blaðið - 31.03.2007, Síða 50
blaðið
Borgaraþing Reykvíkinga
Borgaraþing Ibúasamtaka í Reykjavík verður haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur
í dag klukkan 13. Þar gefst borgarbúum tækifæri til að hlusta á fjóra fyri;-
lestra um íbúalýðræði og borgarskipulag. Borgarfulltrúar, borgarstjóri og
ráðamenn taka þátt í þallborðsumræðum.
LAUGARDAGUR 31.
helgin@bladid.net
Tónleikar við kertaljós
Trúbadorinn Hörður Torfa verður með Kertaljósatónleika
í stóra sal Borgarleikhússins mánudagskvöldið 2. apríl
klukkan 20. Á tónleikunum mun Hörður flytja nýtt efni (
við gamalt.
UM HELGINA
Lúðraþytur i Salnum
Blásarasveit Reykjavíkur heldur
tónleika í Salnum í dag klukkan
17. Á tónleikunum verða flutt
verk eftir tónskáldin Richard
Strauss, Kurt Weill og Bene-
dikt Hermann Hermannsson.
Aðgangur er ókeypis og eru
allir velkomnir á meðan húsrúm
leyfir.
Kórverk frá 19. öld
Söngsveitin Fílharmónía flytur •
þrjú kórverk frá 19. öld á tón-
leikum í Langholtskirkju annað
kvöld kl. 20. Einsöngvarar eru
Hulda Björk Garðarsdóttir,
Nanna Maria Cortez, Jónas
Guðmundsson og Alex
Ashworth.
Tríó í Salnum
ÚrslitakvöKd Músíktilrauna í Hafnarhúsinu
Metalcore fyrir
Hyperion-tríóið frá Þýskalandi
leikur á Tíbrár-tónleikum í
Salnum í Kópavogi á morgun,
sunnudag, kl. 20. Á efnisskránni
eru þrjú verk, Píanótríó í E-dúr
eftir Mozart, Erkihertogatríóið
eftir Beethoven auk nýs tríós
eftir Atla Heimi Sveinsson.
Norrænn djass
íslensk-færeyska tríóið TRISFO
heldur tónleika í tilefni af útgáfu
disksins The North Atlantic
Empire í Norræna húsinu á
morgun, sunnudag, kl. 20.
Músíktilraunir hafa
í 25 ár verið útung-
unarstöð fyrir unga
og efnilega tónlistar-
menn og nægir að
benda á að hljómsveitir á borð við
Maus, Mínus og Jakobínarínu vöktu
fyrst athygli með sigri í tilraununum.
Nýtt nafn bætist á lista sigursveitanna
i kvöld en þá verður úrslitakvöld Mús-
íktilrauna 2007 haldið í Listasafni ■
Reykjavíkur (Hafnarhúsi). Upphaf-
lega stóð til að halda keppnina í Ver-
inu en þar sem ekki fékkst leyfi fyrir
því þurfti að finna nýtt húsnæði á
síðustu stundu. Árna Jónssyni, verk-
efnastjóra Músíktilrauna, líst engu að
síður vel á staðinn enda tekur húsið
tæplega 600 áhorfendur og enn frem-
ur eru aðstæður til tónleikahalds þar
með besta móti.
„Maður sér á böndunum að þeim
finnst alveg geggjað að spila við þess-
ar aðstæður hvernig sem fer hjá þeim.
Þarna er alvöru hljóð- og ljósakerfi,
fullur salur og stemning. Ég held að
það sé mikið kikk fyrir svona unga
listamenn,“ segir hann.
Keppnin hefst klukkan 17 en hús-
ið verður opnað klukkutíma fyrr og
miðasalan um leið. Miðað við reynslu
fyrri ára er betra að hafa hraðar hend-
ur ef menn vilja tryggja sér miða.
,Það hefur nánast alltaf orðið uppselt
á fyrsta hálftímanum eftir að miðasal-
an er opnuð þannig að ég hvet fólk til
að mæta tímanlega," segir hann.
Níu manna dómnefnd hefur það
erfiða verkefni með höndum að velja
sigursveitina en atkvæði áhorfenda
hafa þó 30% vægi. „Það getur skipt úr-
slitamáli ef það eru mjög skiptar skoð-
anir í dómnefndinni,“ segir Árni.
„Ég veit að það voru líka
einhverjar ömmur sem
mættu á undankvöldunum.
Þá var náttúriega veríð að
smala atkvæðum. Það get-
ur veríð erfítt fyrír þær að
sitja undir metalcorínu en
efá þarfað halda björgum
við fólki með eymatappa á
meðan birgðir endast."
Útvega eyrnatappa
Þar sem áhorfendur geta haft svo
mikil áhrif á úrslit keppninnar eru
hljómsveitirnar duglegar við að
smala áhangendum sinum, vinum
og vandamönnum á staðinn. Árni
segir að það færist í vöxt að foreldr-
ar komi og styðji krakkana sína sem
honum finnst mjög ánægjulegt. „Það
Ballerínu skór
Litir: Hvítt, svart, silfur,
gyllt og Leopard.
Verö 3995
ATH!
opiö til kl 21:00
fimmtudag
Skóverslun Kringlunni 8-12
Fjölbreytt dagskrá
Fjalakattarins
ömm
er meiri stuðningur við krakka sem
eru í þessu. Þetta hefur alveg sama
gildi og íþróttir. Nú eru margir
unglingar sem eru ekki endilega að
stunda íþróttir en eru í þessu. Ég veit
að það voru líka einhverjar ömmur
sem mættu á undankvöldunum. Þá
var náttúrlega verið að smala atkvæð-
um. Það getur verið erfitt fyrir þær
að sitja undir metalcorinu en ef á
þarf að halda björgum við fólki með
eyrnatappa á meðan birgðir endast,“
segir Árni.
Metalcore verður langt í frá eina
tónlistarstefnan sem kemur til með
að hljóma í Hafnarhúsinu í kvöld
enda segir Árni að mikil fjölbreytni
einkenni hljómsveitirnar ellefu sem
taka þátt í úrslitum.
„Þetta er svolítið mikið rokk og svo
er líka eitt stórt band sem heitir <3
Svanhvít. Það er tíu manna band og
það er að spila á potta og ýmis áhöld
fyrir utan hefðbundin hljóðfæri eins
Jjölbreytt líival afmndfatnadi
M)
wf
I
séhdiiig
Stœrðir
3S-50
Fjalakötturinn stendur fyrir
kvikmyndasýningum í Tjarnarbíói
á morgun og á mánudag og þriðju-
dag. Tvær kvikmyndir sem gerast á
áhrifasvæði Þriggja gljúfra stíflunn-
ar í Kína verða sýndar á morgun,
annars vegar Kyrrmynd kl. 20 og
Dong kl. 22:15. Kyrrmynd vann til
aðalverðlauna á kvikmyndahátíð-
inni í Feneyjum á síðasta ári. Þriggja
gljúfra stíflan hefur gríðarleg áhrif á
samfélag og umhverfi og fjalla mynd-
irnar um þau með ólíkum hætti.
Heimildarmyndfranskarithöfund-
arins og kvikmyndagerðarmanns-
ins Jacques Debs verður frumsýnd á
mánudagskvöld kl. 21. Debs verður
sjálfur viðstaddur frumsýninguna
og svarar spurningum áhorfenda.
Myndin fjallar annars vegar um
múslíma í Evrópu og hins vegar um
kristna í Mið-Áusturlöndum. Þess
má geta að íslenski söngvarinn Sverr-
ir Guðjónsson söng frumsamda tón-
list kvikmyndarinnar á armensku.
Fyrr um daginn verða sýndar jap-
önsku myndirnar Veröld Geisjunnar
(kl. 17) og Ástarinnar krókaleið (kl.
19)-
Kviksaga stendur fyrir sýningu á
heimildarmyndinni Our Nation: A
Korean Punk Rock Community á
þriðjudag kl. 20. Þar að auki mun
Kristinn Schram þjóðfræðingur
sýna brot úr eigin verki, Negotiating
the City, sem fjallar um rannsókn
hans á frásögnum leigubílstjóra í Ed-
inborg.
Þá verður myndin Rauðhærða kon-
an sýnd kl. 22. Nánari upplýsingar
má nálgast á vefslóðinni filmfest.is.