blaðið - 31.03.2007, Síða 10
blaðið
10
LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
N0REGUR“|
Vilja Vetrarólympíuleika í Tromsö
UTAN ÚR HEIMI
Norska íþróttasambandið hefur tilkynnt að það vilji að
Vetrarólympíuleikarnir verði haldnir í Tromsö árið 2018.
Ósló og Þrándheimur höfðu einnig sóst eftir útnefningu.
Ákvörðun Alþjóðaólymþíusambandins um hvar leikarnir
verða haldnir verður tekin eftir fjögur ár.
Maóistar í ríkisstjórn
Maóistar munu skipa fimm ráðherraembætti í
nýrri ríkisstjórn Nepals. Þetta var ákveðið eftir
fund leiðtoga stærstu stjórnmálaflokkanna og
maóista í gær. Ný bráðabirgðastjórn starfar fram
að kosningum sem fara fram síðar í ár.
íslamistar líflátnir
Sex íslamskir uppreisnarmenn voru hengdir í
Bangladess eftir að hafa verið fundnir sekir um
að myrða tvo dómara í sprengjuárásum 2005.
Hryðjuverkahópurinn beindi árásum sínum að
dómurum sem ekki fylgdu sjaríalögum.
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
ferðir
Þriðjudaga
Auglýsingasíminn er
510 3744
m
Iönaðarráðuneytið:
Olíuleit á
Drekasvæðinu
Iðnaðarráðuneytið hefur lagt
til að gefin verði út sérleyfi til
leitar, vinnslu og rannsókna á
olíu og gasi á norðanverðu Dreka-
svaeðinu við Jan Mayen-hrygginn
eða á vænlegustu svæðum innan
þess. Hefur ráðuneytið lagt fram
til umsagnar skýrslu með tillögu
að áætlun um útgáfu sérleyfanna
ásamt drögum að umhverfismati
þeirrar áætlunar.
I tillögunni kemur fram að finn-
ist olía og gas í vinnanlegu magni
á Jan Mayen-hryggnum gæti slíkt
haft kröftug efnahagsleg áhrif
á íslenskan þjóðarbúskap. Gæti
landsframleiðsla hækkað umtals-
vert þegar framkvæmdir og fram-
leiðsla standa sem hæst í olíugeir-
anum. Er reiknað með að tekjur
ríkissjóðs hækki verulega.
Fram kemur að ef ákveðið
verði að hefja leyfisveitingarferli
í samræmi við framangreindar
tillögur taki við frekari undir-
búningsvinna. Er gert ráð fyrir
því að framundan sé að minnsta
kosti eins til tveggja ára vinna
áður en hægt verði að úthluta
sérleyfunum.
Flott hugmynd að
fermmgargjö f
High Peak Redwood Fermingartilboð
svefnpoki —
Þægilegur að -3C° y
Mesta kuldaþol -20C° Verö áður , gg0 k.
UTILIF
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 o GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 o KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Varalið dómsmálaráðherra:
Tindátaleikur
fullorðinna
■ Ekki heimild fyrir hernaðarlegum aðgerðum
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
,Björn Bjarnason hefur lengi haft
þann draum að koma upp her á ís-
landi. Nú hefur hann lagt fram til-
lögur að 240 manna varalögreglu,
sem miðað við lýsinguna er ekkert
annað en vísir að íslenskum her,“
segir Össur Skarphéðinsson, þing-
maður Samfylkingarinnar, á heima-
síðu sinni um nýtt frumvarp dóms-
og kirkjumálaráðherra. Össur segir
hugmyndina fráleita, og að engan
rökstuðning megi finna fyrir því
sem hann kallar „ástríðu dóms-
málaráðherra fyrir tindátaleik fyrir
fullorðna".
í frumvarpinu er lagt til að
ákvæði eldri lögreglulaga um vara-
lið lögreglu verði lögfest á ný. Vara-
liðsmenn eiga að koma úr röðum
björgunarsveitarmanna.slökkviliðs-
manna, öryggisvarða, friðargæslu-
liða og fyrrverandi lögreglumanna.
Verkefni þeirra verður meðal ann-
ars að „aðstoða lögreglu við að
halda í skefjum ofbeldisfullum
mótmælum, gæta öryggis við stærri
alþjóðlega fundi eða opinberar
heimsóknir og koma að viðbúnaði
vegna almannavarnaástands," eins
og segir í frumvarpinu.
Slíkt ákvæði var í gildi frá árinu
1940 til ársins 1996. Sagðist Björn
Bjarnason í erindi sem hann flutti á
fundi Samtaka um vestræna samm-
vinnu og Varðbergs ekki vita hver
rökin fyrir að fella ákvæðið úr gildi
væru. I erindinu sagði hann einnig
að íslenskum stjórnvöldum væri
alls ekki um megn að taka á sig
öryggisskyldur sjálfstæðs ríkis og
bregðast við ógnum með skjótum
og skilvirkum hætti til að tryggja
og verja öryggi borgara sinna.
Samkvæmt frumvarpinu verður
uppbygging og þjálfun hins 240
manna varaliðs á ábyrgð rikislög-
reglustjóra. Reiknað er með að
fastur árlegur rekstrarkostnaður
verði um 222 milljónir króna á ári,
þar af fara 440 þúsund krónur til
hvers varaliðsmanns. Við það bætist
breytilegur launakostnaður vegna
útkalla. Stofnkostnaður verður sam-
kvæmt frumvarpinu 244 milljónir
króna.
I pistli á heimasíðu sinni á
fimmtudaginn undrast Björn að
fréttamenn RÚV skuli hafa talið að
umrætt varalið yrði herlið. Islensk
stjórnvöld hafi ekki heimild til að
sinna hernaðarlegum verkefnum.
I frumvarpinu er þó ýmislegt sem
virðist skírskota til einhvers konar
herliðs, og í umsögn um frum-
varpið segir m.a.: „Frumvarpið er
lagt fram í ljósi breyttra aðstæðna
eftir brotthvarf varnarliðsins.“
Netreikningur SPK
“S 14,60%
Tryggðu sparifé þínu topp ávöxtun
Sæktu um á www.spk.is
M.v. vaxtatöflu SPK 21. 03. 2007