bókald Baugs enda hafi hann ein- ungis afritað reikninginn og faxað hann beint inn á skrifstofu Tryggva. Jafnframt sagði Jón Gerald þær skýringar Baugsmanna að reikn- ingurinn hafi verið gefinn út vegna svo- kallaðs vandræðalagers út í hött þar sem hann hafi einungis séð um að afgreiða pantanir fyrir Baug en ekki framkvæmt þær sjálfur. Jón Gerald var einnig spurður ít- arlega út í samskipti sín við Jón Ás- geir á þeim tíma sem viðskipti milli Nordica og Bónuss, síðar Baugs, stóðu yfir. Sagði Jón Gerald að mikið traust hafi ríkt á milli þeirra tveggja og að Jón Ásgeir hafi verið mikill fjölskylduvinur. 1 kringum árið 2000 hafi samband þeirra hins vegar stirðnað þar sem Jóni Ger- ald fannst Jón Ásgeir ekki standa við gerða samninga um að Baugur keypti vörur af Nordica fyrir 2 millj- ónir Bandaríkjadala. Hafi Jón Ger- ald ítrekað reynt að fá Jón Ásgeir og Tryggva til að ræða málin án árang- urs. Þeir hafi svo komið í bakið á honum seinna meir. Jón Gerald segir þó að endanlega hafi soðið upp úr er eiginkona hans hafi sagt honum árið 2002 að Jón Ásgeir hafi „ætlað að vaða inn á heimili þeirra á skítugum skónum“. Aðspurður hvað hann meinti með þessu sagði Jón Gerald að tveimur árum áður hafi Jón Ásgeir reynt að komast yfir eiginkonu hans á heim- ili Jóns Ásgeirs í Reykjavík. Við það hafi Jón Gerald misst stjórn á skapi sínu og hringt bæði í Tryggva og Jóhannes Jónsson og lesið þeim pistilinn. Jón Gerald var heldur ekki sáttur við einn verjenda málsins sem hann segir hafa sýnt kvenfyrirlitningu er hann hafi blandað fjölskyldu sinni í málið. Á verjandi að hafa sagt að vinslit hans við Baugsmenn hafi verið tilkomin vegna sambands Jóns Ásgeirs við eiginkonu Jóns Geralds. Heimtaði Jón Gerald að viðkomandi verjandi bæði eiginkonu sína afsökunar er hún kæmi fyrir dóm til að bera vitni í málinu. Við þessi tíðindi sagðist Jón Ger- ald endanlega hafa ákveðið að fara í mál við Baugsmenn. Hann hafi skoðað ýmsa kosti og eftir að hafa ráðfært sig við nokkra einstak- Játaði brot sitt Jón Gerald játaði fyrir héraðsdómi í gær að hafa gefið út tilhæfulausan kreditreikning að beiðni Tryggva Jónssonar. linga, þeirra á meðal Jónínu Bene- diktsdóttur, hafi hann ákveðið að ráða Jón Steinar Gunnlaugsson sem lögfræðing. Hann hafi aldrei heyrt minnst á hann áður né aðra þá sem bendlaðir hafa verið við málið sökum pólitískra tengsla við Davíð Oddsson, fyrrum forsætisráð- herra. Til að mynda hafi hann fyrst heyrt nafn Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, nefnt í ORMSSON LÁN: Mánaðarleg jöfn afborgun í 48 mánuöi: Kr. 5.858.- FALLEGT, VANDAÐ, ÓDÝRT og TIL Á LAGER-NÚNA AEG AEG HEIMILISTÆKI ÁTILBOÐSVERÐI ÞEGAR KEYPTAR ERU „SETTU ÞAÐ SAMAN" INNRÉTTINGAR Bsa ORMSSON ÁRVIRKINN, SELFOSSI • Sími 480 1160 AKUREYRI • Sími 461 5003 I %SA TlLAÐVERSlAi ORMSSON SMÁRALIND • Sími 530 2907 / 530 2908 Drengur Bæöi dómari og saksóknari þurftu ítrekað að biöja Jón Gerald um að skýra við hvern hann ætti þegar hann minntist á „dreng- inn“. Virðist Jón Gerald ekki nota annað orð yfir Jón Ásgeir en drengur. Baugur fastur í fyrsta gír Enn og aftur var Jón Ásgeir beðinn af verj- anda sínum að lýsa áhrifum Baugsmálsins og tildrögum þess. Svaraði hann því til að Baugur væri eins og tryllitæki sem kæmist aldrei ofar en í fyrsta eða annan gír þar sem byrði málsins væri of mikil. Hann getur þó huggað sig við það að Baugur er ekki einn á báti því um götur Reykjavíkur keyrir fjöldinn allur af tryllitækjum sem ekki ná að nýta kraft sinn til fulls. Er þar verið að tala um „borgarjeppa" og risapall- bíla sem betur eru geymdir úti á landi en í miðborginni. Davíð á bandi Baugs? Brynjar Níelsson, verjandi Jóns Geralds, hefur ekki haft sig mikið í frammi í Baugsmálinu enn sem komið er. Hann sá þó ástæðu til að rengja Jón Ásgeir eftir að forstjórinn sagði það bera skýran vott um pólitískan illvilja þegar Davíð Oddsson varaði Hrein Loftsson við yfirvofandi inn- rás í höfuðstöðvar fyrirtækisins á frægum Lundúnafundi um árið. Vildi Brynjar aftur á móti meina að það bæri frekar vott um pólitískan velvilja fyrst fyrrum forsætis- ráðherra hafi séð sig knúinn til að vara Baugsmenn við. Saksóknari sá hins vegar meiri ástæðu til að spyrja hvaö hefði valdið þessari meintu reiði Davíðs í garð Baugs. Vísaði Jón Ásgeir á Davíð sjálfan en man þó eftir að Davtö hafi á sínum tima kennt Baugi um vaxandi verðbólgu í þjóðfélaginu. Eyddi lögregla sönnunargögnum? Jón Ásgeir greindi fra því að til sé mynd- band af því þegar lögregla réðst inn á skrifstofu hans um árið og opnaði þar meðal annars peningaskápinn. Það eina sem lögregla hafi fundið í skápnum hafi veriö kampavín en einhverra hluta vegna hafi myndbandinu verið stungið undir stól. Skyldi sönnunargögnum hafa verið „eytt"? Fréttablaðinu í tengslum við fréttir af tölvupóstssamskiptum hans og Jónínu. Þvert á móti hafi hann ótt- ast að pólitísk öfl kynnu að vinna gegn honum þar sem Hreinn Lofts- son, stjórnarformaður Baugs, hafi verið nátengdur forsætisráðherra á þessum tíma. Norðurlönd: Samgöngur röskuðust Miklar truflanir urðu á samgöngum í Danmörku og suðurhluta Svíþjóðar og Noregs eftir að mikill snjóbylur gekk yfir i gær. Lögregla í Svíþjóð hvatti almenning til að skilja bílinn eftir heima og halda ekki út á þjóðvegina nema í brýnustu neyð. Norræna flugfélagið SAS þurfti að aflýsa mörgum tugum flugferða og seinkun varð á fjölmörgum öðrum, bæði frá Kastrup í Kaupmannahöfn og flugvellinum í Malmö. Flug- félagið þurfti að sjá nokkur þúsund farþegum bæði fyrir gistingu og fæði vegna tafanna. Þá var lestarferðum og stræt- óferðum aflýst víða og vegum lokað þar sem ástandið var verst. Ástandið í Svíþjóð var verst á Skáni þar sem mátti sjá hundruð yfirgefinna bíla á veg- unum. Ekki var mikið um slys á fólki.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.