Orðlaus - 01.04.2005, Page 8
Ég átti að hitta reykvísku diskórokkhljómsveitina Jeff Who? á
fimmtudagseftirmiðdegi, góðir strákar og myndarlegir, suma
þeirra kannaðist ég meira að segja við áður en við hittumst
og þessvegna gátum við sleppt vandræðalegum kynningum
- sem einkenna oft svona viðtöl - þegar við ætluðum að
byrja en ég krafðist þess samt að við tækjum þær upp því
ég er hræddur við að brjóta hefðina og kanna slóðir hins
ókunna, varpa viðtalinu á vit vitleysu og vonleysis (eða:
Hvað er að gerast núna?). Mæting Jeff Who? manna var
betri en gengur og gerist í almennum hljómsveitarspjöllum
(enda ungir drengir rómaðir fyrir kurteislega, en fucking
æsta spilamennsku sem lætur dansbeinin víbra og kollinn
kínkast) og því þurfti Orðlaus að hefja leikinn á dónaskap.
-Sælir strákar. Ég átti ekki von á
ykkur svona mörgum í þetta viðtal.
Það er gaman að sjá að þið hafið
allir áhuga á fjölmiðlun, en ég held
það verði best að við þykjumst að
það hafi bara verið tveir ykkar í
viðtalinu - þið megið ráða hverjir.
Það er auðveldara að skrifa þetta
þannig og þá verður textinn líka
fallegri. Eg get gefið ykkur bjór í
staðinn, Steinunn ritstýra virðist
ekki enn búin að missa trúna á mér.
Er það í lagi?
gefur þannig til kynna hvernig takturinn
í laginu ætti að vera. Út úr því fáum við
svo eitthvað bít, sem við byggjum lögin á
og skreytum, dansinn og partýið er fyrir
öllu. Okkur þykir raunar leiðinlegt hvað
það er lítil dansstemming á íslenkum
tónleikum, þegar við höfum komið
fram hefur í mesta lagi einhver fullur
sjóari tekið nokkur spor. íslendingar
ættu að hætta vera svona feimnir og
læra að sleppa sér aðeins á tónleikum,
dansa, syngja, klappa með og svona.
Það er ekkert sem segir að maður þurfi
„Okkur þykir raunar leiðinlegt hvað það er lítil
dansstemming á íslenkum tónleikum, þegar við
höfum komið fram hefur í mesta lagi einhver
fullur sjóari tekið nokkur spor."
„Já, blessaður. Það á sennilega bara eftir
að verða Elli sem talar hvort eð er. Já og
takk fyrir bjórinn. Eigum við að gera
þessa kynningu núna? Ég er semsagt
Bjarni Hall (eða Baddi), söngvari, og
þetta er Elli, sem spilar á bassa (hann
er líka á gítar í Ghostigital [það er
semsagt gaurinn með toppinnj). Þeir
sem eru í þykjustunni ekki hérna eru
Tobbi (hann leikur á synta og píanó)
og Ásgeir (á gítar). Svo er það hann
Þormóður á trommurnar [sá er líka í
hinni mikilfenglegu Skakkamanage], en
hann er hvorki hérna í þykjustunni né
raunveruleikanum."
-Næs. Góðir og myndarlegir
menn allir saman. Ryðjum þessu
venjulega hljómsveitaviðtalastöffi
úr veginum, hvernig rokk rokkiði,
undir áhrifum frá hverjum, hvað
er hljómsveitin gömul, af hverju
heitir hún Jeff Who?, etc. Fólk hefur
mikinn áhuga á því að lesa svoleiðis.
Allt mjög mikilvægt.
„Já. Ætli við spilum ekki einhverskonar
diskórokk. Stuðtónlist. Það sem lætur
hausinn á okkur bobba og fæturna
hreyfa sig. Lagasmíðarnar fara flestar
fram á æfingum, við tökum kannski
smá bjór með okkur í húsnæðið, spilum
rokk og erum þá um leið að gíra okkur
upp fyrir kvöldið. Koma okkur í stuð
og gott skap. Það er eiginlega andinn
sem við erum að leita að; partý og
skemmtilegheit. Ef þessi tónlist dugir til
að koma okkur í gott skap fyrir kvöldið,
þá ætti hún að geta haft samskonar
áhrif á aðra. Við vonum það allavega...
...Lögin verða yfirleitt til með þeim hætti
að Baddi dansar aðeins fyrir okkur og
að standa íhugull á svip úti í sal þegar
rokkhljómsveit spilar lögin sín. Það er
fáránlegt...
...Við byrjuðum að spila saman fyrir
um ári síðan, bara upp á vinskap og
partýgaman. Hljómsveitin hefur verið til
í svona hálft ár í þeirri mynd sem hún er
núna, fyrsta opinbera framkoman okkar
var á Ellefunni á lceland Airwaves. Við
höfum alltaf lagt upp með þetta, hafa
bara gaman, skemmta sjálfum okkur og
vonandi þeim sem koma til að hlusta
á okkur. Það er engin hugmyndafræði
umfram hana, við látum pólitíkusum
algjörlega eftir að vasast í pólitík...
...Áhrifavaldar okkar og átrúnaðargoð
eru af ýmsu tagi, en óhætt er að segja
að ELO, með hinn mikilfenglega Jeff
Lynne í fararbroddi, spili þar stóra
rullu hjá okkur flestum. Jeff Lynne er
algjör snillingur, maður, hann skipar
sér hæglega í flokk með stórmeisturum
eins og John Lennon og fleirum. ELO er
sárlega vanmetin hljómsveit. Talandi um
John Lennon, þá eru Bítlarnir líka alltaf
klassík."
-En nafnið? Þetta er flott nafn,
hvernig datt ykkur það í hug?
Og eru hljómsveitarmeðlimir á
lausu? Nú eruð þið allir áberandi
myndarlegir...
„Já, nafnið. Jeff Who? er sko ákveðið
tribjút við uppáhalds... Heyrðu. Eigum
við ekki bara að segja honum hvernig
þetta var í alvörunni?
OK, semsagt, við lentum í þessari
hefðbundnu hljómsveitarnafnakrísu og
vorum lengi vel nafnlausir. Svo vorum við
Mynd: Gúndi
„ ... auðheyrt að væntanleg tíulaga breiðskífa
Jeff Who? ... á eftir að vera mikill fengur fyrir
partý-og tónlistarþyrsta íslendinga. Þegar
hérna er komið við sögu er fulltrúi Orðlauss
gersamlega búinn að tapa sér í töfrandi takti
Jeff Who? (og mögnuðu píanósólói!) og löngu
búinn að gleyma hverju hann var eiginlega að
spyrja að."
einhverntíman að lesa grein í einhverju
gítarblaði sem hafði fyrirsögnina „Jeff
Who?" og okkur fannst það mjög fyndið
af einhverjum ástæðum, sérstaklega þar
sem maður var engu nær um hver þessi
Jeffvareftiraðhafa lesið greinina. Þetta
varð síðan einhvernveginn ofaná þegar
kom að því að velja sveitinni nafn...
...Tveir okkar (Baddi og Ásgeir) eru í
föstum langtímasamböndum, en við
hinir erum allir á lausu og bara nokk
ánægðir með það. Maður er samt alltaf
að leita..."
-Hvað finnst svo Jeff Who? um
femínista og femínisma almennt?
Er til kollektíf hljómsveitarskoðun á
þessum fyrirbærum? [Þessi spurning
kallar á ákveðið ráðstefnuhald
meðal hljómsveitarinnar, þannig að
Orðlaus slekkur á upptökunni um
stundarsakir. Á meðan fær fulltrúi
blaðsins að hlýða á afrakstur
ný-afstaðinna upptökusessjona
hijómsveitarinnar í Sundlaugarveri
þeirra Sigur Rósarmanna [„...hann
Biggi Sundlaugarvörður hefur
verið að taka okkur upp og komið
sérstaklega vel fram við okkur. Við
skuldum honum miklar þakkir."].
Hljómar sérstaklega vel og auðheyrt
að væntanleg tíulaga breiðskífa
Jeff Who? (sem hefur skv. þeim ekki
enn hlotið útgefanda, þrátt fyrir að
ýmsar viðræður séu í gangi) á eftir
að vera mikill fengur fyrir partý-og
tónlistarþyrsta íslendinga. Þegar
hérna er komið við sögu er fulltrúi
Orðlauss gersamlega búinn að tapa
sér í töfrandi takti Jeff Who? (og
mögnuðu píanósólói!) og löngu
búinn að gleyma hverju hann var
eiginlega að spyrja að. Þá er bankað
á öxl hans og hedfónarnir rifnir af
með því sama...].
„Hæ. Heyrðu. Þetta var rosaleg spurning
maður. Við erum allir mjög mjög
hlynntir jafnrétti og femínisma, engin
spurning. Þetta er hinsvegar ákveðið
jarðsprengjusvæði að fara inná og þó
svo við höfum mikla samúð með málstað
þeirra, þá getum viðekki tekið undir allar
birtingarmyndir kvennabaráttunnar.
Eins og þessar aðgerðir með að líma
miða á öll bOGb blöðin þarna um
daginn, ég meina, stelpurnar sem sitja
fyrir í þeim eru örugglega stoltar af sínu
og skammast sín ekkert fyrir það. Það er
verið að gera dálítið lítið úr þeim með
þessum hætti, eins og það vanti meira
umburðarlyndi í suma femínista. En það
er svosum útúrdúr, málið er að sá sem er
ekki hlynntur jafnrétti allra manneskja,
þar með talið kynjanna, er greinilega
bara fáviti sem hefur ekki hugsað hlutina
til enda..."
Og þó þetta verði að vera lokaorð þessa
prentaða spjalls við Jeff Who? eru það
sannarlega ekki þau síðustu sem fóru
okkar á milli, enda um margt að ræða
þegar svona ráðvandir og hressir ungir
menn hittast yfir ölkollu á fallegum
fimmtudagseftirmiðdegi. Og margt að
segja um kvennabaráttu, ballhljómsveitir
(„...Þær eru fínar, en hvað er það sem
segir að venjulegar rokkhljómsveitir geti
ekki spilað á balli?..."), ríkisstjórnina og
Almennt Ástand Mála. Þau orð verða
hinsvegar hvergi birt nema í hinni stóru
bók Guðs, sem hann notar til þess að
halda tölu yfir alla mannanna gjörðir og
mun á endanum dæma þá með.
-hauxotron@hotmail.com