blaðið - 23.02.2007, Page 18
18
FÖSTUDAGUR 23. FEBRUAR 2007
K°Uú.
Spyröu ekki að því hvaö þú
getir gert fyrir land þitt. Spyröu
hvaö sé í hádegismatinn.
Orson Welles
Afmælisbörn dagsins
SAMUEL PEPYS
DAGBÓKARHÖFUNDUR, 1633
GEORG FRIEDRICH HÁNDEL
TÓNSKÁLD, 1685
blaöiö
kolbrun@bladid.net
Nýtt tímarit
um sögu
Sagan öll er nýtt tímarit á (s-
landi og mun koma út mánaðar-
lega. Umfjöllunarefnið er íslands-
sagan og mannkynssagan í máli
og myndum.
Sagan öll skoðar alla mannkyns-
söguna, frá fornöld til okkar
daga. fslandssagan er skoðuð
í nýju Ijósi
og má nefna
að í fyrsta
tölublaði er
löng grein um
fyrstu íbúa
Reykjavíkur,
sem kunna
að hafa verið
rostungaveiði-
menn en ekki
bændur eins og almennt hefur
verið talið. Fjallað er um nýjar
kenningar fræðimanna, sem
hingað til hafa ekki farið hátt,
um að rostungaveiðar kunni að
hafa verið úrslitaþáttur varðandi
byggð norrænna manna á ís-
landi, og í Reykjavík sérstaklega.
Þá er grein eftir Guðna Th. Jó-
hannesson um hlerunarmál og
uppljóstrara sem virðist hafa
leynst í röðum vinstrimanna árið
1968.
Auk þessa er grein um Kleóp-
ötru, fall Konstantlnópel og
Falklandseyjastríðið. Þá skoðar
Sagan öll einnig hversdags-
lega hluti. Þar undir fellur saga
ryksugunnar og fleira. Einnig
eru í blaðinu spurningar og svör,
sögugetraun og fjölmargir litlir
molar úr sögunni.
Ritstjóri tímaritsins er lllugi Jök-
ulsson.
Textar og mynd-
rænir þættir
Föstudaginn 23. febrúar
klukkan 17:00 verður sýningin
Að mynda orð opnuð f Hoff-
mannsgalleríi.
Sýningin samanstendur af
nýjum og eldri verkum mynd-
listarmanna og Ijóðskálda sem
notast bæði við texta og mynd-
ræna þætti í verkum sínum.
Eftirtaldir aðilar eiga
verká sýningunni:
Ásta Ólafsdóttir
Davíð Stefánsson
Eiríkur örn Norðdahl
Guðný Rósa Ingimarsdóttir
Gyrðir Elíasson
Haukur Ingvarsson
Hlynur Hallsson
Hreinn Friðfinnsson
Hörn Harðardóttir
Kári Tulinius
ÓskarÁrni Óskarsson
Stórsveit Áræðis
Þorvaldur Þorsteinsson
Sýningarstjórar eru Davíð Stef-
ánsson og Kristinn G. Harðar-
son.
Hoffmannsgallerí er staðsett í
húsnæði ReykjavíkurAkadem-
íunnar að Hringbraut 121, fjórðu
hæð, og er opið frá 09:00
- 17:00 alla virka daga. Sýningin
stendurfram í apríl.
Ævar Petersen fuglafræðingur „Ég vil
til dæmis beina þvi til málvisindamanna
að það eru næg verkefni í sambandi við
fuglaheiti sem gaman væri að rannsaka, til
dæmis hvað varðar uppruna fuglanafna."
I
at ;*n» ** V _ m-
Mynd/Frikki
IfStí
Myndir úr sögu fuglanafna
g mun fara yfir sögu
fuglanafna, hvernig þau
hafa þróast, hvaða heim-
ildir eru til, kem inn á ný-
yrði og fleira,“ segir Ævar
Petersen fuglafræðingur sem á laug-
ardag heldur fyrirlestur sem hann
nefnir Nokkrar myndir úr sögu
fuglanafna. Fyrirlesturinn, sem er
haldinn á vegum Nafnfræðifélags-
ins, verður í stofu 201 í Odda, húsi
Háskóla Islands, og hefst klukkan 13.
Hallfreður og fúlmár
1 fyrirlestrinum mun Ævar meðal
annars víkja að tengingu íslenskra
fuglaheita við þjóðsagnir. Þegar
hann er spurður hvort mikið sé tal-
að um fugla í íslenskum fornsögum
og þjóðsögum svarar hann: „Ég hef
langt í frá farið í gegnum þær allar,
en mér sýnist elsta dæmið úr íslend-
ingasögum vera orðið fúlmár sem er
fornt heiti á sjófugli sem við köllum
fýl nú á tímum og er til komið af því
hann spýtir lýsi, það er fúll máfur.
Hallfreður vandræðaskáld nefnir
þann fugl í vísu sem hann orti við
heimkomu frá Bretlandi og uppgötv-
aði að unnasta hans var gift öðrum.
Ýmis fuglanöfn eru nefnd í lögbókun-
um gömlu þar sem talað er um rétt
til veiða og fleira. Ekki síst ber að
nefna fuglaþulu í Snorra-Eddu. Þar
koma fram mörg fuglaheiti en við vit-
um ekki alltaf hvaða fuglar það eru.
Þegar Finnur Guðmundsson fugla-
fræðingur þýddi Fugla íslands og
Evrópu kringum 1960, sem var ansi
mikið afrek, þá varð hann að búa til
yfir 450 ný íslensk fuglaheiti og sótti
þá meðal annars í fuglaþuluna í
Snorra-Eddu. Gleða er til dæmis eitt
þeirra heita sem hann tók þaðan. í
fyrirlestrinum fer ég yfir þátt Finns
í nafngiftum á íslenskum fuglum.
Hann lagði ákveðna stefnu sem fólst
í því að vera ekki með tvínefni, nota
einungis eitt heiti yfir fugl, en áður
notuðu menn tvínefni eins og stóri
svartbakur og litli svartbakur."
Maður hefur á tilfinningunni að
í íslenskum þjóðsögum sé hrafninn
nefndur oftar en aðrir fuglar. Held-
urðu að það sé rétt?
„Þetta hefur ekki verið tekið sam-
an og gaman væri að gera gagna-
grunn yfir þjóðsögur íslendinga.
Ef ég hefði tíma myndi ég gera það
sjálfur því mér þykir mjög gaman
að þjóðsögum. Hrafn og örn koma
afar oft fyrir í þjóðsögum og hrafn-
inn sjálfsagt oftar en örninn. Fleiri
fuglar eru í þjóðsögum eins og jaðr-
akan sem sagður var plata menn
til að ganga út í á með kvaki sínu:
vaddútí, vaddútí og maríuerlur sem
sagðar voru boða skipakomur á vor-
in og síðan eru sögur um að stein-
deplar fljúgi undir kýr og mjólki
þær. Það er talsvert af þjóðsögum
um fugla."
Skemmtilegt rannsóknarefni
Nú heldur þú þennan fyrirlestur á
vegum Nafnfrœðifélagsins. Tengjast
fuglafrœðin og málvísindin á ein-
hvern hátt?
„Ég tel að þessar tvær fræðigrein-
ar geti unnið saman og stutt hvor
aðra. Ég vil til dæmis beina því til
málvísindamanna að það eru næg
verkefni í sambandi við fuglaheiti
sem gaman væri að rannsaka, til
dæmis hvað varðar uppruna fugla-
nafna. Það var líka nokkuð lands-
hlutabundið hér áður fyrr hvaða
orð menn notuðu yfir einstakar
fuglategundir. Jaðrakan á senni-
lega metið í þessu, en af því orði
eru til margar útgáfur. Fuglanöfn
eru skemmtilegt rannsóknarefni.
Það er sannarlega eitt og annað
varðandi fuglaheiti sem hægt er að
spjalla um og ég get áreiðanlega not-
að þær mínútur sem ég hef til um-
ráða í fyrirlestri minum.“
undan tilræöi
Á þessum degi árið 1861 kom
Abraham Lincoln og fylgdarlið
hans óvænt til Willard hótelsins í
Washington eftir að upp komst um
fyrirhugað banatilræði við hann.
Nokkrum dögum áður hafði Linc-
oln, þá nýkjörinn forseti, stigið upp
í lest í Illinois og ætlaði sér að hafa
viðdvöl í Baltimore á leið sinni til
Washington þar sem setja átti hann
inn í forsetaembættið. Skömmu
eftir að Lincoln steig upp i lestina
fengu aðstoðarmenn hans fréttir
af því að menn í Baltimore hygðust
ráða Lincoln af dögum vegna and-
stöðu hans við þrælahald. Lincoln,
sem var þrjóskur maður, vildi ekki
breyta áætlun sinni. Hann lét loks
undan þrábeiðni konu sinnar og
aðstoðarmenn hans skipuðu lest-
arstjóranum að halda rakleiðis til
Washington og stoppa ekki á leið-
inni. Þegar komið var til Washing-
ton fór Lincoln á Willard hótelið þar
sem hann gisti fram að innsetning-
arathöfninni sem var 4. mars.