Orðlaus - 01.12.2003, Blaðsíða 12
+
Texti: Steinunn
T-SHIRT
Gulir, rauðir, svartir hvítir, röndóttir, doppótttir, víðir eða þröngir. Stuttermabolirnir eru þægilegir, fjölbreytilegir
og virðast alltaf vera í tísku. _ __ j__ - - -- -------— -------
. ! Kynþokkafullur klæðnaður
• I kringum 1960 fóru bolirnir að verða sérstakari er fólk fór að lita þá og prenta á
þá. Stuttermabolurinn hafði stigið eitt skref fram á við. Hann fór einnig að verða
kvenlegri þannig að hann gat höfðað til beggja kynjanna en ekki bara karlmanna
.. ! eins °g áður. Þekktar leikkonur eins og Marilyn Monroe fóru að sjást í bolum á
; i skjánum og mönnum þótti klæðnaðurinn kynþokkafullur. Framfarir í litun og
1 prentun skapaði einnig fjölbreytileika. (þróttaféiög fóru að prenta númer leikmanna
, sinna á þá og bandarísku háskólarnir eins og Harvard voru komnir með sína eigin
I 1 boli. Tískufyrirtækin tóku fljótt við sér og fóru að selja boli með merkjunum sínum
-r-rðPF' I | framan á dýru verði og þróunin hélt áfram.
Stuttermabolirnir urðu ekki áberandi fyrr en í byrjun fyrri heimsstyrjaldarinnar. i
Bandarísku hersveitirnar tóku eftir þægilegum klæðnaði evrópsku hermannanna 1
í sumarhitanum og fannst þeim hvítir stjuttermabolirnir mun flottari og hentugri,
klæðnaður en Ijótu og óþægilegu ullarbúningarnir þeirra. Eftir að hermennirnir1
snéru heim úr styrjöldinni urðu stuttermapolirnir síðan fljótt vinsælir hjá almenningi |
í BandirTkjunu7h“og hseirmi-heifnsstyriöWunni voiu_þeÍLOjð_nir hefðbundin undirföti
hjá hernum.
Stuttermabolurinn reyndist praktískur
og þægilegur og fór brátt að verða
hversdag-undirfatnaður. f kringum 1950
voru milljónir manna farnir að klæðast
bolunum og hægt var að fá þá í
fjölmörgum stærðum og litum. Ennþá
var þó litið á bolina sem innanklæðnað
og þótti ekki nógu góður fyrir fínni
kreðsur samfélagsins. Bláar gallabuxur
og hvítir stuttermabolir urðu fatnaður
verkamannastéttarinnar og fljótlega
einnig einkennisklæðnaður
uppreisnargjarnra ungmenna.
„Enjoy cocaine" og „Adfhash"
( kringum 1970 fóru slagorðin að
breytast og þróast og fyrsti Coca cola
bolurinn með áskriftinni „Enjoy
cocaine" varð til og á eftir fylgdu
„Adihash" í stað Adidas, „High-again"
í stað Heineken, Johnsons Baby Powder
verður að „Junkie's Baddy Powder" og
eitt frægasta skyndibitamerkið
McDonalds varð Marijuana. Menn fóru
að prenta alls kyns slagorð framan á
bolina, fyndin, pólitísk, kynferðisleg og
jafnvel hneykslanleg og má hér nefna:
EXPRESS YORSELF, HOT GIRL, FUCK ME
l'M FAMOUSI, I STILL HATE GEORGE
BUSH, SHIT HAPPENS og STOP LOOKING
AT MY ASS! svo nokkur séu nefnd.
Stuttermabolurinn á hvíta tjaldinu
Þegar stjörnur eins og John Wayne, Marlon Brando og James Dean komu þeim svo
yfir á hvíta tjaldið breyttist viðhorfið gjörsamlega. (myndin um kynþokkafulla
karlmenn í þröngum stuttermabolunum varð eins konar íkon og þá sérstaklega
eftir myndina Rebel Without a Cause árið 1955 sem skartaði James Dean í
aðalhlutverki. Elvis Prestley gerði stúlkurnar ekkert síður brjálaðar og seinna meir
John Travolta í svörtum þröngum bolnum sem hann klæddist í Grease.
t>0<AAA
ÞO<í
• 5 I M I 562-6600
-+
LAUC5AVEQI 30
LAUQAVEQI 30