blaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007
blaðiA
Einar Bárðarson hefur í nógu að snúast þessa dagana
Það má með sanni segja að Einar Bárðarson sé umboðs-
maður íslands enda vinnur hann hörðum höndum þessa
dagana að því að koma Garðari Thór Cortes og Nylon
áframfæri í Bretlandi. Það er því nóg að gera og hann
viðurkennir þaðfúslega að þetta gæti hann varla nema af
því að hann hefur sterka konu sér við hlið. Einar gafsér
þó tíma til að ræða við Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmunds-
dóttur á leið sinni áflugvöllinn þar sem hann sagði
henni meðal annarsfrá nýafstaðinni afmælisveislu sinni.
Eg varð 35 ára um dag-
inn og ákvað að fagna
tímamótunum með stæl.
Þetta er nú ekki stóraf-
mæli en fyrst hægt var
að boða til veislu þá
ákvað ég að gera það. Ég óttast ekki
að eldast en ég sé enga ástæðu til að
nýta ekki tímann á meðan ég eldist
til að gera eitthvað skemmtilegt. Mér
finnst aldur vera mjög afstætt hug-
tak og ég hef gaman af því að takast
á við það, eins og hvað annað sem ég
tekst á við í lífinu. Ég er samt orðinn
meira upptekinn af því að reyna að
fara vel með mig svo vélin standist
álagið til langs tíma. Sennilega fer
ég ekki nógu vel með mig, allavega
ekki miðað við álagið síðustu daga.
Það tekur svolítið á að vera alltaf að
þvælast á milli landa en ég þarf að
vera á íslandi á föstudögum í X-Fak-
tor og vera kominn til Bretlands á
mánudagsmorgnum."
Stór auglýsingaherferð
Einar vinnur að miklum hluta til
í Bretlandi en hann á og rekur plötu-
útgáfuna Believer Music ásamt FL
Group. „Útgáfan hefur gefið út smá-
skífur með Nylon og framundan er
stór plata með Garðari Thór Cortes
sem kemur í verslanir í London 16.
apríl. Garðar hefur fengið gríðar-
lega góðar viðtökur þar sem hann
hefur náð að drepa niður fæti en
þetta er vitanlega stórt land, margir
fjölmiðlar og mikill hávaði á mark-
aðnum. Þegar plata kemur út á
íslandi þá verða allir varir við það
því viðkomandi listamaður er í við-
tali á FM, Bylgjunni og Rás 2 ásamt
því að birtast í Kastljósi og Islandi
í dag. Hérna eru miðlarnir miklu
fleiri og töluvert erfiðara að kom-
ast að hverjum og einum. Þetta er
mikil vinna og mikið happdrætti,“
segir Einar sem segist vona að
platan gangi vel. „Það er náttúrlega
hátt reitt til höggs og það er búið að
leggja gríðarlega mikið í þetta, bæði
vinnu og fjármagn. Við erum að
fara í einhverja stærstu auglýsinga-
herferð sem hefur verið farið í fyrir
íslenskan listamann. Við verðum
með íoo fermetra auglýsingaskilti
sem mun hanga yfir Oxford Street
og um 30 milljónir fara í sjónvarps-
auglýsingar fyrstu vikuna. Við
gerum eins og stóru plötufyrirtækin
myndu gera, í þeirri von að uppskera
þótt það sé alls ekki víst.“
Andvígur hvalveiðum
Aðspurður hvort sú staðreynd að
Garðar og Nylon séu íslensk veki
einhverja athygli segist Einar ekki
vera viss um það. „Það væri voða
gaman að segja það en ég hef ekki
orðið var við að það taki neinn heljar-
stökk yfir því að þau séu frá íslandi.
Það hjálpaði sannarlega ekki í haust
þegar hvalveiðarnar byrjuðu og þá
vildi ég helst stinga þjóðerninu ofan
í tösku. Það verður að segjast eins
og er að við fundum mjög fyrir því
í útgáfu seinni smáskífunnar hjá
Nylon. B-hliðin hafði farið í fyrsta
sæti á breska danslistanum en náði
miklu minni árangri í sölu. Þetta
var ótrúlega óheppileg tímasetning
því platan kom í búðir daginn eftir
að Bretar sýndu frá því þegar við
slátruðum fyrsta hvalnum í Hval-
firði. Það var svona „anti“ íslensk
dagskrá í fréttunum allan þann
sunnudag. Hvort sem það hafði
lykiláhrif á allt saman eða ekki, þá
hjálpaði það sannarlega ekki til,“
segir Einar sem er andvígur hval-
veiðum. „Mér finnst hvalveiðar ís-
lendinga vera algjör vitleysa. Það er
engin þörf á þessu enda liggur kjötið
ennþá óselt einhvers staðar upp í
fjöru og rotnar þar. Þetta er ekkert
annað en eyðilegging á því góða orð-
spori sem lslendingar í viðskiptum
hafa skapað auk þess sem þetta fer
illa með ímynd landsins. Ég er að
sjálfsögðu fylgjandi því að þjóð eins
og ísland eigi ekki að láta kúga sig
til einhverrar ákvarðanatöku sem
þeir eru ekki ánægðir með en það
er hálfgerður kjánaskapur að taka
ákvörðun sem heilu þjóðirnar, eins
og til dæmis Bretland, setja sig á
móti.“
Erduglegur
Ástæðan fyrir því að Einar fór
út í þennan bransa segir hann að
sé áhugi fyrir tónlist auk þess sem
hann hafi ekki fundið sig sem flytj-
anda og hafi ekki gaman af því að
vera uppi á sviði. „Mig langaði að
starfa í tónlist og þetta var einhver
farvegur sem ég fann. Ég lærði mark-
aðsfræði í Ameríku og ætlaði alltaf
að fá mér alvöru vinnu en það varð
ekkert af því. En markaðsfræðin
nýtist mér vitanlega í þessu starfi.
Ég stofnaði Concert árið 2000, rak
það einn i sex ár en seldi hluta af því
til Senu í haust. Það má því segja að
árið 2000 hafi ég tekið ákvörðun um
Prófaðu uppáhaldslitinn
þinn ókeypis!
Sannreyndu frábæra stemmingu málaranna Atla
og Gísla heima hjá þér. Veldu þér ókeypis prufudós
með uppáhaldslitnum þínum. Þú getur valið um
900 litbrigði Fltigger gefur lífinu lit!
Sæktu þér góð ráð og leiðbeiningar i næstu
FILigger verslun og á www.flugger.is
Flligger litir
Reykjavík Stórhöfði 44 • Snorrabraut 56 ■ Skeifunni 4
Kópavogur Bæjarlind 6
Hafnarfjörður Dalshraun 13
Keflavík Hafnargata 90
Akureyri Austursíða 2
Borgarnes Egilsholt 1