Orðlaus - 01.12.2003, Blaðsíða 8

Orðlaus - 01.12.2003, Blaðsíða 8
Vilhelm Anton Jónsson Hver er besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ekki spurning, Kokkteil-hristari og playstation-tölva sem ég fékk frá kærustunni minni. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur fengið? Það eru eiginlega heil jól. Þegar við bjuggum í Skotlandi fengum við bræðurnir bara bækur frá íslandi. Það héldu allir að við myndum gleyma íslensku eða eitthvað. Mjög súrt að vera 10 ára og fá bara bækur og ullarsokka.... ekkert dót. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur gefið? Ekki gott að segja. Ég gef mikið af skrýtnum jólagjöfum og sumt fer fyrir ofan garð og neðan. Ég ber ekkert skynbragð á það hvort hlutir séu góðir eða vondir... mæli það bara í jólagjöfum sem ég fæ árið eftir. Hver er besta jólagjöf sem þú hefur gefið? Ég er svo hrikalega ánægður með þær jólagjafir sem ég gef. Áramótaferð til Austur-Berlín var mjög góð. Ég gef llka mikið af hljóðfærum, sérstaklega litlum börnum. Besta jólagjöfin sem ég gef núna verður hiklaust nýji Naglbítadiskurinn, Hjartagull, hann er frábær. Ásmundur Helgason. Hver er besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ofboðslega margar jólagjafir hafa verið ofboðslega góðar. Að minnsta kosti eru allar jólaminningar hlaðnar góðum gjöfum. Þó er gallinn að maður man ekki nógu langt aftur til þess að muna eftir því hvað gladdi mest 10 eða 12 ára gutta. En nú á síðustu árum hef ég sjaldan orðið jafnánægður með gjöf og þegar ég fékk skíði, með bindingum, í jólagjöf fyrir tveimur árum frá fjölskyldunni. Þetta voru s.k. Carving skíði og gjöfin kom mér algerlega í opna skjöldu. Gleðin var því mikil. Hver er besta jólagjöf sem þú hefur gefið? Það er nú einhvernveginn þannig að ég er ekki mjög góður í að hitta á vel heppnaðar gjafir. Þó koma dúkkuhús, Playstation 1 og 2 og annað stórtækt upp í hugann. En í fyrra hitti ég betur í mark en nokkurn tímann áður þegar ég gaf konunni minni Kósý pakka. í pakkanum var bók, náttföt, inniskór, svört Grand Marinier og rafknúið nuddtæki. Þetta urðu rosalega Kósý jól. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur gefið? Þegar ég var 12 eða 13 gaf ég mömmu forláta ausu sem ég hafði unnið hörðum höndum við að smíða í skólanum í þrjá mánuði. Ætlaði heldur betur að gleðja þá gömlu. Mamma kom henni fljótt í hvarf og alltaf þegar ég spurði hvort hún ætlaði ekki að nota ausuna í grautinn eða súpuna var viðkvæðið að ausan mætti ekki blotna. Ég hef aldrei séð ausuna síðan þennan aðfangadag. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur fengið? Stundum hefur maður fengið gjafir sem hafa ekki alveg hitt í mark hjá manni, ég hef líka fengið gjafir sem ég hef ákveðið að skila um leið og gjafapappírinn hvarf en aldrei hef ég beinlínis orðið vansæll og hreinlega sprungið af harmi, nema einu sinni. Ég var 8 ára og Bonanza var í sjónvarpinu í hverrí viku. Bonanza fjölskyldan samanstóð af nokkrum karlmönnum og var Ben þeirra myndarlegastur og hugrakkastur. Annar meðlimur fjölskyldunnar var maður að nafni Huss eða eitthvað álíka. Hann var eldri en Ben og nokkuð feitlaginn með hallærislegan hatt. Nú, upp úr jólapakkanum þetta árið komu sem sagt Ben og Huss nema hvað Gunni bróðir fékk Ben en ég Huss. Ég hætti ekki að berja Huss í gólfið (á bak við sófa) fyrr en hann var bæði handa- og höfuðlaus. Heiðar Kristjánsson Hver er besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Það er auðvitað hún Eneka Aris dóttir mín sem fæddist á jóladag árið 2000. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur fengið? Það er erfitt að gera upp á milli gjafanna sem ég hef fengið frá vinum mínum, þá aðallega Ragga, Sindra og Halla. En það er hugurinn sem gildir, er það ekki? Hver er besta jólagjöf sem þú hefur gefið? Það eru þær gjafir sem maður býr til, eða leggur mikla vinnu í sjálfur. Persónulegar gjafir. Reyni alltaf að gera sem mest af því fyrir hver jól. Hvað er versta jólagjöf sem þú hefur gefið? Örugglega allar æðislegu gjafirnar sem ég hef gefið Ragga í gegnum árin, í fyrra gaf ég honum t.d. fljúgandi jólasvein! Þóra Karítas Hver er besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Það er lítill pakki sem ég fæ á hverjum jólum með merkimiða sem á stendur: Til Þóru: Frá: Jóla. Pakkinn inniheldur nokkrar plötur af siríus súkkulaði og ég hef grun um að afi hafi lætt hugmyndinni að jólasveininum. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur fengið? Verst þykir mér að fá dýrar jólagjafir þá fæ ég bara samviskubit. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur gefið? Mér finnst alltaf svo gaman að gefa mömmu eitthvað fallegt í jólagjöf en einhvern tímann þegar ég var lítil og bjó út á landi þá hafði ég ekki haft nægan fyrirvara á jólainnkaupunum. Þá varð úr að ég gaf mömmu möndlugjöfina hennar ömmu í jólagjöf og ég skammaðist mín gríðarlega fyrir að hafa ekki hugað að einhverju sjálf. Hver er besta jólagjöf sem þú hefur gefið? Ég reyni oft að velja falleg orð á kortin sem fylgja gjöfunum til þeirra sem mér þykir vænt um. Arnþrúður Dögg Sigurðardóttir Hver er versta jólagjöf sem þú hefur fengið? Ég hef barasta aldrei fengið jólagjöf sem ég hef veið óánægð með, það þarf svo lítið til að kæta mig! Hver er besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Námskeið í samkvæmisdönsum Hver er versta jólagjöf sem þú hefur gefið? Nefhárasnyrtir! Hver er besta jólagjöf sem þú hefur gefið? Það er ekki séns að gera upp á milli, gef alltaf það sem mig langar í og þarsem ég er mikil smekkmanneskja þá eru þær allar frábærar eða ég held það að minnsta kosti! Sveppi Hver er besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Besta sem ég hef fengið var bókin “Þegar orð fá vængi” frá írisi konunni minni. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur fengið? Versta sem ég hef fengið var slímhendi og krukka með gormtrúð inní sem skaust upp þegar maður opnaði krukkuna frá John Inga vini mínum. Hver er besta jólagjöfin sem þú hefur gefið? Besta sem ég hef gefið var þegar ég gaf mömmu og pabba uppþvottavél ásamt bróður mínum. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur gefið? Versta sem ég hef gefið var mynd af mér í fallegum ramma sem ég gaf bróður mínum. Geir H. Haarde. Hver er besta jólagjöf sem þú hefur fengið? Miðað við mikilvægi á þeim tíma, held ég að besta jólagjöfin hafi verið Matador spilið, sem ég fékk frá bróður mínum þegar ég var sjö ára, og hafði þráð að fá allt haustið. í seinni tíð þykir mér meira til um hugarfar gefandans en innihalds pakkans. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur fengið? Hafi mér einhvern tíma þótt jólagjöf vond, hef ég ekki lagt á mig að muna hver hún var. Hver er besta jólagjöf sem þú hefur gefið? Kærleikurinn sem gjafirtil barna minna hafa verið vafðar í. Hver er versta jólagjöf sem þú hefur gefið? Bók sem ég eitt sinn laumaði í jólapakka og gaf sjálfum mér (frá Hilmari til Geirs!)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.