blaðið - 06.07.2007, Side 10
FGSIuuAuliB 6. JULí 2007
bðaóið
Miðbæjarskipulag í auglýsingu
Deiliskipulagstillaga um miðbæ Selfoss hefur nú verið afgreidd á
aukabæjarstjórnarfundi þrátt fyrir ítrekaðar mótbárur minnihluta
bæjarstjórnar og hins þverpólitíska Miðbæjarfélags. „Þetta var fjör-
ugur fundur og stóð yfir í allt að tvo og hálfan tíma,“ segir Jón Hjart-
arson, forseti bæjarstjórnar. Skipulagstiliagan var samþykkt með
5 atkvæðum meirihlutans gegn 4 atkvæðum minnihlutans. „Það er
lýðræðisleg nauðsyn að koma tillögunni í auglýsingaferli svo íbúar
geti komið athugasemdum sínum á framfæri.“
bm
Verðlauna punktalausa
Elísabet hefur í þrjár vikur boðið þeim viðskiptavinum afslátt af
tryggingum sem standa sig vel, eins og Sjóvá hyggst nú gera. „Þeir
viðskiptavinir sem vilja vera með skila yfirliti yfir punktastöðu sína
til okkar og ef punktunum fjölgar ekki næstu tólf mánuði tekur við
frímánuður eftir það,“ segir Jón Páll Leifsson, rekstrarstjóri Elísa-
betar. „Með þessu viljum við hvetja til góðs aksturs á jákvæðan hátt,
en ekki með því að hóta refsingum. Okkur finnst þetta eðlilegra en
að tengja iðgjöld aldri, sem menn ráða auðvitað ekkert við.“
hos
Canon ixus 75
7,1 milljón pixla
3" skjár
Linsa 5.8 - 17.4mm
Myndskeið (video)
Sjálfvirk myndataka
2 eða 10 sek
IUamFetefm
Útlán banka til
heimila þrefaldast
■ Breytingar á íbúðalánamarkaði skýra aukninguna
Heildarútlán til heimila
Janúar 2004-aprí 2007, staða i lok mánaðar
Ma.kr.
2004
Innlánsstofnanir
2005 ' 2006 ' 2007
Lífeyrissjóðir I ~1 Ýmis lánafyrirtæki
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Skuldir heimilanna við innláns-
stofnanir hafa nánast þrefaldast frá
því í lok maí árið 2004, eða aukist úr
192 milljörðum króna í 745 milljarða
króna. Til innlánsstofnana teljast
viðskiptabankar, sparisjóðir og inn-
lánsdeildir kaupfélaga.
í nýjasta hefti Peningamála Seðla-
banka íslands er þessi mikla aukn-
ing skýrð með því að breytingar á
íbúðalánamarkaði hafi haft jákvæð
áhrif á einkaneyslu og skuldasöfnun
heimilanna. Um haustið árið 2004
hafi viðskiptabankar og sparisjóðir
komið af auknum krafti inn á íbúða-
lánamarkaðinn, sem hefur orðið til
þess að í apríl á þessu ári voru íbúða-
lán banka og sparisjóða orðin um 57
prósent af heildarútlánum þeirra.
I Peningamálum segir að sam-
keppnin hafi þó ekki leitt til mik-
illa vaxtalækkana á íbúðalánum,
heldur hafi hún orðið til þess að
auka aðgengi að lánum. Eftirspurn
eftir íbúðalánum hafi aukist tölu-
vert sökum þess að nú þurfi ein-
staklingar ekki lengur að safna upp
í ákveðinn höfuðstól til að kaupa
fyrstu eign sína, og sú aukna eftir-
spurn skýri skuldaukninguna.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja,
tekur undir þessa skýringu Seðla-
bankans. „Þaðsembreytistáþessum
árum er að bankarnir koma inn á
íbúðalánamarkaðinn, en þeir voru
þar að mjög takmörkuðu leyti áður.
Ekki var hátt hlutfall af þessum 192
milljörðum, sem heimilin skuld-
uðu innlánsstofnunum í maí 2004,
vegna íbúðalána. En einnig höfum
við verið á þeim stað í efnahagsupp-
sveiflunni að neysla hefur almennt
verið að aukast, sem veldur því að
fólk tekur almennt meiri lán.“
Spáð er rigningu!
Við kynnum Rán Light, léttan barnafatnað sem
er vatnsheldur, ófóðraður og andar vel.
Rán light byggir á Rán fatnaðinum sem var svo vinsæll hjá okkur í vetur.
Verð:
Jakki 5.500 - Buxur 3.700
Jakkar fást f gráu, rauðu, appelsinugulu, bláu og svörtu.
NORÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ:
Smáralind
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
www.66north.is
- 2
‘i
_ ■> •»
Landspítali-háskólasjúkrahús
Æ erfiðara gengur að fá lækna-
nema í framhaldsnámi til að taka
að sér sumarstörf á spífalanum.
Sumarvandræði spítala
Læknir vinnur í
48 klukkustundir
Erfitt hefur reynst að manna allar
stöður á Landspítala-háskólasjúkra-
húsi. Æ erfiðara reynist að fá lækna-
nema í framhaldsnámi til að vinna
á spítölunum yfir sumartímann, og
lenging og fjölgun fæðingarorlofa
veldur einnig vandræðum. „Ég
segi kannski ekki að það sé neyð-
arástand á spítalanum, en óhætt
er að segja að ástandið sé slæmt,“
segir Davíð Björn Þórisson, deildar-
læknir á slysa- og bráðadeild Land-
spítala-háskólasjúkrahúss. „Útskrif-
uðum læknanemum sem skila sér
til spítalans hefur ekki fjölgað, eins
og hefði þurft að gerast til að vega
á móti breyttu fæðingarorlofskerfi.
Það hefur einu sinni komið fyrir að
læknir á neyðarbílnum hafi þurft
að vinna 48 klukkustunda vakt. Yf-
irleitt hafa menn þó ekki þurft að
vinna meira en hefðbundnar vaktir.
En það hefur vissulega komið fyrir.“
hlynur@bladid.net
!