blaðið - 28.04.2007, Blaðsíða 51
blaðið
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2007 51
Helgin?
SUMARTILBOÐ!
2J
A FRIKO
Inmfaliö:
• Þjálfun 3-5x í viku - frjáls aðgangur að tækjasal og opnum tímum.
• Markviss leið að árangri með réttu mataræði.
Fræðslufundur með Ólafi G. Sæmundssyni næringarfræðingi á
Grand hótel í upphafi námskeiðs.
• Vikuleg vigtun. Ummáls- og fitumælingar í upphafi
og lok námskeiðs.
• Markvisst fræðsluefni vikulega og mikið aðhald.
• Lögmálin 9 um megrun - bókin sem opnar augu þín fýrir
leiðinni að varanlegum árangri og hjálpar þér að viðhalda ,
árangrinum eftir að námskeiðinu lýkur.
CaOtt a
Skraðu þtg strax i
sima 414 4000 eða
með tölvupósti á
afgreidsla@hreyfmg.is
Hefst 7. maí
Morqunhopar
Dagnópar
Kvoldhópar
Framhalashópar
Barnagæsla
Faxafem 14
414 4000
www.hreyfing.i8
BETRA FORMxb
ARANGUR 1,2,3
SALSA/DANS
HERÞJALFUN
TÆBO &
SUPER MR&L
OUJU
4| Reglur til að pluma
sig á Myspace
Að lokum
Passa að skrifa allt á ensku, það
eykur likurnar á því að þú eignist
útlenda hipp og kúl vini sem er flott að
hafa á siðunni.
Deíra
Form
Vertu í þínu besta
formi i sumar!
Myspace-ið hefur altíeilis tröllriöiö öllu
og nú eru allir sem eru eitthvað annað en
venjulegir með sina eigin siðu á Myspace.
Myspace er sniðugt fyrir tónlistarmenn
og hljómsveitir og listamenn og hönnuði
og hjálpar fólki til að kynnast fjölda fólks
um allan heim.
Þegar flakkað er um Myspace tekur
maður fljótt eftir ákveðnum einkennum
og trendum og hér kemur listi sem ætti
að hjálpa öllum þeim sem langar að
halda úti sinni eigin siðu en vita ekki
alveg hvar á að byrja.
Myndin
Myndin af þér skiptir öllu máli á My-
TÍ space og hún má umfram allt alls
ekki vera einhver venjuleg passamynd.
Best er ef myndin er tekin á hlið og þú
lítur í myndavélina með kúl glotti (stút
á munn, pira augun, ekki brosa). Það
er lika algengt að hafa mynd með hend-
urnar fyrir andlitinu, svona létt útfærsla
af algengustu byrjun i öllum fristæl-
dönsum sem teknir hafa verið í Tónabæ.
Bakgrunnurinn
Bakgrunnurinn á siðunni segir
margt um þig, hver þú ert, hvað þú
ert að gera, hvert þú ert að fara. Teikn-
ingar eftir sjálfa/n þig, krot eða jafnvel
óskiljanleg animation kemur sterkt inn.
Einnig er flott að vera með götumynd frá
einhverri kúl borg sem þú hefur farið til
eins og New York, Paris eöa Berlín.
Nafn eða viðurnefni
iS* Á Myspace heitir enginn Guð-
mundur eða Jóhanna, nema við
það sé bætt einhverju tvisti. Dæmi
Guðmundur verður G. undur og Jóhanna
verður Dj Jó hó.
Einkennissetningin
Eitt stutt og laggott komment við
TÍ hliðina á mynd og nafni. Þetta er
setning sem skilgreinir þig, segir allt
en samt ekki neitt, gæti verið kvót úr
biómynd eða vísun i einkahúmor sem
til varð á einhverju fyllirii. Notaðu gæsa-
lappir og HÁSTAFI. „ “Neo rocker”, „shit
focks”, „trend rocks”, „DREYMANDI", „I
bring fever to the computer”.
Vinalistinn.
Hann er aðalsmerki siðunnar og
hér sést livort að þú ert kúl eða
ekki, hvort þú þekkir virkilega einhvern
flottan. Á vinalistanum er mjög gott að
liafa einhvern sem starfar annaðhvort
sem stílisti í New York eða plötusnúður i
Berlin, hreyfilistamaður frá Prag og Ijóð-
skáld og gjörningalistamaður frá Helsinki
Generalinn
Hérna er dálkur þar sem þú átt að
fylla út áhugamál þin og nú er um
að gera að telja upp sem flest og sem
frumlegast. Hér dugir ekkert fegurðar-
drottningarkjaftæði eins og lestur góðra
bóka og ferðalög. Vertu nákvæm/ur og
gerðu ítarlegan og langan lista. Hér er
allt í lagi að Ijúga.
Music-listinn
Hér er allt i bland og listinn skal
TÍ vera langur, íslenskar hljómsveitir,
gamlir erlendir klassikerar, underground
og dj-ar sem ekki margir þekkja koma
hér sterkt inn. Hér skaltu sýna að þú sert
i. íSmr?-
„Við félagarnir í Baggalúti
erum að fara að spila á tón-
leikum á Nasa í kvöld á vegum
Samfylkingarinnar,“segir Bragi
Valdimar Skúlason, meðlimur
hljómsveitarinnar. „Tónleikarnir
hafa yfirskriftina: Rokk gegn
biðlistum og þar sem við erum
hvorki rokksveit né á móti
biðlistum þá fannst okkur alveg
kjörið að taka giggið að okkur.“
Bragi vill taka það fram að
hljómsveitarmeðlimir eru ekki
endilega yfirlýstir stuðnings-
menn Samfylkingar og að þeir
hafi ákveðið snemma að spila
fyrir alla sem óska eftir þeim.
„Þetta var mjög skynsamleg
ákvörðun og ég held að hljóm-
sveitin sé búin að spila fyrir nán-
ast alla flokka, það er alla vega
ekki mikið sem við setjum fyrir
okkur í þessum efnum.“
Það fer annars ekki mikið fyrir
plönum hjá Braga fyrir þessa
helgi. „Ég ætla að grafa mig ein-
hvers staðar niður og halda sem
mest kyrru fyrir. Ég er ekki mikið
fyrir að gera
helgarplön, vil helst láta þetta
ráðast því að annars gerist
aldrei neitt skemmtilegt. Það
gæti f)ó verið að ég skelli mér í
bíó. Urvalið sem bíóhúsin bjóða
upp á er reyndar ekki upp á
marga fiska þannig að ég býst
við að kasta tening upp á það.
Ætli ég lendi ekki á einhverri
æsispennandi mynd um eitt-
hvert morð á einhverjum forseta
Bandaríkjanna.“
Bragi segir að nóg sé að gera
hjá hljómsveitinni þessa dagana
og finnur að kántríið fer vel í
landann. „Það er alveg furðulegt
hvað fólk hefur mikinn áhuga á
kántrítónlist og við höfðum ekki
mikið álit á þessari tónlist þegar
við byrjuðum á þessu hljómsveit
arbrölti. Við vanmátum þjóðina í
þessum efnum og hefðum aldrei
gert okkur í hugarlund að tónlist-
arsmekkurinn væri með þessum
hætti.“
Næst á dagskrá hljómsveit-
arinnar er að spila á 1. maí
hátíðarhöldum á vegum borg-
arinnar. „Þá munum við spila
í kröfugöngu fyrir alla nýríku
lögfræðingana og það verður
væntanlega heitur baráttuandi i
mönnum í þeirri kröfugöngu."
alæta a tonlist en filir samt alls ekki neitt
sem allir aörirfíla.