blaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 6
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Svcrrir Einarsson
Bryndís Valbjamardóttir
Hermann Jónasson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaöur • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Sveitarféiagið
ÁRBORGí
ER MTT FYRIRTÆMfOÐ AÐ SKRÁ SIG?
SKRÁNING í FULIM riANMSÍMA 897-0787 &
ÁVIFNUMWWW.ARB<ÍÍi2007.IS
hyiíian i brínni....lelkfækí lyfir ÐOrnln.„„aniMnn>„>?
Sími 533 4450 / 577 4450 • www.everest.is
Skeifunni 6 og Dalvegi 18
6 LAÍJGARDAGUR 28. APRÍL 2007
blaöið
INNLENT
KARAHNJUKAMENGUN
Landlæknir á vettvang
Matthías Halldórsson landlæknir og Haraldur Briem sóttvarnalæknir stefna
samkvæmt mbl að því að vera á Kárahnjúkum á mánudag og fá upplýs-
ingar um það sem gerðist þegar starfsmenn veiktust af völdum mengunar
í aðrennslisgöngum. Þeir ætla að skoða hvað gerðist varðandi sjúkra-
skrárnar sem yfirlæknir á Kárahnjúkum hefur sagt að Impregilo hafi stolið.
Varmárskóli blandast í deilur um tengibraut í Mosfellsbæ:
Séð upp í Leirvogstungu
Ný tengibraut i Mosfellsbæ
veldur hatrömmum deilum
Motmæli send frá
póstlista skólans
■ Formaður foreldrafélags forsprakkinn ■ Lokað á aðgang formannsins
Skólastjórinn sendi afsökunarbeiðni
Eftir Þröst Emilsson
the@bladid.net
Hatrammar deilur um skipulags-
mál í Mosfellsbæ, einkum lagningu
tengibrauta, teygja nú anga sína inn
í grunnskóla bæjarins. Hart er deilt
um legu Tungubrautar, tengibrautar
sem liggja á í framhaldi af Skeiðholti
frá Skólabraut að Leirvogstungu og
mun þvera Varmá og Köldukvísl.
Tilgangur með lagningu vegar-
ins er m.a. að tengja saman nýtt
íbúðarhverfi í Leirvogstungu við
skóla og aðra þjónustu í eldri hluta
Mosfellsbæjar.
Lilja Hrönn Pálsdóttir,
formaður foreldrafé-
lags Varmárskóla, sendi
ásamt fleirum, meðal
annars formanni Varmár-
samtákanna, mótmæli til
foreldra barna í skólanum
og var póstlisti skólans
nýttur til sendinganna. Yf-
irskriftin var „Mótmæli
Tunguvegar” og í viðhengi
voru móttakendur hvattir
til að kynna sér fyrirhugaða
framkvæmd. f viðhenginu
mátti meðal annars lesa;
bjargið börnunum og komum í veg
fyrir umhverfisslys. Talað er um
óþarfa tengibraut, tillitsleysivið skóla-
börn og eyðileggingu náttúrunnar.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa.
Margir lýstu ánægju með framtakið
en aðrir brugðust ókvæða við og
kvörtuðu við skólayfirvöld.
„Þetta tilheyrir ekki skólastarfi.
Við lítum á þetta sem yfirsjón en
höfum ekki rætt þetta frekar,” sagði
Þórhildur Elfarsdóttir, aðstoðar-
skólastjóri Varmárskóla.
MÓTMÆLI
BJARGIÐ BÖRNUNUMI
HÖFNUM MEIRÍMiÍGUN!
VERNDUM KALDÁNA OO LEIRURNARI
SBEBaaMaiiiePgSSSaia.-
4B58
-TEi-riiT.iff-.tÆSaxB
Innan við tveimur tímum eftir
póstsendingu mótmælanna sendi
skólastjóri Varmárskóla afsökunar-
bréf til foreldra. Hann harmar að
mótmælin skyldu send gegnum net-
fangalista skólans og segir að það
hafi verið gert að stjórnendum skól-
ans forspurðum. Jafnframt upplýsir
skólastjórinn að aðgangi formanns
foreldrafélagsins að tölvukerfi skól-
ans hafi verið lokað.
„Heiftin er mikil og ég er hissa á
viðbrögðunum. Ég var aðeins að
hugsa um hag barnanna okkar en
þykir miður hver viðbrögðin voru
sagði Lilja Hrönn Pálsdóttir,
formaður foreldrafélags
Varmárskóla.
„Ég held að þarna séu á
ferðinni óþarfa áhyggjur og
fólk misskilji framkvæmdina.
Þetta fer í umhverfismat, þrátt
fyrir að talið væri að þess þyrfti
ekki. Við viljum láta náttúruna
njóta vafans. Þá er í bígerð að
halda kynningarfund um fram-
kvæmdina á næstu dögum,”
sagði Haraldur Sverrisson, for-
maður bæjarráðs og formaður
skipulags- og byggingarnefndar
Mosfellsbæjar.
Framboðsfrestur vegna þingkosninga runninn út:
Sex framboð á landsvísu
Framboðsfrestur vegna þing-
kosninganna 12. maí rann út á há-
degi í gær. Sex stjórnmálasamtök
tilkynntu framboð í öllum kjör-
dæmum og skiluðu framboðslistum
og meðmælum til yfirkjörstjórna.
Baráttusamtök eldri borgara og ör-
yrkja bjóða fram í einu kjördæmi,
Norðausturkjördæmi. Reyndar
skiluðu samtökin einnig inn fram-
boðsgögnum til yfirkjörstjórnar
í Reykjavíkurkjördæmi suður, en
tæplega klukkustund of seint. Yfir-
kjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis
suður ákveður í dag hvort gögnin
verða tekin gild.
Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylk-
ingin, Vinstri hreyfingin - grænt
framboð, Framsóknarflokkurinn,
Frjálslyndi flokkurinn og íslands-
hreyfingin - lifandi land skiluðu
inn framboðslistum í öllum sex kjör-
dæmum. Kjörskrá á að leggja frarh
í síðasta lagi miðvikudaginn 2. maí
og þann sama dag á að birta fram-
boðslista. Kosið verður til Alþingis
laugardaginn 12. maí.