blaðið - 28.04.2007, Side 41

blaðið - 28.04.2007, Side 41
blaftið LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 41 áfram. Eiríkur er klárlega í þeim hópi sem á ágætis möguleika að komast áfram. Við höfurn allt með okkur, lagið er grípandi auk þess sem Eiríkur er frábær söngvari og flytjandi sem margir taka eftir, með allt þetta rauða hár.“ Hafði húmor fyrir Silvíu Nótt Samkvæmt Sigmari hefur það sýnt sig að íslendingar fylgjast álíka vel með aðalkeppninni, hvort sem ísland keppir eða ekki. „Áhorfs- tölur í fyrra sýndu að 78 prósent þjóðarinnar horfðu á keppnina þegar Silvía Nótt keppti og 70 pró- sent horfðu á lokakeppnina. Þetta er kannað á hverju ári og áhorfs- tölurnar hafa alltaf verið á þessu bili. Keppnin er mjög vinsæl hér og það eru Eurovision-partí út um allt, hvort sem við tökum þátt eða ekki.“ Spurður hvort hann hafi verið hneykslaður á hegðun Silvíu Nætur í keppninni í fyrra segir Sigmar að það sé af og frá. „Mér fannst mjög skemmtilegt hvernig hún lét og hafði mikinn húmor fyrir því. Ég skildi ekki, hvorki þarna úti né eftir að ég kom heim, hvernig fólk getur látið leikna persónu fara svona mikið í taugarnar á sér. Það sjá það allir að þetta er týpa sem á að hneyksla og ögra og ég náði því ekki hvernig var hægt að hneyksl- ast á henni og láta hana ögra sér. Sennilega föttuðu Grikkirnir ekki alltaf að hún væri leikin persóna því margir þeirra voru afar móðg- ast þegar Baldvin Jónsson sem rak Aðalstöðina hringdi í mig og bauð mér vinnu. Tíminn í útvarpinu var mjög skemmtilegur og lærdóms- ríkur enda gerði ég margt og fjöl- breytt þar sem varð ágætis grunnur fyrir fréttamennskuna sem ég fór í seinna. I dag þegar ég hugsa um vinnuna er ég feginn að vera í fjöl- miðlum því fjölmiðlaáhuginn er nokkurs konar baktería sem maður fær og hún grasserar í mér. Ég er óskaplega ánægður þar sem ég er í dag, hér eru mörg skemmtileg verk- efni, mikið að gera og góður mórall. Hins vegar hefur það alltaf verið þannig með mig að mig langar alltaf til þess að breyta til með einhverju árabili. Hingað til hefur mér þótt leiðinlegt að vera lengi í einhverju og er kannski svolítið leit- andi persónuleiki." Ekki vön miklum tilfinningum Kastljós hefur stundum verið gagnrýnt fyrir opinskáa umræðu og jafnvel tilfinningaklám, sérstak- lega þegar fjallað var um Breiðavík og Geir Þórisson. Sigmar verður ómyrkur í máli og segir að þessi gagnrýni sé fáránleg. „I Breiðavík- urmálinu vorum við gagnrýnd fyrir að sýna menn sem grétu. Þetta eru menn sem hafa ekki talað um afar sára reynslu í nánast 40 ár og það er ekki hægt að koma þeirra reynslu til skila með því að fclippa út allar tilfinningar. Með því að sýna þetta þá færðum við þennan „Fólk má alveg kalla þetta tilfinningaklám en þetta eru tilfinningar fólks. Að líkja tilfinningum fólks við tilfinn- ingaklám finnst mér vera ósmekklegt." aðir vegna framkomu hennar. Silvía Nótt var gagnrýnd eftir að hún kom heim og komst ekki upp úr keppn- inni en það sem mér fannst alltaf standa upp úr var rosalegur leikur Ágústu Evu Erlendsdóttur. Hún er í karakter í tíu daga frá morgni til kvölds og það var mikið álag á henni þarna úti. Það var endalaus þeytingur á milli staða og hún var alltaf í hlutverki sem gengur út á að bregðast við aðstæðum. Þetta var ótrúleg frammistaða hjá henni. Hún leikur manneskju sem á að fara í taugarnar á fólfci og hún fór virkilega í taugarnar á fólki. Það hlýtur að segja okkur að hún hafi leikið sitt hlutverk vel.“ Einn ígierbúri Sigmar segir að það sé óneitan- lega merkileg tilfinning að lýsa Eurovision-keppninni fyrir alþjóð. „Þetta er svo skringilegt andrúms- loft, ég er einn í pínulitlu glerbúri og maður er ofsalega einn. En að sama skapi veit ég að það er mikið áhorf og að ég sé að tala til margra. Þetta er því mjög ólíkt því sem ég hef áður gert. Ég var í mörg ár í útsendingu á útvarpsstöðvum og þar pældi ég ekki mikið í því að fólk væri að hlusta á mig en ég er ofboðslega meðvitaður um það þarna. Glerbúrið er efst uppi í rjáfri og við erum með gott útsýni á sviðið en erum samt langt frá því. Ég sé yfir allt sviðið en fylgist með keppninni á skjánum þannig að ég geti fylgst með hvað er í útsending- unni hverju sinni. í sjálfu sér gæti þessi klefi verið á Austurstræti en þá upplifir maður vitanlega aldrei stemninguna. Rétt eins og í fyrra en þá skynjaði ég mjög sterkt þegar púað var á Silvíu Nótt. Það heyrðist i útsendingunni en ég heyrði það margfalt uppi í þessu litla búri.“ Leitandi persónuleiki Sigmar hefur unnið á fjölmiðlum síðan hann var rúmlega tvítugur og segir að löngunin hafi kviknað þegar hann var unglingur. „Ég fór á fjölmiðlabraut í Fjölbrautaskól- anum í Garðabæ og eftir útskrift fékk ég vinnu á Aðalstöðinni fyrir tilviljun. Ég var í raun ekki að gera neitt merkilegt til þess að láta þennan fjölmiðladraum ræt- tíma miklu nær fólki heldur en ef við hefðum klippt allar tilfinningar út. Ég held að þetta sé hluti af því að við íslendingar séum ekki vön miklum tilfinningum í fjölmiðlum og þannig viljum við hafa það. Eins held ég að þessar gagnrýnisraddir hefðu ekki heyrst hefðu þetta verið kvenmenn sem grétu í útsendingu. Annað dæmi er frétt okkar um ís- lenskan fanga í Virginíu, Geir Þóris- son, en í tveggja klukkutíma spjalli brotnaði hann niður aftur og aftur og grét. Áttum við að klippa það út og sýna bara myndir af honurn þegar hann er sterkur og brosandi sem hann var náttúrlega líka? Þá erum við ekki að sýna sanna mynd af því sem gerðist í þessu viðtali né sanna mynd af því hvernig honum líður. Fólk má alveg kalla þetta til- finningaklám en þetta eru tilfinn- ingar fólks. Að lífcja tilfinningum fólks við tilfinningaklám finnst mér vera ósmekklegt,“ segir Sig- mar og viðurkennir að það hafi verið erfitt að taka viðtalið. „Vitan- lega verður maður ofsalega meyr og allt umhverfið gerði það að verkum að þetta var mjög erfitt. Þetta er sennilega erfiðasta viðtal sem ég hef tekið.“ Meðvitaður um hvað ég blogga Eitt helsta áhugamál Sigmars er að blogga á siðu sína, Sigmarg.blog. is, en það hefur hann gert í rúmt ár. Síðan er ansi vinsæl og hann fær allt að 40 þúsund heimsóknir vikulega. „Mér finnst gaman að skrifa og að dunda mér við að búa til einhvern texta, þótt þetta sé oftast texti um mínar hugleiðingar sem sjálfsagt engum finnast merkilegar nema mér. Ég set þær samt niður á blað og þegar ég birti þær á blogginu þá fæ ég alls konar viðbrögð, neikvæð og jákvæð, og mér finnst gaman að því. Auðvitað er ég mjög meðvit- aður um að ég get ekfci bloggað um hvað sem er vegna starfs míns. Ég verð að passa mig og er fáránlega meðvitaður um það. Það er rosal- ega margt sem ég myndi gjarnan vilja blogga um en get ekfci gert. Mér finnst ekki heppilegt að ég sé efnislega að tjá mig um mál á sama tíma og ég er að fjalla um það. Ég blogga alveg um starf mitt af því að það er það sem ég vinn við, lifi og hrærist í á hverjum degi. Mér finnst þetta skemmtilegt og ég tek mig ekki mjög hátíðlega á blogginu. Þessi skrif mín eru eitthvað til að hafa gaman af frekar en vettvangur fyrir alvarlegar staðhæfingar.“ Ungurfaðir Sigmar er heimakær fjölskyldu- faðir en hann á fjögur börn og ,skringilega samsetta fjölskyldu" eins og hann orðar það sjálfur. „Ég á fjögur börn, tvö þeirra eru mín blóðbörn og tvö er stjúpbörn. Elsta dóttir mín, sem er 19 ára gömul, býr í Danmörku en ég var 18 ára gam- all þegar ég eignaðist hana,“ segir Sigmar og hlær þegar blaðamaður spyr hvort hann gæti þá orðið afi bráðlega. „Ég gæti orðið afi bráð- lega en ég vona ekki. Mér finnst ég ekki vera orðinn nógu gamall til að vera afi. Reyndar var ég ekki heldur kominn með aldur til að verða pabbi. Mér fannst ég vera voðalega fullorðinn en auðvitað var ég frekar mikill krakki. Börnin mín eru mér allt, eitthvað sem ég get ekki hugsað mér lifið án og það verðmætasta sem ég á. Ég reyni að leggja mig fram í föðurhlutverkinu en vafalítið getur maður gert sumt betur og annað ekki. Ég legg mig fram við að veita þeim mikla vænt- umþykju og hlýju en ég vil líka að þau njóti frjálsræðis. Ég er ekki týpan sem hef strangan aga á heim- iíinu en ég hef fáar en skýrar reglur. Svo má heldur ekki gleyma að hafa létt og skemmtilegt andrúmsloft." svanhvit@bladid.net Ársfundur Stafa Ársfundur Stafa lífeyrissjóðs 2007 verður haldinn miðvikudaginn 16. maí, kl. 14:00 á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún. Dagskrá Q Venjuleg ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins Qj Tillögur að breytingum á samþykktum sjóðsins Q Önnur mál löglega upp borin Aðildarfélögum sjóðsins hafa verið send fundarboð og eru þau beðin að tilkynna skrifstofu sjóðsins fyrir 2. maí n.k. hverjir verða fulltrúar þeirra á fundinum. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum með tillögu- og málfrelsi. Kjörfundur, þar sem kjörnir verða fulltrúar launþega, verður haldinn kl. 12:00 á sama stað, samkvæmt ákvæði 5.1.2 í samþykktum sjóðsins. Nánari upplýsingar má finna á www.stafir.is STA^fR LÍFEYRISSJÓÐUR Stórhöfði 31 • 110Reykjavík Sími 569 3000 • Fax 569 3001 Stjórn Stafa lífeyrissjóðs stafir@stafir.is • www. stafir.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.