blaðið - 28.04.2007, Qupperneq 21
blaðiö
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 21
Allir með stefnu í
innflytjendamálum
Almennt séð hefur mér fundist kosninga-
baráttan í ár hafa verið tölvert rólegri en ég
átti von á.
Ef ég ber hana saman við baráttu fyrri
ára finnst mér eins og hún sé ekki eins vel
til þess fallin að ná til fólksins í landinu og
ég hef það á tilfinningunni að kosningaþátt-
takan verði dræmari en árið 2003. Ef til vill
á baráttan þó eftir að harðna svona á síðustu
dögunum.
Þegar umræðan um innflytjendamál
komst í hámæli í vetur óttaðist ég að hún ætti
ef til vill eftir að vera á neikvæðari nótum í
kosningabaráttunni en raun ber vitni. Þetta
var eins og einhver bóla sem sprakk og síðan
þá hefur umræðan verið hófstilltari og yfir-
vegaðri, sem mér finnst góð þróun. Mér
sýnist að það sé komin ákveðin þverpólitísk
samstaða um að gera eitthvað uppbyggilegt
og jákvætt í málefnum innflytjenda og ég
vona að sú samstaða haldist.
Ef skoðaður er samanburður á milli þess-
ara kosninga og kosninganna fyrir fjórum
árum sést glöggt að flokkarnir hafa allir gjör-
breyst og þeir eru allir komnir með stefnu í
innflytjendamálum. Allir virðast þeir vera
sammála því að það þurfi að vera meiri þjón-
usta við innflytjendur og setja þurfi meira
fjármagn í málaflokkinn.
Ég er bjartsýnn á að það eigi eftir að verða
raunin í vor, hvert svo sem stjórnarmynstrið
verður.
Vantar umræðu
um jafnréttismál
Mér finnast fjölmiðlarnir standa sig vel
í að halda uppi umræðu í aðdraganda kosn-
inganna og það sýnir okkur hvað pólitísk um-
ræða er að færast stöðugt yfir í fjölmiðlana,
sérstaklega útvarp og sjónvarp.
Eins finnst mér jákvætt að sjá hvernig
hinir ýmsu samfélagshópar hafa staðið fyrir
fundum sjálfir til að ræða ákveðin mál, til
dæmis öryrkjar, stúdentar, kvennasamtök
og svo framvegis. Ég held að slíkt létti álagi
af stjórnmálaflokkunum því að það er heil-
mikið átak fyrir stjórnmálamenn og mikið
áreiti að vera alltaf að fara á vinnustaði. og
fleira slíkt.
Annars hefur umræðan mikið snúist um
það að stjórnarflokkarnir segja að hér sé allt
í himnalagi en stjórnarandstöðuflokkarnir
segja á móti að hér sé margt sem þurfi að laga.
Sjálfri finnst mér kominn tími á að skipta um
ríkisstjórn, það er ekki síst lýðræðisins vegna
brýnt að skipt sé um ríkisstjórn öðru hverju
til að hleypa að nýjum áherslum.
Mér hefur þótt athyglisvert í þessari kosn-
ingabaráttu að það er alltaf reynt að blása
umræðu um stóriðjustefnuna út af borð-
inu og jafnréttismálin fá alls ekki nægilegt
rými. Allir flokkar reyna auðvitað að höfða
til kvenna en samt hefur lítil umræða verið
um nýtt jafnréttislagafrumvarp, aðgerðir
gegn kynbundnu ofbeldi og aðgerðir til að
tryggja hlut kvenna í stjórnmálum svo dæmi
séu tekin.
Uppbyggilegri og
jákvæðari en áður
Mér finnst umræðan að mörgu leyti hafa
verið jákvæðari og uppbyggilegri en oft áður.
Þegar málefni fatlaðra og jafnréttismál eru
annars vegar finnst mér að menn hafi ekki
farið jafn mikið í hinar hefðbundnu skotgrafir
heldur verið málefnalegir og haldið sig við hug-
myndir að lausnum þeirra stóru verkefna sem
við okkur blasa.
Stundum hefur mér reyndar fundist skorta
dýpt í umræðunni og að menn hafi ekki verið
að ræða mikið um hvaða leiðir við eigum að
fara í því að ná fram jafnrétti og efla og auka
þátttöku fatlaðra í samfélaginu. Ef til vill hafa
stjórnmálamenn ekki hugsað það mikið í hinu
stóra samhengi. En það breytir því ekki að um-
ræðan almennt hefur virst uppbyggilegri og
jákvæðari en yfirleitt áður.
Stjórnmálaflokkarnir eru sammála um að
það verður að breyta verulega almannatrygg-
ingakerfinu, minnka tekjutengingar og finna
leiðir til að stórauka atvinnu- og samfélags-
þátttöku fatlaðra. Sumir flokkar hafa tekið
undir okkar sjónarmið um nauðsyn á hækkun
grunnlífeyris, sem er mikilvægasti þáttur
lífeyriskerfisins hjá fötluðum og öldruðum,
og að það þurfi að hækka grunnlífeyrinn og
gera hann ótekjutengdan. Vonandi komast
þeir flokkar til áhrifa eftir kosningarnar, en
reyndar hafa engir flokkar hafnað þessari leið
með afgerandi hætti. Því bind ég vonir við að
framvegis verði um þessi málefni langþráður
samhljómur.
Aukinn áhugi á
umhverfismálum
í febrúar birtu Náttúruverndarsamtökin
skoðanakönnun Gallup sem sýndi að 72,8 pró-
sent aðspurðra vilja að stjórnmálaflokkarnir
leggi meiri áherslu á náttúruvernd og um-
hverfismál. Klárlega leggja stjórnmálaflokk-
arnir nú meiri áherslu á umhverfismál. Þeir
skilja kall almennings. Þannig fjallaði Geir
Haarde um loftslagsbreytingar í setningar-
ræðu sinni á nýafstöðnum landsfundi flokks-
ins, sem hefur ekki fyrr en nýverið viljað
ræða þau mál af neinni alvöru.
Umhverfisráðherra lagði nýlega fram metn-
aðarfulla áætlun um samdrátt í útstreymi
gróðurhúsalofttegunda um 50-75 prósent
fyrir miðja þessa öld. En áætlunin segir ekk-
ert um hvaða árangri skuli náð fyrir árið 2020.
Til samanburðar hafa Evrópusambandsríkin
það markmið að draga úr útstreymi gróður-
húsalofttegunda um 20 prósent fyrir 2020.
Langtímamarkmið eru góð en verða bara hill-
ingar ef ekkert er sagt um fyrstu skrefin.
Mikil andstaða er við virkjanaáform til
dæmis í Þjórsá, Jökulsám Skagafjarðar, Norð-
lingaöldu, Langasjó og Brennisteinsfjöllum.
Nokkuð vantar upp á að stjórnmálaflokk-
arnir geri kjósendum skýra grein fyrir af-
stöðu sinni til þessara áforma.
Áhugi kjósenda á umhverfismálum er
meiri en áður og mun fara vaxandi á næstu
árum. Það skiptir miklu að stjórnmálamenn
bregðist við af einurð og trúverðugleika.
©
netan
Volkswagen
Ecofuel
Metanbílar Volkswagen eru einhver umhverfisvænasti kosturinn á markaðinum í dag.
Þú fórnar hvorki afli né eiginleikum en uppskerð hreinna loft og lægri eldsneytiskostnað.
í boði eru metanútgófur af Volkswagen Caddy og Volkswagen Touran.
Er metan fyrir þig?
Komdu og kynntu þér metanbílana frá Volkswagen og fáðu nánari upplýsingar á www.hekla.is/metan.
Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, slmi 461 6020 • HEKLA, Borgamesl, slml 437 2100 • HEKLA, Isaflröl, slml 456 4666
HEKLA, Reyöarflröl, slml 470 5100 • HEKLA, Reykjanesbœ, slml 420 5000 • HEKLA, Selfossl, slml 482 1416
HEKLA, Laugavegi 172-174, slml 590 5000
www.hekla.ls. heklaOhekla.ls