blaðið - 23.02.2007, Blaðsíða 17
blaðið
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÖAR 2007 17
Flottur kjóll Ragnhildur
tók sig vel út íSöng-
vakeppni Sjónvarpsins.
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir:
Alltaf f lottust
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
hefur prýtt sjónvarpsskjái lands-
manna með einlægri útgeislun
sinni um nokkurt skeið. Um helg-
ina bættist henni rós í hnappagatið
er hún var valin kynþokkafyllsta
kona landsins af hlustendum Rásar
2. Skyldi hún hafa brosað í gegnum
tárin?
„Já já, eigum við ekki bara að
segja það! Annars kom þetta nú
frekar á óvart. Ég var á æfingu fyrir
Eurovision þegar einn úr hópnum
tilkynnti mér þetta. Svo hringdu
þeir frá Rás 2 og staðfestu úrslitin."
Skyldi sjálfstraustið hafa aukist í
kjölfar kosningarinnar?
„Nei nei, í rauninni ekki. Mér
líður bara eins og alla aðra daga,
bara ágætlega! Mér finnst nú alltaf
svolítið fyndið þegar verið er að
kjósa um kynþokka og þvíumlíkt
en ég lít bara á þetta sem krydd í
tilveruna.“
Ragnhildur segist ekki leggja
áherslu á kynþokkann í vinnunni.
„Ég hef ekki verið að setja stút á
munninn á skjánum, sko. Ég reyni
bara að koma þeim málefnum
vel frá mér sem við höfum til
umfjöllunar."
En hvaða kosti finnst Ragnhildi
að fólk þurfi að hafa til að teljast
kynþokkafullt?
„Mér finnst að sjálfsöryggi geri
fólk fyrst og fremst kynþokkafullt.
Það er númer eitt tvö og þrjú.“
Ragnhildur hefur haft mikið að
gera undanfarið. Fyrir utan Kast-
Ijósstarfiðþá skilaði hún starfi sínu
sem kynnir á Eurovision með glæsi-
brag. Þar að auki hefur hún verið í
fullu háskólanámi.
„Já, ég hef verið að læra sjúkra-
þjálfarann í Háskóla Islands. Ég
þarf reyndar að taka mér frí úr
Kastljósinu bráðum í tvo mánuði
þar sem ég verð í verknámi á Land-
spítalanum. Mér finnst þetta spenn-
andi nám og hef ekki orðið fyrir
vonbrigðum. Þó veit ég ekki hvort
ég vil byrja að vinna við þetta strax,
því eins og er þá á Kastljósið hug
minn allan,“ sagði hin hressa og
sérlega kynþokkafulla Ragnhildur
að lokum.
BLOGGARINN...
Hvað ef...
„Kosningartil Atþingis fara fram
þann 12. maí næstkomandi. Efviö
gefum okkur að vinstrifiokkarnir í
stjórnarandstööunni nái meirihluta
þá er ekki ólíklegt aö þeir myndi
stjórn. .../... Segjum að Samfylking
veröi stærri og fái stóra stólinn og
fjóra aðra, VG fimm stóla og Frjáls-
lyndir tvo. Með þriggja flokka stjórn
er reyndar sú hætta fyrir hendi aö
flokkarnir fjölgi ráðuneytum til þess
að hafa alla góða en við skulum
vona ekki. Ríkisstjórnin gæti litið
svona út og raunar sé ég ekki marg-
ar aðrar leiðir í mannauði þessara
flokka:"
Kristján Jónsson
bolviskastalid.b1ogspot.com
Forsætisráðherra:
Utanríkisráðherra:
Fjármálaráðherra:
Heilbrigðisráðherra:
Sjávarútvegsráðherra:
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra:
Menntamálaráðherra:
Samgönguráðherra:
Dóms- og kirkjumáiaráðherra:
Félagsmálaráðherra:
Landbúnaðarráðherra:
Umhverfisráðherra:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir S
Steingrímur J. Sigfússon V
össur Skarphéðinsson S
Ögmundur Jónasson V
Guðjón Arnar Kristjánsson F
Ágúst Ólafur Ágústsson S
Katrín Jakobsdóttir V
Björgvin G. Sigurðsson S
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir V
Jóhanna Sigurðardóttir S
Magnús Þór Hafsteinsson F
Kolbrún Halldórsdóttir V
Giöf náttúrunnar til þín^^
Omega-3
F I S K I O L I A
00 : ®
I o
CO “
O)
0
£
o
■SÍSS
240nJ/«M
/ ,'j'.
r ''M.,/
#
Nu.-"
Omega-3 fiskiolía inniheldur hátt hlutfall Omega-3
fitusýra, einkum EPA og DHA sem eru okkur
Irfsnauðsynlegar.
Fjöldi rannsókna víða um heim hafa sýnt fram á
jákvæða eiginleika þeirra fyrir heilsuna.
Omega-3 fiskiolía byggir upp ónæmiskerfið
á marga vegu og hefur jákvæð áhrif á:
• sjón • minni
• hjarta og æðakerfi • andlega líðan
• blóðþrýsting • námsárangur
• kólesteról í blóði • þroska heila og
• liði miðtaugakerfis
• rakastig húðarinnar á meðgöngu
Má taka með lýsi.
www.iysi.is