blaðið - 28.04.2007, Page 4

blaðið - 28.04.2007, Page 4
4 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 blaðið HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Með fíkniefni í vinnunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á 120 grömm af marijúana í fyrirtæki í borginni á fimmfu- dag. Þá fannst lítilræði af ætluðu amfetamíni í neyslu- skömmtum. Fertugur karlmaður var handtekinn vegna málsins sem telst að mestu upplýst. árAs á leigubílstjóra Alvarlega slasaður eftir árás unglinga Tveir 16 ára farþegar lömdu leigubilstjóra með barefli í fyrrinótt með þeim afleiðingum að hann hlaut alvarlega höfuðáverka. Var hann fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Lögreglan yfirheyrði annan drengjanna í gær, en hann var handtekinn eftir að til hans sást við tilraun til að stela bíl. SkODANAkÖNNUN 75 prósent vilja reyklausa staði 75 prósent landsmanna eru frekar eða mjög hlynnt því að veitinga- og skemmtistaðir verði reyklausir. Þetta er niðurstaða könnunar Capacent Gallup fyrir Lýðheilsustöð. Þann 1. júlí verða reykingar bannaðar á veitinga- og skemmtistöðum. Moskva: Rostropovich fallinn frá Sellóleikarinn og hljómsveitar- stjórinn, Mstislav Rostropovich, lést á sjúkrahúsi í Moskvu áttræð- ur að aldri, að því er talsmaður hans, Natalia Dollezhal, tilkynnti í gær. Rostropovich var lagður inn á sjúkrahús í febrúar vegna krabbameins í lifúr. Rostropov- ich sást síðast opinberlega í mars þegar efnt var til hátíðar í tilefni áttræðisafmælis hans. Sellóleikarinn heimsffægi barðist fyrir mannréttindum og hýsti rithöfúndinn Aleksander Solzhenitsyn þegar hann sætti ofsóknum sovéskra yfirvalda á síðari hluta sjöunda áratug- ar síðustu aldar. Sjálfúr lenti Rostropovich í vandræðum um 1970 þegar hann sendi opið mótmælabréf til dagblaðsins Prövdu sem birti ekki bréf hans. Það gerðu hins vegar vestrænir fjölmiðlar. Honum var síðar vísað úr landi en átti afturkvæmt eftir hrun Sovétríkjanna. Þing Rafiðnaðarsambandsins ræðir ESB-aðild og kjarasamninga: Vill semja til tveggja ára ■ Búast við harðri kjarabaráttu ■ Heimilin aldrei jafn skuldsett ■ Bæta þarf menntun Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net „ Aldrei hafa heimilin verið eins skuld- sett og aldrei hefur verið erfiðara fyrir ungt fólk að eignast húsnæði. 40 prósent íslenskra launamanna hafa ekki lokið skilgreindu námi, við erum 10 árum á eftir Dönum hvað varðar menntun í atvinnulíf- inu og íslenskur vinnumarkaður er ekki nægilega sveigjanlegur,“ sagði Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands íslands, í setn- ingarræðu 16. þings sambandsins sem hófst í gær. Guðmundur gerði grín að afstöðu stjórnvalda til stjórnunarhátta þeirra fyrirtækja sem halda uppi stór- iðjustefnunni og líkti stjórnvöldum við Altúngu úr Birtíngi Voltaires, sem sagði að „allt væri í besta lagi þar sem það gæti ekki verið öðru- vísi“. Sagði hann að með afskipta- leysi stjórnvalda af launastefnu og starfsmannamálum erlendra stór- fyrirtækja á íslandi, væru stjórnvöld að „gera aðför að kjörum hinna verst settu á íslandi“. Þá gagnrýndi hann almannatrygg- ingakerfið sem hann sagði vera þannig skipulagt að margir skrái sig á örorkubætur án hvata til að leita út á vinnumarkað aftur. Á þinginu verða félagsmenn búnir undir kjar- abaráttu sem er að hefjast, en gera má ráð fyrir að hún verði mjög hörð. Guðmundur segir rétt að sty tta samn- ingstímann sem samið er um hverju sinni og honum finnst eðlilegt að samið sé til tveggja ára í senn líkt og á annars staðar á Norðurlöndum. Að lokum gagnrýndi hann mis- skiptingu auðs og efnahagsstjórn stjómvalda. „Við erum ríkasta þjóð í heimi en Orkufrekur iðnaður leiðir til lækkaðs raforkuverðs Friðrik Sophusson, for- stjóri Landsvirkjunar. aðbúnaður aldraðra er fýrir neðan meðallag í OECD-ríkjunum.... Efna- hagsstjórn stjórnvalda, eða réttara sagt afskiptaleysi stjórnvalda, hefur leitt til þess að okkur hefur ekki tek- ist að skapa svipaðan stöðugleika verðlags hér og í samkeppnislöndum okkar.“ Athygli vekur að meðal verkefna Rafiðnaðarsambandsins sem Guð- mundur taldi upp var umræða um aðild að Evrópusambandinu. „Talið er að kostnaður við ESB-aðild Is- Aðbúnaður aldraðra er fyrír Guðmundur Gunnars- son, formaður Rafiðnað- arsambands Islands. lands sé um 5 milljarðar króna. Sá fórnarkostnaður er ekki mikill í sam- anburði við þann kostnað af vaxta- mun sem heimilin þurfa að greiða,“ sagði Guðmundur. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, hélt einnig ávarp á þinginu. Ræddi Friðrik aðallega um stóriðjustefnu, orkumál og raf- orkuverð. Sagði hann ljóst að Islend- ingar hefðu lykilhlutverki að gegna varðandi nýsköpun í orkumálum í heiminum, bæði hvað varðar djúp- ^ Þing RafiðnaðarsambandsinsÁ þinginu er meðal annars komandi kiarabarátta undirbúin. Bhliö/Eyþir\ y ~ ------------- borunarverkefni og eins þekkingu á orkumálum almennt. Þá sagði Friðrik ekki rétt að stöðva stóriðjuframkvæmdir, heldur bæri að nýta orkuna á sem skynsamleg astan hátt. Og hann telur sjónarmið náttúruverndarsinna alls ekki hafa gleymst. „Verndarsjónarmið hafa verið það mikið í fyrirrúmi hér á landi að líklega eru fslendingar að vernda hæsta hlutfall af landi í heim unum, ásamt Nýsjálendingum." Friðrik segir Ijóst að orkufrekur iðnaður styrki fjárhagslega stöðu raforkufyrirtækja, sem leiðir til lækkaðs verðs til almennings og áreiðanlegri raforku. Þá segir hann stóriðju stuðla 'að þróun þekkingar og hátækni á íslandi og að líklega verði raforkufyrirtæki á samkeppn issviði einkavædd í framtíðinni. Starfsmenn Framkvæmdasviðs Reykjavlkurborgar fara um borgina dagana 28. apríl til 5. maí og sækja garðaúrgang. Settu greinar í knippi, annan garðaúrgang í poka og komdu þessu fyrir á áberandi stað við lóðarmörk. Ekki verða fjarlægð stór tré og trjástofnar. Eingöngu verður fjarlægður garðaúrgangur, en ekki laus jarðvegur. íbúar sem þurfa að losa sig við annað rusl eða muni er bent á Sorpu. Nánari upplýsingar hjá símaveri í sima 411 1111 Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is/fs Hrefna Dröfn veiddi 7,5 | metra langt kvendýr í gær- * morgun. Mynd/JennýJensdóttir w Fyrsta hrefnan veidd: Urvalskjöt Dröfn veiddi í gærmorgun fyrstu hrefnu ársins. Um er að ræða vís- indaveiðar Hafrannsóknastofnunar, en Félag hrefnuveiðimanna sér um veiðarnar. Gunnar Bergmann er for- maður félagsins. „Þetta var 7,5 metra langt og mjög fallegt kvendýr. Það er í verslanir fullt af hval þarna, bæði hnúfubakur og hrefna. Stefnan er að veiða fram á mánudag, en þá verður að gera hlé á veiðum. Vonandi verður þá búið að veiða tvö til þrjú dýr í viðbót,“ segir Gunnar. Gerðar verða rannsóknir á dýrinu eftir helgi um borð, svo verður það skorið niður og sett í ískör og landað eftir helgi. Gunnar segir að kvendýrin þyki bragðbetri og að um mjög góða stærð sé að ræða hvað gæði kjötsins varðar. „Það verður komið úrvalskjöt i versl- anir á fimmtudaginn.“

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.