blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 38

blaðið - 06.07.2007, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 2007 blaóió FÓLK folk@bladid.net „Það væri nú gott! Við reynum samt frekar að laga þetta hjá okkur og notast við sömu stærð og aðrir." Þarf að stækka mörkin í Landsbankadeildinni? Ólafur Þórðarson er þjálfari Fram i Landsbankadeild karla í knatt- spymu. Liðið hefur misnotað allar þrjár vítaspyrnur sínar í deildinni fram til þessa sem hefur ekki gerst áður í efstu deild skipaðri tíu liðum, eðafráárinu 1977. HEYRST HEFUR Mál málanna þessa dagana er mark Bjarna Guðjónssonar gegn Keflvíkingum á miðviku- dagskvöldið, sem sumir segja að hafi verið óiþróttamannsleg framkoma Bjarna, þar sem honum bar siðferðisleg skylda til að skila boltanum til mót- herjans, eins og hefð er fyrir þegar andstæðingurinn sparkar knettinum út af þegar mótherji lýtur í gras. Kom til handalög- mála milli liðanna í búningsklefum og hótanir gengu manna á milli. Segja gárungar heppi- legast fyrir Bjarna að fara Krýsuvíkurl- eiðina næst þegar hann hyggur á ferðalög er- lendis, eða einfaldlega að taka Norrænu... í blíðviðrinu undanfarið hafa margir kosið að sleikja sólina í sundlaugum landsins. Er Vesturbæjar- laugin þar engin undantekning. Á meðal gesta hennar í vikunni var „stjörnu“- blaðamaður- innEiríkur Jónsson, sem skrifar nú í skemmtiritið Séð og Heyrt. Kaus Eiríkur að njóta blíðunnar í gufubaðinu og heita pottinum, en Eiríkur, sem er ;5 ára gamall, tók sig ágæt- lega út á skýlunni, þótt ekki hafi sést til hans við sundæfingar... Samkvæmt ofurbloggaranum Jóni Axel Ólafssyni er fyrrver- andi framkvæmdastjóri Skjás eins, Magnús Ragnarsson, nýjasti Latabæjarmeðlimurinn. Ekki mun hann þó tilheyra persónum og leikendum, heldur verður hann framleiðslustjóri þáttanna. Stefnt er á að fara í beina samkeppni við Saga Film, sem er eilítið skondið, því bæði Latibær og Saga Film eru að stórum hluta í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar... BLOGGARINN... Hallærislegt „Vilhjálmur frá LundúnumÞað ersvo hallærislegt þegarað fjölmiðlar “þýða" erlend nöfn yfir á íslensku. Samt ennþá hallærislegra þegar að það er talað um Vilhjálm og Kate. Afhverju erekki talað um Vilhjálm og Katrinu, eða Kötu? “ Kristín Alma Sigmarsdóttir kristinalma.blog.is Tapsár „Þessir aumingjans menn með Guðjón Þórðarson svífast einskis til að fá stigin í leikjunum. Þetta sástíkvöld. Ef SkagaskriH- inn hafði ekki ætlað sér að nota þessar óheiðarlegu aðferðir sem þeir notuðu, hvers vegna buðu þeirekki andstæðing- unum að byrja á miðju og leyfðu þeim að jafna fyrir mistök sín. Auðvitað gerðu þeir það ekki vegna þess að Gaui og hans hyski notar öll brögð til að bjarga sér. Þetta er það aumasta sem ég hef séð i fót- boltanum. Ég vona að Skagaskríllinn falli." Sveinn Elías Hansson sveinneh.blog.is Fermingarspillir „Ólafur Ólafsson íSamskipum fer á þyrlu isveitina, spillir fermingarboðum, fætir hross nágrannans, svo að hann dettur af baki. Sambýlið á Miðhrauni ÍMiklaholts- hreppi er efni í islendingasögu. Frétta- blaðið sagði frá ifinni frétt í gær. Að hefð þrasgefinna ísiendinga á Ólafur í landamerkjadeilum við meðeiganda sinn að Miðhrauni, Sigurð Hreinsson. Ólafur segist fara að lögum í fluginu. Hægt er að fara i senn að lögum og vera nágranni frá helvítiá 101 mismunandi veg. Ekki þarf fétagsþroska til að eignast fé og enn síður leiðirþað til gæfu. Ætli Sigurður svari með sögunarmyllu?" Jónas Kristjánsson jonas.is Bjami Arason fagnar tímamótum Tvítugur Látúnsbarki Bjarni Arason sló í gegn þegar hann sigraði í söngkeppni Stuðmanna, Látúnsbarkanum, aðeins 15 ára gamall. Það var árið 1987 og síðan eru liðin 20 ár. Bjarni segist fagna tímamótunum í hjarta sínu. Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net „Það verður engin skrúðganga svo sem af þessu tilefni, en ætli ég borði ekki bara góðan mat og svona,“ segir Bjarni sem ætlaði alltaf að verða leikari. „I fyrstu, já. Síðan þegar eistun duttu niður byrjaði ég að syngja. Ég hafði reyndar lært á trompet frá níu ára aldri og var einnig í lúðrasveit. Við tókum okkur nokkrir til og stofn- uðum bítlahljómsveit og það kom í minn hlut að syngja. Ég hafði frekar þroskaðan og fjölbreyttan tónlistar- smekk miðað við jafnaldra mína á þessum tíma og var mikið að hlusta á Elvis, Bítlana og þessi íslensku lög einnig. Hinir voru þá á kafi í Duran Duran og Wham.“ Hálfgerð tilviljun réði þvíað Bjarni skráði sig í Látúnsbarkann. „Ég sá þetta auglýst í Mogganum og mig langaði mikið að taka þátt MAÐURINN ► Bjarni tók þátt í undan- keppni Eurovision 1988 með lagi Jakobs Frímanns Magnússonar „Aftur og aft- ur“ og einnig árið 1992 með iaginu „Karen" eftir Jóhann Helgason og Björn Björns- son, sem lenti í 2. sæti. w Árið 1996 hlaut Bjarni til- ^ nefningu til íslensku tónlist- arverðlaunanna sem besti söngvarinn. Bjarni starfar nú sem dag- ^ skrárstjóri Bylgjunnar og Létt Bylgjunnar en þorði ekki. Vinur minn og síðar umboðsmaður, Hjalti Þorsteinsson, skráði mig þá án minnar vitneskju og þegar að þessu leið gat ég ekki skorast undan. Ég ætlaði í fyrstu að syngja Taktu til við að tvista, en valdi siðar Slá í gegn, sem var hæg- ara lag og hentaði tilefninu betur, má segja, ef maður skyldi nú slá í gegn!“ Bjarni hefurgefið út sex sólóplötur auk þess að syngja reglulega með Milljónamœringunum. „Það er ný plata á leiðinni frá Mill- unum í lok mánaðarins, þar sem ég sem eitt lag. Ég hef lítið gert af því hingað til en þetta er klárlega eitthvað sem mig langar til að gera meira af. Það gefur manni svo mikið að skapa og búa eitthvað til.“ Jakob Frímann Magnússon Stuð- maður man vel eftirþessum tíma. „Keppnin kom til vegna þess að Ragnhildur Gísladóttir átti að eiga barn þann 7. júlí og því þurfti að létta álaginu af henni. I raun gerð- ist því hinn íslenski málsháttur, að neyðin kennir naktri konu að spinna. Nafnið þróaðist frá Gullbark- anum í hið virðulega Látúnsbarka- nafn, enda höfðu þrír meðlimir Stuð- manna áður starfað í látúnssveitum, eða lúðrasveitum. Okkar fyrstu kynni af Bjarna voru eilítið skondin. Það var í forkeppninni á útisviði í Borgarfirði, þegar okkur sýndist ekki betur en svo að þessi fimmtán vetra fermingarsnáði væri nokkuð við skál. Vorum við á báðum áttum með að hleypa honum á sviðið en ekki var annað hægt en að sperra eyrun þegar hljóðin bárust úr ný- fermdu barninu, þrátt fyrir dálitla kaupstaðarlykt. í úrslitakeppninni bar hann síðan af og kom flestum í opna skjöldu með sinni hljómþýðu og djúpu barítónrödd. Við Stuðmenn verðum í bænum um verslunarmannahelgina, í Hús- dýragarðinum, og hver veit nema við fægjum eitthvert látún? Annars er Bjarni hinn eini og sanni látúns- barki og vert að óska honum til ham- ingju og þjóðinni til hamingju með látúnsbarkann sinn tvitugan." r f-tjó ofefeutr fÚíð f íð wátóð ucn/ai a-f loan^aloCÍ£tóium, Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is J. Su doku 2 9 3 1 7 6 6 7 1 1 9 2 5 9 7 1 2 1 6 4 9 3 4 5 8 7 3 4 8 8 6 2 5 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt I reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má apkip heJdutjið|ins,no^ einu ^sirujf inrjarÞ hvers níu reita fylkis. Unnfer ao feýsa þrautiná ut frá þeim tolum, sem uþp eru gefnar. HERMAN' eftir Jim Unger O LaughingStock Intemational Inc./dist. by Untted Media, 2004 Passaðu höfuðið á þér Elías

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.