blaðið - 09.06.2007, Side 37
blaðið
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2007 37
yfirhöfuð er nú samt bara gaman að
þessu. Ég er heldur ekki orðin altal-
andi á frönsku og þá upplifir maður
sig stundum aðeins útundan, bara
eins og alls staðar. En ég get reddað
mér og þetta kemur með tímanum.
Maður reynir bara að læra sitthvað
af þjónunum á kaffihúsunum og
konunni í bakaríinu og það hefur
gengið ágætlega.
Ég er búin að kynnast mörgu
góðu fólki. Ég hafði auðvitað komið
hingað svo oft áður þannig að ég
þekJkti fullt af fólki áður en ég flutt-
ist alveg hingað. Síðan er svo mikið
af íslendingum hér. Það er mikið af
krökkum úr Listaháskólanum sem
koma hingað í mánuð og mánuð í
senn þannig að við erum svona smá
íslendingagrúppa hérna og við hjálp-
umst að.“
Er ekki með heimþrá
Thelma segist sakna sundlaug-
anna heima einna helst, fyrir utan
ættingja og vini. „Ég get ekki beðið
eftir því að komast í frí í ágúst og
fara í sundlaugarnar. Svo sakna ég
auðvitað líka náttúrunnar en ann-
ars hef ég það svo gott hérna að ég
get ekki sagt að ég sé með heimþrá
þótt ég hugsi auðvitað heim reglu-
lega. Það er bara verst að maður geti
ekki keypt íslenskt vatn hérna ein-
hvers staðar.
Ég hef reynt að ferðast aðeins um
Frakkland og hef þá aðallega farið til
Suður-Frakklands sem er yndislegt.
Það er alveg nauðsynlegt að komast
aðeins í burtu og út úr París þar sem
það geta verið mikil læti og erill inni
í borginni, en um leið og maður er
kominn aðeins út fyrir hana þá nær
maður að slappa af.
Annars eru margir staðir í París
í miklu uppáhaldi hjá mér. Það er
æðislegt að fara í Lúxemborgargarð-
inn en svo á ég heima svo nálægt Eif-
fel-turninum að ég fer oft í garðinn
sem er við hann. Eg er reyndar ekki
alveg svo heppin að vera með útsýni
yfir turninn en ég er bara í tíu mín-
útur að rölta þangað.
Mér finnst annars að fólk sem
heimsækir París eigi aðallega að
rölta um borgina og njóta alls þess
sem hún hefur upp á að bjóða. Og svo
mæli ég með siglingu á Signu, það
er nauðsynlegt að fara í kvöldverð
á góðum veitingastað og fara svo
í siglingu og upplifa rómantíkina.
Einn af mínum uppáhaldsveitinga-
stöðum heitir Julien og er í tíunda
hverfi. Hann er alveg ofboðslega
fallegur. Þar eru allar innréttingar
og málverk friðuð enda aldagamall
staður sem er algjör gullmoli.
„Ég er ekki orðin altalandi
áfrönsku og þá upplifir
maður sig stundum aðeins
útundan, bara eins og alls
staðar. En ég get reddað
mér og þetta kemur með
tímanum. Maður reynir
bara að læra sitthvað af
þjónunum á kaffihúsunum
og konunni í bakaríinu og
það hefur gengið ágætlega.".
Það er annars ekki ódýrt að lifa
í París þótt ég taki ekki mikið eftir
því fyrir utan leiguna. Auðvitað fer
þetta aðallega eftir því hvar maður
borðar og í hvaða hverfum verslað
er og svoleiðis. Þetta er misjafnt
eftir hverfum. Það er til dæmis mun
dýrara að versla hér í mínu hverfi
heldur en til dæmis í tíunda hverfi.
En ef maður er hagsýnn þá getur
maður sloppið vel.“
Ætlar að taka Evrópu með trompi
Thelma hefur hingað til staðið ein
í rekstri á fyrirtæki sínu en hefur
núna stækkað við sig og ráðið sér
samstarfskonu. „Það er full vinna
hjá mér að gera spangirnar og þar
að auki hef ég séð um allt innan fyr-
irtækisins sem tekur sinn tíma og
kemst lítið annað að. Ég er með eina
manneskju í vinnu hjá mér núna og
hún aðstoðar mig svona með allt
sem þarf að gera. Þannig að fyrir-
tækið fer smám saman stækkandi,
en eins og er erum við bara tvær í
litla fyrirtækinu mínu.
Núna er ég á fullu að byggja fyr-
irtækið upp og er á leiðinni í lok
mánaðarins til Tókýó á svokallað
showroom. Á síðasta showroomi
seldi ég vel til Tókýó og upp frá því
hafði ég samband við Útflutningsráð,
en við erum að fara nokkrir hönn-
uðir á vegum þeirra. Þar verð ég i tíu
daga og er mjög spennt. Að því loknu
fer ég í tveggja vikna söluferð um Evr-
ópu sem ég ætla að taka með trompi.
Þannig að það eru bara skemmti-
legir hlutir hjá mér framundan og ég
get ekki sagt annað en að ég sé mjög
heppin. Það eru forréttindi að fá að
vinna við það sem maður elskar. Það
eru ekki allir sem geta lifað á því að
vera hönnuðir í dag en það kom ekk-
ert annað til greina hjá mér.
Ég ákvað að einbeita mér alveg
að spöngunum mínum eftir að
skólanum lauk og það hefur gengið
framar björtustu vonum. Svo er
spurning hvort ég fari eitthvað út
í meiri fatahönnun í framtíðinni
en eins og er ætla ég bara að gera
spangir og hatta. Það er líka mjög
gott að vera svolítið sérhæfður.
Astríðan liggur í þessu hjá mér í
dag. Það hefur líka verið lítið um
spangir og höfuðföt eins og ég er að
gera. Stóru merkin eru rétt að byrja
á þessu núna og eru að koma með
þetta inn á sýningar þannig að þetta
er svona hægt og rólega að koma inn,
en ég er ekki með neitt rosa mikla
samkeppni í þessu þannig að það
er voða gaman að vera að starta ein-
hverju svona. Þannig næ ég að skapa
mér sérstöðu.“
Gengur vel í Japan
Thelma segist hafa verið saum-
andi frá því að hún man eftir sér.
,Amma var handavinnukennari
og ég lærði mikið af henni. Sá lær-
dómur nýtist mér vel núna þar sem
ég handsauma hverja einustu spöng
og höfuðfat. Auðvitað er gífurleg
vinna á bak við hverja og eina spöng
en hver og ein verður þá sérstök.
Hingað til hefur ekki reynst erfitt að
fá hugmyndir. Ef maður gerir góða
undirbúningsvinnu og skoðar sig
um og svoleiðis þá kemur þetta. Ég
hef verið að vinna mikið með bóm-
ull en annars nota ég allskonar efni,
það fer bara eftir því sem ég kemst í
og finnst spennandi.
Það hefur gengið mjög vel að selja
og þá sérstaklega hérna heima en ég
sel eiginlega mest í Trilogiu eins og
er. Það er ekki alveg komin reynsla
á það í Japan þar sem ég er svo ný-
farin að selja þar, en ég er allavega
að fá stórar pantanir þaðan og það er
æðislegt. En það tekur líka tíma að
afgreiða hverja pöntun fyrir sig. Ég
á auðvitað ekkert á lager þannig að
ég bíð bara eftir pöntun og svo byrja
ég að framleiða. Svo felst mikil papp-
írsvinna í þessu þannig að það tekur
nokkra mánuði að afhenda þetta. Ég
læri líka heilmikið á viðskiptahliðina
með þessum rekstri og maður lærir
eiginlega bara jafnóðum. Maður
verður bara að reka sig á, skella sér í
þetta og gera það sem maður heldur
að sé rétt. Það hefur hingað til gengið
vel. í þessum bransa verður maður
að kasta sér i djúpu laugina og vona
að allt fari vel“.
hilda@bladid.net
HJALLASTEFNAN
er öflugt menntafyrirtœki þar sem jafnrétti kynjanna, sköpun og ímyndunarafl, félagsfœrni og einstaklingsstyrkur er í fyrirrúmi.
Við vöxum og döfnum, því bjóðum við nýtt fólk velkomið í hópinn
Við leitum eftir...
• Leik- og grunnskólakennurum svo og öðrum kennurum
• Starfsfólki til sérkennslu
• Matreiðslufólki og öðru starfsfólki í eldhússtörf
• Aðstoðarfólki í starf með börnum
• Starfsfólki til síðdegisstarfa
• Starfsfólki til dagræstinga og léttra húsverka
• Fjölbreytilegir vinnutímar eru í boði
8-15 fyrir leikskólakennara...
Hjallastefnan hefur endurskilgreint vinnufyrirkomulag leikskólakennara og annarra
í leikskólakennarastöðum. í fullu starfi fyrir þá sem það kjósa, mun nú felast dagleg
kennsluskylda milli 8 og 15 auk einnar klukkustundar á dag sem er til undirbúnings
starfinu. Fyrirkomulag undirbúningsvinnunnarersamkvæmtákvörðun hvers kenn-
ara. Yfirvinna er greidd fyrir allt starf með börnum umfram kennsluskyldu.
Við fögnum...
• Kennurum með fjölbreyttan náms- og reynslugrunn
• Fólki með háskólanám á sviði félags- og hugvísinda
• Listafólki á fjölbreyttum nótum
• Ungum sem öldnum og allt þar á millí
• Konum sem körlum
• Fólki úr fjölbreytilegum menningarheimum
• Einfaldlega öllum áhugasömum og jákvæðum samstarfsfélögum
Hjallastefnubrú...
Er ný námsleið sambærileg leikskólabrú fyrir leikskólaliða og hefst nú í
sumar. Námið er samhliða starfi og er 31 eining á einu skólaári og gefur
betri kjör og réttindi innan Hjallastefnuskóla. Tilvalið fyrir starfsfólk í
leik- og grunnskólum Hjallastefnunnar sem ekki hafa lokið kennaranámi
en hafa reynslu af skólastarfi.
www.hjalti.is C' -'X
Akursel, leikskóli Tjarnarbraut 1, Reykjanesbæ
Leikskólastjóri: Heiðrún Scheving Ingvarsdóttir
Sími: 8492375 • akursel@hjalli.is
Ásar, leikskóli Bergási 1, Garðabæ
Leikskólastjóri: Ágústa María Arnardóttir
Sími: 5640200 • asar@hjalli.is
Hraunborg, leikskóli á Bifröst, Borgarnesi
Leikskólastjóri: Anna María Sverrisdóttir
Sími: 4350077 • hraunborg@hjalli.is
Laufásborg, leikskóli Laufásvegi 53-55, Reykjavík
Leikskólastjórar: Jensína Hermannsdóttir og Matthildur Hermannsdóttir
Sími: 5510045 • laufasborg@hjalli.is
Barnaskóli Hjallastefnunnarf. 5 ára Vífilsstaðavegi 123, Garðabæ
Leikskólastjóri: Dóra Margrét Bjarnadóttir
Sími: 5557810-bsk7810@hjalli.is
Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ, Vífilstaðavegi 123
Skólastjóri: Þorgerður Anna Arnardóttir
Sími: 5557710 • barnaskolinn@hjalli.is
Hjalli, leikskóli Hjallabraut 55, Hafnarfirði
Leikskólastjóri: Guðrún Jónsdóttir
Sími: 5653060 • hjalli@hjalli.is
Ránargrund, smábamaskóli Ránargrund 3, Garðabæ
Leikskólastjóri: Hulda Hauksdóttir
Sími: 5640212 • ranargrund@hjalli.is
Barnaskóli Hjallstefnunnar í Hafnarfirði, Hjallabraut 55
Skólastjóri: Sara Dögg Jónsdóttir
Sími: 5557610 -bsk7610@hjalli.is
Hólmasól, leikskóli við Helgamagrastræti, Akureyri
Leikskólastjóri: Alfa Björk Kristinsdóttir
Sími: 4615363 • holmasol@hjalli.is
Allar nánari upplýsingar veita skólastjórar viðkomandi skóla eða Hulda Hauksdóttir í síma 8240272