blaðið - 28.04.2007, Side 36

blaðið - 28.04.2007, Side 36
36 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 blaöiö „Ég erföst fyrir; ég er stjórnsöm og ég er stolt en ég held líka að ég búi yfir náunga- kærleik. Sennilega er ég mýkri inn við beinið en fólk grunar." Þú varst líka um tímaformaður barnaverndarnefndar. í því starfi hlýturðu að hafa séð ýmislegt dapurlegt? „Ég sá aðra hlið á borgarlífinu en kannski flestir gera. Verst var að sjá vanraekslu á börnum. Þar var ekki endilega um að ræða skort á efna- hagslegum gæðum heldur réttu hug- arfari gagnvart þörfum barnanna. Þetta var einna erfiðast að eiga við. Oft fann maður það í heilsugæslunni og í skólum að þar hefði fólk viljað að fyrr hefði verið gripið í taumana og börn tekin af foreldrum en slíkt er auðvitað algjört neyðarúrræði. Ég lærði mikið á þessum tíma og þessi reynsla hafði vitanlega áhrif á mig. Við viljum öll að börn njóti umhyggju í æsku og það er ákaflega sorglegt að verða vitni að því þegar skortur er á slíku.“ Þú varst dómsmálaráðherra í fjögur ár. Það efast enginn um að það sé erfitt starf að vera ráðherra. Átti það vel við þig? „Já, það átti afar vel við mig. Það að --vera ráðherra er mjög krefjandi en mér fannst mjög gaman að takast á við það og vona svo sannarlega að ég hafi skilið eftir mín spor í ráðuneyt- inu og býst við að svo sé því ég kom fjölmörgum málum í gegnum þingið. Ráðherrastarfi fylgir mikil ábyrgð og maður verður að setja sig í stell- ingar og læra á starfið. Þar þarf til dæmis að gæta aðhalds varðandi fjár- muni. Menn vilja fá fjármagn í eitt og annað sem er mjög skiljanlegt en það er jafn mikilvægt fyrir ráðherra að geta staðið fast á bremsunni, hafa yfirsýn yfir alla málaflokka og vera ábyrgur í störfum sínum." Með harðan skráp Hvernig tekurðu gagnrýni? „Þeir sem taka þátt í stjórnmálum geta fengið á sig harða gagnrýni og það er eins gott að menn átti sig á því að það fylgir því starfi. Ég held að ég sé komin með býsna harðan skráp. Ég skal samt viðurkenna að sumt fer meira undir húðina en annað en það fer mjög eftir því hver á í hlut. Þeir sem tala hæst og mest eru stundum menn sem ég hilusta ekkert sérstak- lega á. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því hvað þeir eru að segja.“ Nú var eiginmaður þinn, Krist- inn Björnsson, einn þriggja for- stjóra sem ákœrðir voru fyrir ólöglegt samráð í olíumálinu svo- nefnda. Málinu var vísað frá en opinber umrœða um málið var ansi grimm á köflum og hlýtur að hafa tekið á þig ogfjölskylduna. „Vissulega. Það er mjög sérstakt að upplifa þessa umræðu. Málinu var vísað frá í Hæstarétti og er þar með lokið. Þess vegna finnst mér skrýtið að umræðan skuli halda áfram. Það sem var erfiðast í sambandi við þetta mál var hversu langan tíma það tók, á sjötta ár. Þeir sem voru ákærðir tjáðu sig ekki um málið opinberlega og um leið varð umræðan einhliða og margir settu sig i dómarasæti." Þegar erfiðleikar steðja að kemst fólk að því hverjir eru raunverulegir vinir. Olli fólk þér vonbrigðum? „Nei, ekki myndi ég segja það. Við hjónin erum svo heppin að vera vin- mörg og þar eiga traustir vinir í hlut þannig að líf okkar gekk sinn vana- gang. Við höfum bæði gegnt margs- konar trúnaðarstörfum þannig að við erum vön opinberri umræðu. Við tókumst bara á við þetta en ég held að þetta hafi stundum verið erf- itt fyrir börnin okkar.“ Mikill rokkari Það er auðvelt aðfá þá mynd af þér aðþú sért kona sem sé ákveðin í að sýna ekki veikleika opinber- lega. Erþað raunin? „Þá komum við enn og aftur að ímynd kvenna. Ég held að konur séu meðvitaðri en karlar um mik- ilvægi þess að koma rétt fram. Það er mikið gert af því að segja konum hvernig þær eiga að vera og þær eru metnar meira út frá útliti og skap- ferli en karlarnir. Mjög liklega hef ég fengið einhver slík skilaboð en ég held samt að ég sé bara svona. Ég er föst fyrir, ég er stjórnsöm og ég er stolt en ég held líka að ég búi yfir náungakærleik. Sennilega er ég mýkri inn við beinið en fólk grunar. Ég er til dæmis mikill rokkari í mér, hlustaði á yngri árum mikið á Rol- ling Stones, Bítlana, Led Zeppelin og Deep Purple. Ég spila þessa tón- list enn þann dag í dag og börnin mín kunna alla textana í þessum lögum því þau eru alin upp við þau. Hérna áður fyrr þegar ég kom heim og var þreytt og fór að sýsla í eldhús- inu þá setti ég tónlistina á fullt og þá þá heyrði ég börnin kalla hvert til annars: „Mamma er byrjuð aftur!“ Rolling Stones er mitt uppáhald og hver heldur ekki upp á Mick Jagger, þótt hann sé ekki smáfríður? Hvaða karlmaður á hans aldri vill ekki vera í jafngóðu formi og hann? Já, ég hef visst yfirborð. Kannski er þetta yfirborð vörn því stjórn- málamenn eru opinberar persónur og maður vill ekki hleypa fólki of nálægt sér í starfinu. Það er allt annað mál hvernig maður er í einka- lífi. Ætli ég sé ekki talsvert öðruvísi þegar fólk kynnist mér en ég er sem stjórnmálamaður og opinber persóna.“ kolbrun@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.