blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
blaAiA
VEÐRIÐ I DAG
Hiýnar
Sunnan 10-18 og talsverð rigning
eða súld sunnan- og vestanlands en
úrkomuminna norðaustantil. Suðvest-
lægari í kvöld. Hlýnandi veður, hiti 5
til 11 stig.
ÁMORGUN
Bjartviðri
Suðvestan 8-13 m/s og súld
sunnan- og vestanlands fram
eftir degi, en annars hægari
suðvestlæg átt og bjartviðri.
Fremur hlýtt.
VÍÐAUMHEIM S
Algarve 17
Amsterdam 12
Barcelona 15
Berlín 14
Chicago 15
Dublin 8
Frankfurt 15
Glasgow 11
Hamborg 13
Helsinki 14
Kaupmannahöfn 13
London 7
Madrid 14
Montreal 1
New Vork 6
Orlando 18
Osló 13
Palma 20
París 5
Stokkhólmur 13
Þórshöfn 7
Á FÖRNUM VEGI
Hvernig líst þér á nýju
stjórnmálaflokkana?
Þorbjörg Kristín Þorgrímsdóttir
Hef ekki myndað mér skoðun á
þeim, enda búin að ákveða hvað
ég kýs.
Arnmundur Ernst Björnsson
Mér líst vel á þá, gott að auka
fjölbreytni.
Úlfur Hansson
Mér finnst gott að fá graent
hægriafl, en vona að þeir taki
ekki of mörg atkvæði frá VG.
Ragnar Jón Hrólfsson
Mér líst sérstaklega vel á fram-
þoð aldraðra.
Þorbjörn G. Kolbrúnarson
Ég finnst þetta vera flokkar með
skýr markmið, sem ég held að
muni auka fjölbreytni í íslenskum
stjórnmálum.
Bolungarvík Staða sveitar-
félagsins er mjög slæm og
ef ekki verður viðsnúningur á
næstunni stefnir í óefni.
Bolungarvíkurkaupstaður sendir neyðarkall til stjórnvalda:
Allt hefur verið reynt
■ Stefnir í óefni ■ Tekjur standa ekki undir þjónustu ■ Ekki af baki dottnir
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
„Við erum kannski ekki komin í þrot.
Það hefur hins vegar allt verið reynt.
Samt sem áður höfum við ekki getað
sinnt viðhalds- og endurnýjunar-
þörf. Við höfum ekki nógu miklar
tekjur til að standa undir þeirri
þjónustu sem við eigum að veita,“
segir Grímur Atlason, bæjarstjóri
í Bolungarvík. Hann kallar eftir að-
gerðum stjórnvalda til að grípa inn
í viðvarandi hallarekstur sveitarfé-
laga á landsbyggðinni. Segir hann
að undanfarin ár hafi sveitarfélagið
sýnt neikvæða rekstrarafkomu og
gengið hafi á fé sveitarsjóðs.
Bolungarvíkurkaupstað barst
sl. þriðjudag bréf frá eftirlitsnefnd
um fjármál sveitarfélaga þar sem
segir að ástæður hallareksturs sveit-
arfélagsins megi rekja til ríkissjóðs.
Grímur segir að i raun sé um tíma-
mótabréf að ræða. „Mér finnst at-
hyglisvert að í svari nefndarinnar,
sem heyrir undir ríkisstjórnina,
kemur fram svart á hvítu að orsakir
vandans eru ríkisvaldið. Þarna er
sett fram það sem við erum búnir
að halda fram í mörg ár og biðja um
leiðréttingu á.“
Það er mat nefndarinnar að or-
sakir fjárhagsvandans séu fækkun
íbúa, breytingar á atvinnulífi og
þróun tekjustofna sveitarfélaga.
Stærsti hluti tekna sveitarfélagsins
fer í rekstur lögbundinna verkefna
en það hefur ekki nægar tekjur til
að standa undir þeirri þjónustu sem
það nú þegar veitir. Verði ekki við-
snúningur í fjármálum sveitarfélags-
ins stefnir í óefni.
Grímur segir að fyrir 15 árum hafi
Bolungarvík staðið í blóma og mikil
uppbygging verið í bæjarfélaginu.
Síðan þá hafi orðið breytingar sem
sveitarfélagið ráði einfaldlega ekki
við. „Við tökum yfir grunnskólann,
það var farið með allt yfir í landflutn-
inga og útflutningstekjur hafnanna
um allt land hurfu. Tekjurnar til
að standa undir öllu þessu eru ekki
nógu miklar.“
Hann segir einkahlutafélaga-
væðingu fyrirtækja árið 2002 hafa
komið sérlega illa við sveitarfélögin.
„Fjöldi einkahlutafélaga í sveitarfé-
laginu tvöfaldaðist sem gerði það að
verkum að allir eru farnir að borga
skatt beint til ríkisins, en ekki okkar.
Hér á þessu svæði eru gríðarlega
mörg einkahlutafélög, allir sjómenn-
irnir eru til dæmis með einkahluta-
félög auk þess sem margir hafa selt
kvóta og lifa á vöxtunum. Við fáum
ekkert af því en fólk fær þjónustu.“
Grímur kallar eftir skýrri byggða-
Höfum ekki nægar
tekjur tll að standa
undlr þjónustu
sem við eigum að
velta.
Grímur Atlason, bæjar-
stjóri á Bolungarvík.
stefnu af hálfu ríkisvaldsins og segir
að tillögur eins og sameining sveit-
arfélaga, nefndarskipanir og aukin
úthlutun úr jöfnunarsjóði séu ein-
ungis plástralausnir. „Eftirlitsnefnd
á vegum ríkisstjórnarinnar segir
okkur að sama hvað við gerum, þá
getum við ekki brey tt þessu. Þarna er
verið að staðfesta það að ríkið eigi að
brey ta þessu. Mér finnst leiðinlegt að
hamra alltaf á þessu eins og við séum
alltaf að biðja um einhverja ölmusu.
Það er ákveðið viðhorf að það þýði
ekkert að byggja upp hér,“ segir hann
og bendir á að í Bolungarvík sé mikil
velta og mikil verðmætasköpun í
gangi. „Sveitarfélagið verður að geta
tekið þá peninga til sín til að reka
sína þjónustu fyrir þessa aðila sem
eru að skaffa þennan aur.“
Grímur segir þó Bolvíkinga langt
í frá af baki dottna. „Sveitarfélagið
hér er búið að spýta í lófana og við
erum að taka til í bænum. Ef við
stoppum brotnar allt niður og fer í
vonleysi."
Akureyri:
Reykur í
Listasafni
Slökkviliðið á Akureyri var
kallað til er starfsfólk listasafns í
bænum varð vart við reyk. Ekki
reyndist um bruna að ræða,
heldur hafði sígaretta sem hafði
verið kastað í niðurfall fyrir utan
safnið náð að kveikja smá glóð.
Viðkomandi reyndi að hella
vatni í niðurfallið, sem virðist
hafa ýtt reyknum á undan sér
sem kom upp inni í safninu.
Rússland:
Vill að Pútín
sitji áfram
Sergei Mironov, forseti neðri
deildar Rússlandsþings, lagði
fram tillögu að stjórnarskrár-
breytingu á þingfundi í gær, en
breytingin felur i sér að Vladimir
Pútín Rússlandsforseti getur
setið lengur í embætti. Mironov
vill að kjörtímabil forseta verði
lengt úr fjórum árum í fimm eða
jafnvel sjö ár, og að forseti gæti
setið lengur en tvö kjörtímabil.
Álverið á Reyðarfirði:
Starfsmanna-
hátíð í dag
Haldin verður starfsmanna-
hátíð hjá Alcoa Fjarðaáli í dag.
Tilefnið er að búið er að ráða á
þriðja hundrað manns til starfa
og á að sögn Ernu Indriðadótt-
ur, upplýsingafulltrúa Alcoa, að
bjóða starfsfólkið velkomið í dag.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
og Jón Sigurðsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, verða á meðal
þeirra sem munu taka þátt í
gleðinni. Alcoa Fjarðaál stefnir á
að gangsetja álverið um páskana.
straumsvik.is
Kynntu þér röksemdir fyrir stærra og betra álveri og
sjáðu myndband um stækkun álversins í Straumsvík.
straumsvik.is
■'síí* tijtfeite.
>I|||,|115E>TKA
ai-veK
Leigubílstjórar óánægðir með Nýju leigubílastöðina:
Sagðir hagræða skráningum
Óánægja ríkir meðal leigubíl-
stjóra vegna þeirrar ákvörðunar Rík-
iskaupa að taka tilboði Nýju leigu-
bílastöðvarinnar (NL) í akstur fyrir
ríkisstofnanir. Vilja þeir meina að
forsvarsmenn fyrirtækisins hafi hag-
rætt útboðsgögnum til að uppfylla
skilyrði til reksturs leigubílastöðva.
NL hefur kært framkvæmd útboðs-
ins og forsvarsmenn Hreyfils eru
að íhuga slíkt hið sama, en Hreyfill
fékk hluta útboðsins.
Fyrir rúmum tveimur vikum
sögðu 30 leigubílstjórar BSH og
Aðalbíla upp störfum eftir að NL
keypti Ný-ung sem þeir störfuðu
hjá. Töldu þeir sig ekki geta unnið
undir stjórn nýrra eigenda. 1 frétta-
bréfi sem dreift er til leigubílstjóra
er því haldið fram að NL reyni
að lokka til sín leigubílstjóra frá
öðrum stöðvum til að uppfylla skil-
yrði um rekstur leigubílastöðva. Er
því haldið fram að NL komi aldrei
til með að geta staðið við aksturinn
fyrir ríkisstofnanirnar.
Samkvæmt upplýsingum frá Vega-
gerðinni, sem hefur eftirlit með
skráðum starfsleyfum og þjónustu
þeirra, hefur NL yfir 10 starfsleyfum
að ráða eða nákvæmlega þeim fjölda
sem þarf til að uppfylla skilyrði. Af
þeim eru fjögur leyfi einnig skráð á
aðra leigubílastöð.
Einar Ágústsson hjá NL segir að
fyrirtækið sé með allt sitt á hreinu í
þessum efnum. „Starfsleyfið byggir
á þeim grunni sem kveðið er á um
í reglugerðinni. Vegagerðin fylgist
með þessu og þessi mál eru í full-
komnu lagi og hafa alltaf verið.“
Einar segir að óánægja leigubíl-
stjóranna sé að mörgu leyti byggð
á ótta og misskilningi. „Menn eru
loksins að koma með fjármagn og
hugmyndir inn á markaðinn. Það
hefur orðið stöðnun á markaðnum
og tekjur leigubílstjóra hafa lækkað.
Við höfum verið að skoða hvernig
hægt er að stunda leigubílarekstur
með nútímamarkaðsaðferðum. Það
hefur ekki verið gert.“