blaðið - 23.02.2007, Síða 10
10 FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2007
blaöið
UTAN UR HEIMI
EGYPTALAND
Bloggari dæmdur í fangelsi
Egypskur dómstóll hefur dæmt bloggarann Abd
al-Karim Sulayman í fjögurra ára fangelsi fyrir
að hafa móðgað bæði íslam og Hosni Mubarak,
forseta Egyptalands, á bloggsíðu sinni. Sulayman
var dæmdur fyrir átta færslur frá árinu 2004.
Sextán fórust í ferjubruna
Sextán fórust þegar eldur kom upp í ferju með þrjú hundruð manns
innanborðs undan ströndum Jakarta, höfuðborgar Indónesíu, í
gær. Enn er ekki er vitað um orsök brunans. Ferjusiglingar eru einn
algengasti samgöngumátinn í Indónesíu, enda samanstendur ríkið
af um 17.500 eyjum, og eru ferjurnar oftar en ekki yfirfullar.
Járnfrúin í brons
Stytta úr bronsi af Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráöherra
Breta, var afhjúpuð í þinghúsinu í Lundúnum á miðvikudag. Thatc-
her er fyrsti fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands sem fær að
sjá styttu sína afhjúpaða. „Ég hefði kosið styttu úr járni, en brons
verður að duga,“ sagði hin 81 árs gamla Thatcher af því tilefni.
írak:
Óttast klór-
gasárásir
Talsmenn Bandaríkjahers
í frak hafa lýst yfir áhyggjum
sínum af því að uppreisnar-
menn i landinu séu í auknum
mæli farnir að nota klórgas í
árásum sínum að undanförnu.
Þrjár slíkar sprengjur hafa
sprungið í f rak í þessum mán-
uði og er óttast að fleiri kunni
að fylgja i kjölfarið.
Haft er eftir sérfræðingum að
klórgasárásir krefjist ekki meiri
tæknikunnáttu en aðrar árásir.
Talið er að uppreisnarmenn
hafi notast við klórgas, meðal
annars vegna mjög mikilla
birgða í landinu þar sem mikill
skortur er á hreinu vatni.
Frjálslyndi flokkurinn:
Magnús Þór og Jón
vilja fram í Reykjavík
■ Listar fyrir miöstjórn ■ Ekki biöröö í forystu ■ Þingmenn öflugastir
Eftir ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Kjördæmisfélög Frjálslynda flokks-
ins vinna nú að því að setja upp fram-
boðslista sem lagðir verða fyrir mið-
stjórnarfund flokksins þann í. mars
næstkomandi, að því er Magnús
Reynir Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri flokksins, greinir frá.
„Kjördæmisfélagið á Norðurlandi
eystra er búið að skora á Sigurjón
Þórðarson alþingismann
að leiða lista þar og
i e n d i r
flest til
að því verði ekki breytt. Síðan hefur
kjördæmisfélagið í Norðvesturkjör-
dæmi ákveðið að óska eftir því að
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, verði
í fyrsta sæti og Kristinn H. Gunn-
arsson í öðru sæti. Þetta er það
eina sem búið er að ákveða," segir
Magnús.
Magnús Þór Hafsteinsson þing-
maður hefur lýst yfir áhuga á að
leiða lista í öðru hvoru Reykjavíkur-
kjördæminu og flytja sig þar með
úr Suðurkjördæmi. Jón Magnússon,
formaður Nýs afls, hefur einnig
lýst yfir áhuga á að leiða lista í öðru
hvoru Reykjavíkurkjördæminu.
Kjartan Eggertsson, sem situr
í kjördæmisráðinu í Reykjavík,
segir enga ákvörðun hafa verið
tekna um niðurröðun í Reykja-
vík. Jafnframt að
Magnús Þór og Jón
séu þeir einu sem
hafi greint frá
áhuga sínum á að leiða lista þar.
„Það hefur svo sem ekki verið
biðröð eftir því að leiða listana.
Það verður að segjast eins og er en
það eru ýmsir sem við myndum
treysta til þess. Okkar markmið er
náttúrlega að nýta kröftuga menn
og konur og það kemur bara í ljós
hvernig þetta raðast. Auðvitað eru
þingmennirnir okkar öflugustu
menn í dag. Það segir sig sjálft. Það
væri þess vegna fengur í því að hafa
Magnús Þór í öðru hvoru Reykjavík-
urkjördæminu,“ segir Kjartan sem
sjálfur er meðal þeirra sem hafa
áhuga á öðru
sæti í öðru
hvoru Reykja-
víkurkjör-
dæminu.
Valdimar Leó Friðriksson, áður
þingmaður Samfylkingarinnar,
sem hefur gengið til liðs við Frjáls-
lynda flokkinn, hefur áhuga á því
að leiða lista í Suðvesturkjördæmi
og Grétar Mar Jónsson, varaþing-
maður flokksins, vill leiða lista í
Suðurkjördæmi.
„I raun og veru er það miðstjórnin
sem hefur síðasta orðið um öll fram-
boðsmál. Við erum ekki með próf-
kjör, hvað sem síðar verður," tekur
Kjartan fram.
Róbert
Laugardaginn 17. febrúar
t/ Vogar kl. 12 • Stóru-Vogaskóli
Mánudaginn 19. febrúar
Grindavík kl. 20 • Verkalýðshúsið
t/ Flúðir kl. 20 • Útlaginn
Fimmtudaginn 22. febrúar
t/ Reykjanesbær kl. 20 • Aðalver
Laugardaginn 24. febrúar
Garður kl. 12 • Flösin
Hveragerði kl. 15 • Samfylkingarhúsið
Mánudaginn 26. febrúar
Sandgerði kl. 20 • Efra Sandgerði
Hvolsvöllur kl. 20 • Hlíðarendi
Miðvikudaginn 28. feb
Vestmannaeyjar kl. 20 • Alþýðuhúsið
Höfn kl. 20 • Nýheimar
Fimmtudaginn 1. mars
Þorlákshöfn kl. 20 • Kiwanishúsið
Vík í Mýrdal kl. 20 • Víkurskáli
Laugardaginn 3. mars
Selfoss kl. 12 • Inghóll
Allir velkomnir
Samfylkingin
Lúðvík
Guðrún
Við hlustum
Fundaröð frambjóðenda Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi