blaðið - 09.06.2007, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007
blaðið
Bakkavör Group:
Tapar gegn
Bakkavör ehf.
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær að eignarhaldsfé-
lagið Bakkavör ehf. fái að halda
nafni sínu. Bakkavör Group, sem
er í eigu þeirra bræðra Ágústs
og Lýðs Guðmundssonar, haíði
farið fram á að eignarhalds-
félaginu yrði meinað að nota
nafnið og skráning þess afmáð
úr hlutafélagaskrá. Bakkavör
Group var einnig dæmt til
að greiða allan málskostnað,
alls 300 þúsund krónur.
Eftirlaunasamningur viðurkenndur með hæstaréttardómi:
Kaupréttur hluti af launakjörum
Hæstiréttur viðurkenndi á
fimmtudag með dómi rétt Sigurðar
Helgasonar, fyrrum forstjóra og
stjórnarformanns Flugleiða, til
að efirlaunasamningur sem hann
gerði við fyrirtækið fyrir 30 árum
taki tillit til þeirra launakjara sem
felast í kauprétti.
Samningurinn sem Sigurður
gerði árið 1977 miðaðist við að eftir-
laun hans yrðu meðaltal átta hæst
launuðu starfsmanna fyrirtækisins
utan forstjóra og stjórnarformanns.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson,
hæstaréttarlögmaður hjá Lands-
lögum ehf., sem flutti málið fyrir
hönd Sigurðar, segir að i dómnum
felist viðurkenning á því að kaup-
réttur sé hluti af launakjörum
þrátt fyrir að hann hafi ekki verið
þekktur sem slíkur á þeim tíma
sem samningurinn var gerður.
„Árið 1977 var kaupréttur nánast
óþekktur á Islandi eftir því sem ég
best veit en í eftirlaunasamningum
er alltaf talað um laun. Við erum að
fá viðurkenningu á því að í hugtak-
inu laun sem þarna var um samið
felist ábótargreiðslur. Þar á meðal
verðmæti kaupréttarsamninga.“
Vilhjálmur segir dóminn hafa
slíkt fordæmisgildi að hann slær því
föstu að kaupréttarsamningar séu
hluti af launakjörum. „Annað for-
dæmisgildi um einstök mál hefur
hann ekki. Þessi eftirlaunasamn-
ingur er auðvitað gerður persónu-
lega við Sigurð Helgason.“
Vilhjálmur segist ekki gera sér
grein fyrir hversu miklar upphæðir
er um að ræða.
„Þetta eru háar fjárhæðir. En
hverjar þær eru treysti ég mér ekki
til að segja í dag.“
Atlantsolía:
Litað bensín
Atlantsolía hefur skorað
á fjármálaráðherra að heim-
ila sölu á lituðu bensíni til
notkunar á tækjum og búnaði
sem ekki er í notkun á vegum
landsins. Fjármálaráðherra
hefur falið starfshópi sem á að
gera tillögur um heildarstefnu
um skattlagningu ökutækja
og eldsneytis að skoða málið.
Hugi Hreiðarsson, markaðs-
stjóri AtlantsoHu, segir þetta
mikið hagsmunamál fyrir
neytendur. Þannig geti verðið
á litaðri bensínolíu lækkað
niður í 75 til 85 krónur.
Umfangsmiklar skipulagsbreytingar hjá Baugi:
Jón Ásgeir hættir sem forstjóri
Jón Ásgeir Jóhannesson hefur
látið af störfum sem forstjóri Baugs
Group og við starfi hans tekur
Gunnar S. Sigurðsson sem gegnt
hefur starfi framkvæmdastjóra fjár-
festingasviðs. Jón Ásgeir mun taka
við stjórnarformennsku í félaginu,
auk þess sem hann verður stjórnar-
formaður FL Group. Hreinn Lofts-
son sem áður var stjórnarformaður
mun sitja áfram í stjórn félagsins.
Þetta var tilkynnt á aðalfundi félags-
ins í gær, en jafnframt hafa verið
gerðar umfangsmiklar skipulags-
breytingar innan fyrirtækisins.
Ákveðið hefur verið að stofna nýtt
félag, Stoðir Group, sem
verður að meirihluta
í eigu Baugs. Innan
þess verða stærstu
eignir Baugs á sviði fast-
eignareksturs og má
þar nefna Fast-
eignafélagið
Stoðir og eign-
arhluta þess
í Keops og
Nordicom í
Danmörku.
Eigið fé Stoða
Group verður aukið um 40 milljarða
króna og er stefnt að
því að skrá félagið í
OMX/Kauphöllinni
á næstu mánuðum.
Skarphéðinn Berg
Steinarsson verður
forstjóri félagsins
og Kristín Jó-
hannesdóttir
stjórnarfor-
maður.
E i n n i g
hefur verið
ákveðið að
færa allan verslunarrekstur Baugs
í Færeyjum og Islandi, sem og 45
prósenta eignarhluta Baugs í Húsa-
smiðjunni, undir Haga hf. Baugur á
96 prósent í Högum.
I tilkynningu frá Baugi Group
er haft eftir Jóni Ásgeiri að félagið
hafi sett sér það markmið að verða
stærsta fyrirtæki í heiminum í
fjárfestingum tengdum verslunar-
rekstri innan fimm ára. Eðlilegra
sé að hann sitji í hlutverki stjórn-
arformanns þar sem hann og fjöl-
skylda hans eigi 80 prósenta hlut í
félaginu.