blaðið - 28.04.2007, Page 38

blaðið - 28.04.2007, Page 38
3 8 LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 blaðiö ARIÐ 1983 AKVAÐ MAÐUR NOKKUR AÐ LÁTA TIL SKARAR SKRÍÐA, STAL HAGLABYSSU OG ÁKVAÐ AÐ RÆNA STARFSMENN ÁTVR Vopnað rán við Landsbankann Sögusviðið er skemmtiferða- skipið Edda sumarið 1983. Meðal farþega var Jóhannes Guðjónsson, bankagjaldkeri og fyrrverandi af- greiðslumaður hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Um borð kynntist Jóhannes öðrum far- þega, William James, en hann var bandarískur að hálfu og að hálfu íslenskur. í samtölum þeirra kom fram að Jóhannes hafði starfað í Ríkinu við Lindargötu. Ekki fór á milli mála að William hafði áhuga á fyrra starfi Jóhannesar og hann spurðist fyrir um það. Einna helst virtist hann hafa hug á að vita með hvaða hætti starfs- menn skiluðu af sér dagsölunni. Grunlaus sagði Jóhannes frá með hvaða hætti það var gert. Um hálfu ári eftir siglinguna kom William í bankann til Jóhannes- ar. William tók að spyrjast fyrir um með hvaða hætti starfsmenn Ríkisins á Lindargötu flyttu pen- inga í bankann. Jóhannes sagði honum allt um það og gaf honum að auki aðrar upplýsingar, mjög ítarlegar. Undirbúningur að ráni Hálfum mánuði síðar ákvað William að ræna peningum af starfsmönnum verslunnar þegar þeir skiluðu af sér við Landsbank- ann á Laugavegi 77. Hann hóf þeg- ar undirbúning að ráninu. Fyrst náði hann sér í föt þar sem hann hafði ákveðið að dulbúast. Willi- am fór í fataleit í sundlaugarnar í Laugardal og á Landakotsspítala. Upp úr þessu hafði hann stígvél, loðhúfu og frakka. Hann klæddi sig í fötin og gerði ýmsar breyting- ar á útliti sínu. Næst hélt hann að Landsbankanum þar sem hann fylgdist með þegar starfsmenn Áfengisverslunarinnar skiluðu af sér dagsölunni. William sá að hann gæti aldrei framið rán- ið einn síns liðs og ekki án þess að hafa vopn. Daginn eftir hafði hann samband við kunningja sinn, Ingvar Jóhannsson, og skýrði honum frá áætlunum sín- um um ránið. Ingvari leist vel á hugmyndina og samþykkti að vera með. William braust inn í verslunina Vesturröst eina nóttina og stal haglabyssu. Hann bauð Ingvari tvo kosti. Fyrri kosturinn var sá að ef hann tæki fullan þátt í rán- inu fengi hann helming ránsfengs- ins. Hinn kosturinn var sá að ef Ingvar útvegaði bíl og úlpu og hringdi í lögregluna og tilkynnti um rán í Breiðholti fengi hann 20 prósent. Ingvar valdi síðari kost- inn. Haglabyssa að hnakka bílstjórans Ingvar og William óku vestur á Grandagarð þar sem William lauk við að dulbúa sig. Hann límdi á sig yfirvaraskegg og höku- skegg og setti á sig barta og auga- brúnir. Eftir það var ekið að Há- skólabíói. Þaðan gekk William að Hóteli Sögu og settist í aftursæti eins leigubílsins sem þar var og bað um að sér yrði ekið að Hót- eli Loftleiðum. Þegar bíllinn var kominn langleiðina tók William upp haglabyssuna og beindi henni að hnakka bílstjórans, greip aftan í hálsmál hans og hótaði að skjóta yrði ekki farið að fyrirmælum sín- um. Hann sagði bílstjóranum að stöðva bílinn, fara út og afhenda sér lyklana. Bílstjórinn hlýddi strax og hljóp út í myrkrið. Willi- am settist undir stýri og ók á brott. Hann setti stefnuna á Laugaveg 77. Klukkan var rétt um sjö þegar William ók að bílaplani á baklóð Landsbankans á Laugavegi 77. Hann skildi bílinn eftir í gangi, tók haglabyssuna og gekk vestur með bankanum og upp á Lauga- veg. Eftir að hafa verið í fimm til tíu mínútur við stoppistöð stræt- isvagna sá hann hvar starfsmenn Áfengisverslunarinnar komu ak- andi að bankanum. Annar þeirra steig út úr bílnum og gekk í átt að bankahólfinu. Hann bélt á tveim- ur hvítum plastpokum. William tók umbúðirnar af haglabyssunni, hljóp að manninum og kallaði til hans að hann vildi fá peningana. Til að leggja áherslu á orð sín hleypti hann skoti af byssunni. Skotið hæfði vinstra framhjól bílsins. Starfsmaðurinn reyndi að hlaupa á brott. William náði hon- um og sló til hans með byssunni svo starfsmaðurinn missti tökin á pokunum og við það ultu pen- ingapokarnir úr plastpokunum. William tíndi peningapokana í plastpokana nema einn sem hann hélt á í annarri hendi. Hann hljóp af stað að bílnum en á hlaupunum missti hann lausa peningapokann sem hann hélt á. Þegar hann var kominn í bílinn ók hann að Brautarholti en þar var bíllinn sem Ingvar hafði fengið að láni en Ingvar var hvergi sjáanleg- ur. William hóf þegar að flytja pen- ingana yfir í hinn bílinn. Eftir að William hafði beðið nokkra stund kom Ingvar. Hann hafði farið nið- ur á Laugaveg til að fylgjast með hvernig William gengi. Hann sá þegar William missti peningapok- ann. Hann hafði sótt pokann og falið við verslun í næstu götu. Þar með var Ingvar orðinn meiri þátt- takandi í ráninu en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir. Eftir að þeir höfðu rætt saman fóru þeir að þeim stað þar sem Ingvar hafði falið peningapokann. Að því loknu var ekið heim til for- eldra Williams þar sem þeir skildu að sinni. William tók ránsfenginn og Ingvar ók á brott. Þegar Willi- am kom heim sagði hann föður sínum David frá því sem hann hafði gert. í fyrstu brást David reiður við en sagði syni sínum að setja peningana inn í skáp á gangi íbúðarinnar. Jóhannes heyrir fréttina Daginn eftir taldi William pen- ingana. Upp úr pokunum komu 1.800 þúsund krónur, þar af voru um 1.400 þúsund í peningaseðl- um, afgangurinn í ávísunum. William brenndi ávísanirnar og sturtaði öskunni niður um kló- settið. Hann bauð föður sínum að taka eins mikið af peningum og hann teldi sig þurfa en faðir hans afþakkaði. Daginn eftir bað William föður sinn að aka sér suður í Hafnar- fjörð þar sem hann þyrfti að gera upp við Ingvar en bans hlutur af ránsfengnum var 360 þúsund krónur. Eftir að hafa látið Ingvar fá peningana óku feðgarnir að fjörunni þar sem William losaði sig við pokana. Sama kvöld og ránið var fram- ið heyrði Jóhannes bankagjald- keri fréttirnar af atburðinum í útvarpi. Fyrir honum rifjuðust upp samtöl hans og Williams. Jó- hannes fór til lögreglu og greindi frá grun sínum og því sem þeim William hafði farið á milli. Willi- am var handtekinn og játaði allt. 1 sakadómi var William dæmdur til fimm ára fangelsisvistar, Ing- var til 18 mánaða fangelsisvistar og refsingin yfir David var skil- orðsbundin í tvö ár. Hæstiréttur staðfesti dómana yfir feðgunum en þyngdi refsinguna yfir Ingvari úr 18 mánuðum í 30. Nöfnum í greininni er breytt. Hann sagði bílstjóranum að stöðva bílinn, fara út og afhenda sér lyklana. Bílstjórinn hlýddi strax og hljóp út í myrkrið. Willi- " am settist undir stýri og ók á brott. Hann setti stefnuna á Laugaveg 77.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.