blaðið - 31.03.2007, Page 43
blaðið
LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 43
Runólfur Ágústsson
hefur undanfarna
mánuði unnið að
stofnun háskóla
á Suðurnesjum,
nánar tiltekið á
svæði gamla Kefla-
víkurflugvallarins. Runólfur hefur
unnið að þessu verkefni allt frá
því hann lét af störfum rektors við
Háskólann á Bifröst árið 2006 en
því embætti gegndi hann í átta ár
og í hans rektorstíð urðu miklar
breytingar á skólanum. Runólfur
sagði af sér embætti eftir að miklar
deilur hófust um skólann og stjórn-
unarstíl hans.
„Ég var ekki búinn að vera at-
vinnulaus nema í nokkra klukku-
tíma þegar Suðurnesjamenn
hringdu í mig. Þeir höfðu fengið
hugmynd um að nýta byggingar á
vellinum til að skapa þar háskóla-
samfélag. Mér fannst hugmyndin
frekar súrrealísk en féllst á að skoða
hana og er búinn að vera að vinna
að þessu verkefni síðan. Það hefur
gengið ævintýralega vel. Sumar
hugmyndir sem maður kemur að
versna eftir því sem maður kafar
dýpra í þær en þessi hefur tekið
flugið. Þetta mál er drifið áfram
af Reykjanesbæ en Árni Sigfússon
bæjarstjóri hefur unnið ötullega að
þessu máli með mér síðustu mán-
uði,“ segir Runólfur.
Skortur á alþjóðleika
Er þörfá að bœta við háskóla á
Islandi og hvað á sá skóli að gera?
„Fyrsti hlutinn af minni vinnu var
að skoða hvort einhvers staðar væri
svið sem íslenskir háskólar hafa
ekki verið að sinna. Þar blasir við
að íslenska háskóla skortir aukinn
alþjóðleika og hafa einnig sinnt alls
kyns starfstengdu námi mjög illa.
Við ætlum að bæta úr því og erum til
dæmis að vinna að stofnun flugaka-
demíu þar sem hugmyndin er að allt
nám sem snertir flug á Islandi verði
undir einum hatti.
Það má segja að við skilgreinum
skólann í þrjá meginþætti. Það er
í fyrsta lagi orku-, umhverfis- og
auðlindaþátturinn sem felst í raun-
vísinda-, verk- og tækninámi, í öðru
lagi flug-, samgöngu- og þjónustu-
þátturinn sem snýr meðal annars
að viðskiptatengdu námi og í þriðja
lagi öryggismála-, alþjóða- og stjórn-
málaþátturinn sem snýr að félags-
vísindunum. Við fáum til liðs við
okkur leiðandi islensk fyrirtæki sem
verða lykilhluthafar í skólanum og
munu vera með beina faglega inn-
komu í uppbyggingu náms við skól-
ann. Einnig er samstarfið við okkar
stærsta og öflugasta háskóla, Háskóla
íslands, lykilatriði, en hann mun von-
andi verða hin akademíska kjölfesta
skólastarfsins.
Við ætlum líka að stofna frum-
greinadeild sem er nám fyrir 24 ára
og eldri og er eins eða tveggja ára
aðfaranám að háskólanámi. Frum-
greinadeildin mun gagnast Suður-
nesjabúum með beinum hætti og
*
LIÐ-AKTÍN
GXTRA
Glucosaminc & Chondroitin
Heldur liöunum
liðugum!
-hafðu þaö gott
„Ég var fínn rektor. Mérfinnst bara miklu meira spenn-
andi að vinna við uppbyggingu fremur en að sinna
akademískri stjórnsýslu þar sem þarfað ríkja ró ogfesta
flestum stundum. Ég er að sumu leuti ofmikil óhemja í
slíkt starf."
skapa fjölda fólks þar tækifæri til
háskólanáms. Slík deild hefur verið
rekin bæði í HR og á Bifröst. Þar var
reynsla okkar sú að þetta fólk var yfir-
leitt að meðaltali betri nemendur og
þroskaðri heldur en krakkarnir sem
koma beint úr framhaldsskóla. Það
verður okkar fyrsta verkefni að koma
þessari deild á strax í haust og fara
svo af stað með háskólastarfsemina
árið 2008“
Aldrei aftur rektor
Verður þú rektor þessa nýja
háskóla?
„Ég vann sem lögfræðingur í sjö ár,
svo datt ég inn á Bifröst eins og fyrir
tilviljun. Lífið gerist reyndar trúi ég
mestan part fyrir tilviljun. Mér finnst
gaman að vinna í þessum geira og
samspilið milli háskóla og samfélags,
atvinnulífs og umhverfis finnst mér
mjög spennandi. Ég ætla hins vegar
aldrei að verða rektor aftur.“
Afhverju ekki?
„Maður á aldrei að endurtaka sig.“
Varstu ekki góður rektor?
„Ég var fínn rektor. Mér finnst bara
miklu meira spennandi að vinna við
uppbyggingu fremur en að sinna aka-
demískri stjórnsýslu þar sem þarf að
ríkja ró og festa flestum stundum.
Ég er að sumu leyti of mikil óhemja
í slíkt starf.“
Þú hrökklast úr rektorsembœtti
á Bifröst vegnagagnrýni einhverra
innanbúðarmanna. Var það ekki
erfitt?
„Ég vil ekki segja að ég hafi hrökkl-
ast þaðan. Þetta var mitt val. Ég var
búinn að fá nóg og vildi gera eitthvað
annað. Ég er afskaplega lítið fyrir það
að velta mér upp úr fortíðinni en það
voru mikil átök á Bifröst um stjórnun
og stefnu skólans og það var alveg
nýtt fyrir mér að þurfa að standa í
varnarbaráttu. Það þurfti ég að gera í
hálft ár. Ég sá fram á að ég myndi lok-
ast inni í vörninni út minn ráðningar-
tíma. Það hefði hvorki verið gott fyrir
skólann né mig.“
Einkalíf ereinkamál
Hvað var það sem menn voru
ekki sáttir við?
„Það þjónar litlum tilgangi að velta
því fyrir sér af hverju einhverjir
meðal starfsmanna vildu ekki áfram-
haldandi vöxt skólans heldur vildu
bíða rólegir og ná festu, sem er ekkert
óeðlilegt sjónarmið. Háskólar eru lít-
ill heimur út af fyrir sig og þar eiga
menn á hættu að loka sig af og skilja
ekki þá þróun sem á sér stað í sam-
félaginu. Einhverjir vildu til dæmis
ekki að skólinn breyttist úr viðskipta-
háskóla í háskóla eins og hann gerði.
Það sem fyllti mælinn hjá mér var
Láttu drauminn rœtast
frábœr fermingartilboö á
rúmum & svefnsófum
Karolin tungusvefnsófi Karolin 3ja sæta svefnsófi
Suprima
90x200cm v/33.280,- áður 4 i .000,-
1 20x200cm v/ 42.400 - áður 53.000.
1 40x200cm V/ 49.360 - áður b i .700.
&0
•f«*
>3
o
Opið virka daga 10 til 18
laugadaga 11 til 16
HUSGAGNAVERSLUN
TOSCANA
SMIÐJUVEG
KOP S : 5 8 7 6090
HÚSGÖGNIN FÁSTEINNIG i HÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535