blaðið - 31.03.2007, Síða 18

blaðið - 31.03.2007, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 blaðiö 0 ' C-IOOO Extra íterkt, náttúrulegt C-vftamín meö rósáberjum, rOrtinl og bíóflavóniöum 60 töflur Sólargeislinn í skammdeginu vÖ®? Hheilsa -haföu þaö gott Qabor rj ryyr<\ & v\ v 4* 2 Z o z :0 Q. Mikið úrval af GABOR skóm ó ótrúlegu verSi. Einstakl tækifæri! SPÖNGINNI S: 587 0740 Tvísýnar kosningar í dag um stækkun álversins: Afstaða Hafnfirðinga sveiflast til og frá ■ Fylkingar á kaffihúsum ■ Fasteignaverð lækkar ■ Stækkun skaffar atvinnu Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Já-menn hafa setið hérna megin og nei-menn hinum megin.“ Þetta sögðu nokkrir fastagestir kaffihúss í Hafnar- firðinum í gær þegar þeir lýstu stemn- ingunni í bænum fyrir kosningarnar um stækkun álversins í Straumsvík í dag. Umræðurnar hafa orðið heitari eftir því sem nær hefur dregið kosn- ingunum, ekki bara á kaffihúsunum heldur einnig á vinnustöðum og heim- ilum. Sumir hafa skipt um skoðun nokkrum sinnum. „Fólk sveiflast til og frá og er þá auðvitað að hugsa um atvinnuna,“ segir Hulda Tryggvadóttir sem sjálf er andvíg stækkun álversins. Eiginmaður hennar er hins vegar fylgjandi stækkuninni, að því er Hulda greindi frá í gær. „Hann er það núna, en hann breytir vonandi aftur um skoðun." Hulda kveðst ekki vilja láta skemma umhverfið meira en gert hefur verið, eins og hún orðar það. Auk þess óttast hún að verð á fast- eignum í grennd við álverið muni lækka verði stækkun samþykkt. „Þær verða ekki eftirsóknarverðar," leggur hún áherslu á. Hún lýsir yfir ánægju sinni með að fá að kjósa um stækkunina og telur jafnvel að íbúar Reykjaness hefðu líka átt að fá að segja álit sitt á málinu. Kosninga- baráttan hefur hins vegar einkennst af of miklum áróðri að mati Huldu. „Þrýstingurinn hefur verið mikill, börnum hafa verið gefnar gjafir og bæklingar sendir heim. Þetta hefur verið alltof mikill áróður.“ Haukur Helgason segir ekki hægt að skammast yfir því þótt álverk- smiðjan hafi verið að kynna mál sitt. „En það hefði í sjálfu sér mátt veita meira fé til hins aðilans til að kynna sína afstöðu.“ Haukur, sem vill ekki gefa upp hvort hann greiðir með eða móti tillögunni að deiliskipulaginu sem gerir ráð fyrir stækkun álvers- ins í Straumsvík, tekur það fram að hann sé afar ánægður með að hafa rétt til að segja hug sinn. Aðspurður hvort fleiri en Hafnfirðingar hefðu átt að fá að kjósa segir hann að íbú- arnir við Þjórsá eigi að fá að kjósa um hvort raforkuver verður reist þar. Torfhildur Steingrímsdóttir er fylgj- andi stækkun álversins. „Það skaffar atvinnu. Ég er nú það gömul í hett- unni að ég man eftir atvinnuleysi hér í bænum. Þegar ég var ung var bara vinna hér í hafnargarði og grjóti fyrir verkamenn og svo náttúrlega sjórinn.“ Hún hefur ekki áhyggjur af meiri mengun verði stækkun álversins samþykkt. „Ég held að það séu það góð hreinsitæki þarna. Það getur svo sem vel verið að þetta hafi ein- hverjar slæmar afleiðingar en at- vinnan skiptir miklu máli.“ Jón Snorri Bergþórsson er einnig fylgjandi stækkun álversins. „Ég hef haft hag af þessu. Ég sel vörur í þessum geira,“ segir Jón sem kveðst hvorki hafa áhyggjur af of mikilli mengun né of miklum virkj anaframkvæmdum. Davíð Unnsteinsson var í gær ekki búinn að taka ákvörðun um hvernig atkvæði hans myndi falla. Hann viðurkenhir að hafa sveiflast svolítið til og frá. „Það er mikið í húfi. Það eru mengunarmálin og svo finnst mér spurningum um virkjanamál ekki svarað nægilega vel. Það er enn margt óljóst.“ Anægður að fá að kjósa Haukur Hetgason Sveiflast til og frá Davíð Unnsteinsson Skemmir umhverfið Hulda Tryggvadóttir Hef hs Snorri ssu Jón Stækkunin skaffar atvinnu Torfhildur Steingrímsdóttir ■ Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Sverrir Einarsson Hermann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskaö er Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Ltkflutningar Grunnskólanemar mótmæla stækkun álvers Nemendur ígrunnskólum Hafnarfjarðar komu saman á Thorsplani í gær til að mótmæla fyrirhugaðri stækkun álvers Alcan í Straumsvfk. Þeir hafa ekki aldur til að taka þátt í kosningu bæjarins á laugardaginn og ákváðu í staðinn að koma sínum skoðunum á framfæri með þessum hætti.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.