blaðið - 09.06.2007, Síða 4

blaðið - 09.06.2007, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 blaðið INNLENT EIMSKIP Dalfoss bætist í flotann Nýtt frystiskip Eimskips var nefnt Dalfoss viö hátíð- lega athöfn í Sundahöfn í gær. Þetta er í fyrsta skipti sem skip er nefnt í Sundahöfn. Dalfoss er bæði frysti- og gámaskip, er 82 metra langt og 16 metra breitt og er það sérstaklega styrkt til siglinga í ís. NEYTENDAMÁL Samið við Kína um upplýsingaskipti Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Zohua Bo- hua, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Kína, hafa undirritað samkomulag milli viðskiptaráðuneytis (slands og ríkis- stjórnsýslu iðnaðar- og viðskipta í alþýðulýðveldinu Kína um upplýsingaskipti á sviði neytendaverndar. ACTAVIS Tilboði Novators í félagið hafnað Stjórn Actavis hefur hafnað tilboði Novators, félags í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarformanns Actavis, sem birt var hluthöfum þann 1. júní síðastliðinn. Novator bauð 0,98 evrur á hlut í reiðufé en stjórn Actavis taldi tilboðið ekki endur- spegla raunverulegt virði félagsins og framtíðarmöguleika þess. Álver Alcoa á Reyðarfirði vígt Hátíð í Fjarðabyggð Vígsluhátíð álvers Alcoa á Reyðarfirði verður haldin í Fjarða- byggð í dag. Mikið verður um dýrðir í Fjarðabyggð á morgun. „Við erum að fagna þessum áfanga með samfélaginu hérna og því fólki sem hefur barist fyrir því að þetta álver yrði reist. Og öllum er að sjálfsögðu velkomið að koma og fagna með okkur,“ segir Erna Indriðadóttir, upplýsingafulltrúi Alcoa á íslandi. Að sögn Ernu verður mikið um að vera fyrir alla um allan bæinn. „Þetta verður á við þjóðhátíð," sagði Erna. Aðalforstjóri Alcoa og Geir H. Haarde forsætisráðherra eru meðal gesta sem verða viðstaddir setningu hátíðarinnar í Fjarða- byggðarhöllinni klukkan to, en hin almenna dagskrá hátíðarinnar hefst klukkan 13. Gangsetningu ál- versins lýkur í lok þessa ár og mun framleiðslugeta þess verða 346 þús- und tonn á ári. Álverið mun veita um 400 manns atvinnu. Finnsk gæðahús Tiibúln tii uppsetningar Frábært verð JABO HUS Ármúla 36 R. S 581 4070 www.bjalkabustadir.is NYJAR VORUR Jakkar Stuttkápur Sumarúlpur Mörkinni 6, Símí 588-5518 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16 BMið/Mi Búist við kennaraskorti víðast hvar á landinu: Margir hafa fengið nóg ■ Auglýst eftir áttatíu kennurum í Reykjavík ■ Stöðugildum fjölgar í haust Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net Auglýst er eftir um áttatíu grunn- skólakennurum hjá Reykjavíkur- borg sem þýðir að í hvern skóla vantar að meðaltali tvo kennara. Þorgerður Diðriksdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, segir þetta ástand ekki vera einskorðað við Reykjavík. Kennsluskyldan minnkar úr tuttugu og sjö í tutt- ugu og sex tíma á viku næsta haust samkvæmt kjarasamningi en und- irbúningstíminn eykst að sama skapi. Þessi fækkun hefur i för með sér fjölgun stöðugilda en Þorgerður segir það þó ekki helstu ástæðuna fyrir kennaraskortinum heldur sé hún fyrst og fremst sú að kennarar séu að segja störfum sínum lausum. Vöruðu við þessu allan tímann Þorgerður segist hafa heyrt frá stjórnendum að það sé erfitt að ráða kennara í þær stöður sem eru lausar. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, hefur sömu sögu að segja. Bætir hann við að það virðist vera nokkuð um það að grunnskólakennarar færi sig á milli skólastiga vegna launanna og þá sér- staklega yfir til leikskólanna. Segir hann að þetta ástand hafi verið svolítið fyrirséð þar sem ekki náð- ist eðlileg og sanngjörn leiðrétting launa samkvæmt kjarasamningi. „Það er ákveðnum hópi sem er nóg boðið og fer þess vegna. Þetta er eitt- hvað sem menn bentu á og vöruðu við allan tímann.“ Núverandi kjarasamningur gildir til maí 2008 og segir Ólafur að það geti verið að ákveðinn hópur ætli ekki að taka ákvörðun fyrr en vitað er hvað komi út úr næstu kjaravið- ræðum. Það eigi því enn eftir að koma í ljós hver fækkunin á grunn- skólastigi er. „Ef ekkert gerist við næsta kjarasamning gætum við lent í annarri holskeflu. Það eru margir sem ætla að bíta á jaxlinn og þreyja þorrann í eitt ár. Vinna við undir- búning að næsta kjarasamningi er nú í gangi og bindum við miklar vonir við það að sú vinna skili okkur áfram“. Seinna sótt um störf nú en áður Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofu- stjóri Skólaskrifstofu Hafnarfjarð- arbæjar, segist ekki vita til þess að grunnskólakennarar í Hafnarfirði hafi verið að færa sig yfir til leik- skólanna. í bænum vantar nú að- eins fleiri kennara en á sama tíma í fyrra en það hefur gengið svipað og undanfarið að ráða í stöðurnar. Hún segir þó fólk seinna að svara at- vinnuauglýsingum en vanalega og vanti ennþá svolítið af kennurum. „Það er ágæt hreyfing í ráðningum hjá okkur þannig að við erum ekk- ert orðin þunglynd yfir þessu. Við eigum ekki von á því að þetta verði mikið vandamál." Gunnar Gíslason, fræðslustjóri hjá Akureyrarbæ, segir að það hafi gengið ágætlega að ráða kennara. „Við höfum verið í góðum málum á undanförnum árum en það er þó meiri hreyfing innan kennara- stéttarinnar en hefur verið. Ég veit hins vegar af þó nokkrum kenn- urum sem eru að flytja í bæinn. Þetta virðist því ekki ætla að vera neitt vandamál hér. Þetta vill þó stundum breytast þegar fer að líða á sumarið en ég hef ekki trú á þvi að það muni gerast hér.“ Landsvirkjun rannsakar Gjastykki: Forkastanleg vinnubrögð Jón Sigurðsson, fyrrum iðnaðar- og viðskiptaráðherra, veitti Lands- virkjun rannsóknarleyfi á Gjástykk- issvæðinu í Mývatnssveit tveimur dögum fyrir alþingiskosningarnar í maí. Leyfið, sem gildir til þriggja ára, er eina rannsóknarleyfið sem veitt hefur verið á þessu ári. Til- kynning um leyfisveitinguna hefur hvorki birst á vef ráðuneytisins né Landsvirkjunar. Árni Finnsson, formaður Nátt- úruverndarsamtaka íslands, segir vinnubrögðin forkastanleg, ekki síst í ljósi ummæla Framsóknar- flokksins fyrir kosningar um að ná fram þjóðarsátt í virkjunarmálum. „Síðan er þessu rannsóknarleyfi úthlutað tveimur dögum fyrir kosningar, sjálfsagt vitandi það að Framsóknarflokkurinn myndi tapa fylgi í kosningunum. Hann hefði að minnsta kosti átt að bíða með að veita leyfið þar til eftir kosningar þegar hann sæi hvort hann hefði umboð tilþéss,“ segir Árni. JRT------5------ m Ostasneiðar eru ómissandi í ferðalagið Nú er 20% crfslóttur af Samlokuosti í sneiðum í sérmerktum umbúðum í nœstu verslun.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.