blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
blaðið
VÖRUSKIPTAHALLI
40 prósentum minni en í fyrra
INNLENT
Halli á vöruskiptum við útlönd nam 11,2 milljörðum
króna fyrstu tvo mánuði ársins samanborið við 18,7
milljarða á sama tíma í fyrra. Vöruskiptajöfnuðurinn
í janúar og febrúar var því 7,5 milljörðum krónum
skárri en sömu mánuði í fyrra.
VÆNDISKAUP
Sjjötíu prósent vilja refsa
Sjötíu prósent (slendinga segjast hlynnt þvi að kaup á vændi
verði refsiverð, samkvæmt niðurstöðum könnunar Capacent.
Tæpur helmingur segist mjög hlynntur tæpur fjórðungur frekar
hlynntur því. Tuttugu prósent eru frekar eða mjög andvíg því
að kaup á vændi verði refsiverð. Tíu prósent taka ekki afstöðu.
FARSÍMAÞJÓNUSTA
Síminn fær tíöni fyrir þriðju kynslóð
Póst- og fjarskiptastofnun hefur veitt Símanum
heimild til notkunar á tíðnisviði til uppbyggingar
og reksturs þriðju kynslóðar farsímanets. Síminn
stefnir að því að vera kominn í rekstur á kerfinu á
höfuðborgarsvæðinu í byrjun hausts.
Félag dúldagninga- og
veggfóðrarameistara
LÁTIÐ FAGMANN
VINNA VERKIÐ!
- Dúkalögn
- Veggfóörun
- Teppalögn
dukur@simnet. is - www.dukur.is
Síðasta námskeið vetrarins í fluguköstum hefst
sunnudaginn l.apríl íT.B.R.húsinu Gnoðavogi 1 kl 20:00.
Kennt verður 1., 15., 22. og 29. apríl.
Við leggjum til stangir.
Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.
Verð kr 8.500,- en kr 7.500.- tii félagsmanna,
gegn framvísun gilds félagsskírteinis.
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
KKR,SVFRogSVH ^
+ BETRI LEIÐ TIL
AÐ HÆTTA
FÁÐU REYKLAUSA BÓK
í NÆSTU VERSLUN
Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás
Borgarnes - Stykkíshóimur - Grundarfjörður - Búðardaiur - ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur
Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður
Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður • Reyðarfjörður - Eskifjörður
&LYFJA
www.lyfja.is ’ - Lifið hcil
Jón Karl Ólafsson Segir niður-
stöðuna fáránlega og aðferðir
Samkeppniseftiriits úreltar.
Icelandair sektað um 190 milljónir
Úreltar aðferðir
Samkeppniseftirlits
B Flugför undir kostnaöi H lcelandair áfrýjar 9 Raska samkeppni á þjóöfélagslega mikilvægum markaði
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurst@hi.is
„Sá staðalkostnaður sem Samkeppn-
iseftirlitið reiknar út er fáránlegur
og maður þarf ekki að gera annað
en að skoða fargjöld Ryan Air og
Easy Jet á eitt og tvö pund til að sjá
að þetta eru gjörsamlega úreltar að-
ferðir sem þeir eru að ætlast til að
við notum við okkar verðlagningu,"
segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice-
landair, um niðurstöðu Samkeppn-
iseftirlits um að Icelandair ehf. hafi
brotið gegn samkeppnislögum með
því að misnota sér markaðsráðandi
stöðu sína og bjóða flugfargjöld
undir kostnaðarverði. Fyrir vikið er
flugfélaginu gert að greiða 190 millj-
ónir króna í stjórnvaldssekt til ríkis-
sjóðs. Jón Karl segir að félagið muni
áfrýja niðurstöðunni.
Brotið átti sér stað á árinu 2004
þegar Icelandair bauð netfargjöld
fyrir 16.900 krónur á milli Kefla-
víkur og Kaupmannahafnar annars
vegar og Keflavíkur og London hins
vegar. Er það mat Samkeppniseftir-
lits að flugfélagið hafi notað hagnað
vegna sölu á dýrari fargjöldum, svo
sem viðskiptafargjöldum þar sem
Icelandair nýtur einokunarstöðu,
til að niðurgreiða netfargjöld sem
seld voru í samkeppni við Iceland
Express.
Ákvörðun Samkeppniseftirlits
má rekja til þess að eftir að Iceland
Express hóf að fljúga til umræddra
áfangastaða snemma árs 2003 brást
Icelandair við með þvi að bjóða
mun lægri fargjöld en áður höfðu
verið í boði hjá fíugfélaginu, svokall-
aða Vorsmelli, að upphæð 14.900
krónur. Iceland Express kvartaði
við samkeppnisyfirvöld, þar sem
flugfélagið taldi Icelandair bjóða
Vorsmellina undir kostnaðarverði
til að koma í veg fyrir að Iceland Ex-
press næði fótfestu á markaðinum.
Samkeppnisráð og síðar áfrýjun-
arnefnd samkeppnismála komust
að þeirri niðurstöðu að umrædd
fargjöld hefðu falið í sér skaðlega
undirverðlagningu sem hefði verið
misnotkun Icelandair á markaðs-
ráðandi stöðu og þar með brot gegn
samkeppnislögum. í upphafi árs
2004 bauð Icelandair svo ný netfar-
gjöld, svokallaða Netsmelli, á 2.000
krónum meira en Vorsmellina.
Aftur kvartaði Iceland Express og
komst Samkeppniseftirlit eins og
áður segir að þeirri niðurstöðu að
nýja verðið hafi einnig verið undir
kostnaðarverði. Telur Samkeppn-
iseftirlit brotið mjög alvarlegt þar
sem Icelandair reyndi að raska
samkeppni á markaði sem er þjóð-
hagslega mjög mikilvægur fyrir
íslendinga.
Áreitni í garð lögreglukvenna
Ekki af kynferðislegum toga
Embætti ríkislögreglustjóra
vísar því alfarið á bug sem fram
hefur komið I fréttum Blaðsins að
undanförnu að ekki sé tekið hart
á agamálum innan lögreglunnar.
Könnun sú sem fjallað hefur verið
um sé meingölluð að því leyti að afar
lítil þátttaka var í henni og ekki hafi
verið spurt beint um kynferðislega
áreitni eins og fram hefur komið.
Könnunin sem gerð var að frum-
kvæði Samtaka lögreglukvenna
á Norðurlöndum 2004 var úrtaks-
könnun og innan við 20 lögreglu-
þjónar tóku þátt. Orðalag spurning-
arinnar var hvort lögreglukonur
teldu sig vera í verri aðstöðu en
lögreglumenn er kæmi að líkum á
að verða fyrir áreitni af hálfu yfir-
manna eða samstarfsfélaga. Helm-
ingur kvennanna svaraði því til
að líkur á að kvenlögreglumenn
yrðu fyrir slíku væru miklar. Áber-
andi meirihluti þeirra svaraði því
einnig til að möguleikum kvenna
til frama innan lögreglu væri mjög
ábótavant.
Að sögn Páls Winkel hjá ríkislög-
reglustjóra hefur með markvissum
hætti verið unnið að því að bæta
starfsumhverfi lögreglumanna en
önnur íslensk könnun sem gerð
var 2004 sýndi að meirihluti lög-
reglumanna hafði orðið fyrir áreiti
í starfi. Þó var ekki spurt þar sér-
staklega um kynferðislega áreitni af
hálfu vinnufélaga.
Segir Páll að embættið hafi síðast-
liðin ár unnið víðtækar rannsóknir
á starfsumhverfi, rannsakað heiðar-
leika og siðferði innan lögreglu og
fylgst vel með starfsmannamálum.
Engu að síður eru tíu ár síðan
könnun á starfsumhverfi kvenlög-
regluþjóna var gerð sérstaklega,
þrátt fyrir ítrekuð áköll eftir slíkri
úttekt.