blaðið - 09.06.2007, Side 10
10 LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007
blaðiö
UTAN ÚR HEIMI
ÍRAK
Tvö hundruð látnir
Tæplega tvö hundruð manns létust í ofbeldis-
verkum í Bagdad, fyrstu vikuna í júní. Lík 32
manna fundust á götum höfuðborgarinnar á
fimmtudag, en líkin báru þess merki að fórnar-
lömbin hefðu verið pyntuð og síðan skotin.
Innflytjendafrumvarp stöðvað
Frumvarp til breytinga á bandarískum innflytjendal-
ögum var fellt í öldungadeild þingsins, en ákvörðunin
þykir áfall fyrir Bush. Frumvarpið hefði þýtt hert landa-
mæraeftirlit, en um leið gert tólf milljónir ólöglegra
innflytjenda í landinu að löglegum íbúum.
SPÁNN
Baskaleiðtogi handtekinn
Lögregla á Spáni handtók Arnaldo Otegi, leiðtoga Batasuna,
bannaðs flokks baskneskra aðskilnaðarsinna. Skömmu áður
hafði ETA tilkynnt að vopnahlé væri ekki lengur í gildi. Otegi var
handtekinn til að hann geti byrjað að afplána 15 mánaða fang-
elsisdóm sem hann fékk fyrir að vegsama hryðjuverk.
YFIRLÝSINGAR
VIÐ LOK FUNDAR
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
Framsóknarflokkurinn
Valgerður ein
í framboði
Miðstjórnarfundur Fram-
sóknarflokksins fer fram á
morgun. Fyrir fundinum liggur
meðal annars að kjósa nýjan
varaformann í stað Guðna
Ágústssonar. Guðni tók sem
kunnugt er við formennsku í
flokknum eftir að Jón Sigurðs-
son sagði af sér í kjölfar fylgis-
hruns flokksins í nýloknum
alþingiskosningum. Valgerður
Sverrisdóttir er enn sem komið
er eini frambjóðandinn í emb-
ættið. Hún mun því að öllum
líkindum verða fyrsta konan
til að gegna embættinu. Alls
eiga 170 fulltrúar seturétt á
fundinum sem verður haldinn
á Grand Hóteli í Reykjavík.
Hvalir hafa að ein-
hverju leyti áhrif
Hvalir eiga sök á meira en þriðj-
ungi af öllu afráni á loðnu, en
loðnan hefur gegnum árin verið
ein af meginuppistöðunum í fæði
þorsks. Er hvalur því viðamesti sam-
keppnisaðili þorsks um fæðu og á
sök á töluvert stærri hluta ársafráns
af loðnu en maðurinn samkvæmt
áætluðum tölum frá Hafrannsókna-
stofnuninni. Þá sýna rannsóknir að
sveiflur í þyngd þorsks hafa fylgt
sveiflum í stofnstærð loðnu undan-
farna áratugi.
„Rannsóknir hafa sýnt að hvala-
stofn geti haft einhver áhrif á af-
komu þorsksins vegna afráns af
loðnu,“ segir Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar-
innar. „En við viljum auðvitað ekki
útrýma hval og það er spurning
hversu langt þyrfti að ganga í að
grisja hvalastofninn til að það skil-
aði einhverjum árangri. Hins vegar
hafa sérfræðingar bent á að stækki
hvalastofninn mikið kemur það lík-
lega niður á öðrum nytjastofnum."
ríkin hygðust standa við þau loforð
um aukna þróunaraðstoð við fátæk-
ustu ríki heims, sem gefin voru á
fundi leiðtoganna í Gleneagles í
Skotlandi árið 2005.
Fundurinn lagði sérstaka áherslu
á málefni Afríku á síðasta degi fund-
arins, en leiðtogar sex Afríkuríkja
mættu til fundarins í gær. George
Bush Bandaríkjaforseti missti af
fyrstu klukkustundunum eftir að
hann kenndi sér meins i maga. Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
sagði að fundurinn í Heiligendamm
hefði verið gríðarlega árangursríkur.
„Við ítrekuðum hver markmið okkar
eru og náðum samkomulagi um
hvernig við ætlum að ná þeim fram.“
Meðal ákvarðana sem teknar
voru í Gleneagles var að afskrifa
skuldir átján Afrikuríkja, og viður-
kenna flestir að nokkur árangur
hafi náðst eftir það. Þannig hefur
stjórnvöldum í Sambíu tekist að
bjóða upp á ókeypis sjúkraþjónustu
í sveitum landsins. Hins vegar er
talið að ekki hafi tekist að hrinda
öðrum stefnumálum í framkvæmd
með fullnægjandi hætti, svo sem
loforði um aukna þróunaraðstoð til
Afríkuríkja og að vinna að frjálsara
viðskiptaumhverfi í álfunni.
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims
tilkynntu í gær að þau hefðu skuld-
bundið sig til að verja andvirði tæp-
lega fjögur þúsund milljarða króna
til baráttunnar gegn alnæmi og
öðrum skæðum sjúkdómum á borð
við malaríu og berkla í Afríku. Að
sögn munu Bandaríkjamenn út-
vega helming þess fjár. Á síðasta
degi fundar leiðtoganna í Heiligend-
amm í Þýskalandi ítrekuðu þeir að
■ Stuðningur við frekari refsiaðgerðir
gegn íran, hætti irönsk stjórnvöld ekki
að auðga úran.
■ G8-ríkin munu styðja frekari refsiað-
gerðir gegn Súdan, styðji þarlend stjórn
völd ekki tilraunir alþjóðlegra aðila til að
binda enda á deiluna í Darfúr-héraði.
■ Stjórnvöld I Norður-Kóreu skulu hætta
tilraunum með eldflaugar sem geta
borið kjarnaodda.
■ Ekki náðist samkomulag um hvernig
skuli haga málum varðandi Kosovo-hérað.