Orðlaus - 01.04.2005, Blaðsíða 24

Orðlaus - 01.04.2005, Blaðsíða 24
h ISLENDINGUR - , ARÐRÆNDUR, DAINN OG GRAFINN Mér duttu allar dauðar lýs úr höfði þegar ég hlustaði á útvarpsfréttir fyrir skömmu. Bandarískt fyrirtæki hefur keypt einkarétt á öllu drykkjarvatni í Perú. Það blóðmjólkar þjóðina með þvingunum og okri þannig að vart er hægt að halda annað en að andskotinn sjálfur sé höfundur þessa ómannúðlega harmleiks. Þjóðin fagnar aldrei svo Ijósi dags að hún þurfi ekki að sjá af bróðurparti ráðstöfunarfjár síns til velmegunarfeitra forstjóra þessa bandaríska risafyrirtækis, sem meira að segja telur sig hafa keypt einkarétt á regnvatninu, því almenningi er óheimilt að safna vatni sem fellur af himnum. Hverjum öðrum en andstyggilegustu durtum sögunnar hefði dottið í hug að svipta fólki réttinum til að opna munn mót himni til að svala þorsta sínum. Hversu ótrúlegt sem það kann að virðast þá er hægt að kaupa rigningu! -og markaðshyggjupostularnir hrópa: „Loksins loksins, allt er falt!" - Þetta er það sem Nietzsche átti við með orðunum „Guð er dauður", virðingin fyrir almættinu er fallin í skugga einstaklings- og fjármagnsdýrkunar, ekkert er manninum lengur heilagt. ÍSLENDINGNUM EÐLISLÆGT íslendingar hafa þekkt kæfandi faðmlag arðránsins alla sína aumu tíð. Svo virðist sem arðrán sé svo mergsmogið í þjóðarv i tundina að íslendingnum sé orðið eðlislægt að vera arðrændir. Auðmýkingin hefur fylgt honum sem hundspott í gegnum söguna, frá því að höfðingjar kúguðu HVAÐ HEFURIRAUNINNIBREYST FRÁ ÞVÍ MENN REISTU SÉR HALLIR OG KEYRÐU UM í GULLVÖGNUM FRAMHJÁ BLÁSNAUÐRIALÞÝÐUNNI? verið náð þrátt fyrir örlítið bakslag",-hugsaþeirísigurvímu en (slendingurinn heldur áfram að dæla bensíni. SAGAN ENDURTEKUR SIG Hvað hefur í rauninni breyst frá því menn reistu sér hallir og keyrðu um í gullvögnum framhjá blásnauðri alþýðunni? vinntil að borga þértil æviloka." Síðan hækkar verð á íbúðum, þá þarftu að taka hærri lán og bankinn mokgræðir, sendir svo fulltrúa sína í fjölmiðla þar sem þeir lýsa því yfir að ástandið á húsnæðismarkaði sé fullkomlega yndislegt og að engu skuli kvíða. Þessu trúir fólk og heldur áfram að togast á um hverja einustu fasteign líkt og hrafnar um sjálfdauðan hrút. búalið sitt, frá því að danskir einokunarkaupmenn seldu úldin og ormétin matvæli, allt þar til skítugar lúkur erlendra olíurisa voru í vösum hvers einasta íslendings. Hvernig eigum við nokkurn tíma að geta treyst olíuforstjórunum aftur? Fyrirtækin voru dæmd til að greiða sekt (sem reyndar er aðeins brot af þýfinu) en glæpamennirnir labba á brott með sigurbros á vör og ekki vottar fyrir eftirsjá, „markaðshlutdeild hefur styrkst, hagnaður snarhækkað, grundvallarmarkmiðinu hefur Eðalvagnar eru ennþá til. Tug milljóna króna glæsibifreiðar hafa leyst af hólmi gullslegna hestvagna, í stað kastala eða óðalssetra eru einbýlishús sem kosta hundruð milljónir. Þetta eru upphæðir sem meðal íslendingur skilur ekki. Hann skilur bara svipuhöggin frá böðlinum. Bankinnlæturhöggin dynja á breiðu baki alþýðunnar. Hann ginnir til sín glórulausa fjölskyldumenn og býður þeim gull og græna skóga svo lengi sem þeir heita honum ævilangri þjónustu sinni. ,,Já takk, eitt stykki 100% húsnæðislán og ég HVAÐA FÍFL SEM ER Ef augað er spegill sálarinnar má lesa ýmislegt vafasamt í glyrnum bankastjóranna. Verstir virðast þeir þó vera sem braska með lífeyri alþýðunnar. Einn ævintýramaðurinn var rekinn úr stöðu forstjóra lífeyrissjóðs og er leystur út með 45 milljón króna eftirlaunasamningi. Eftir nokkurra mánaða gagnslausa starfssetu er maðurinn verðlaunaður með lífsbjörg launafólksins, margfalda þá upphæð sem margir geta gert sér vonir að vinna sér inn um alla ævina. Á meðan þetta viðgengst getur varla verið talað um íslenskt efnahagslíf án þess að minnast á arðrán i sömu setningu. Á íslandi getur hvaða fífl sem er orðið ráðherra, forstjóri, sjónvarpsmaður eða borgarstjóri. Þar er smæðinni fyrir að kenna. Það væri óskhyggja að vonast til þess að færir einstaklingar finnist sem hafi vilja og getu til að sinna hverju einasta starfi. í stað þess þurfum við að sætta okkur við skástu einstaklingana, það er áreiðanlega til hæfari einstaklingur til að gegna stöðu landbúnaðarráðherra en Guðni Ágústsson -maðurinn virðist ekki skilja sjálfan sig, það hefði örugglega verið hægt að finna borgarstjóra sem ekki var viðriðinn eitt stærsta hneykslismál seinni tíma - en Þórólfur Árnason varð fyrir valinu. Hvaða íslendingur sem er gæti gengið upp að valdamesta manni þjóðarinnar og sagt við hann: „Þér eruð smáborgari herra minn" - dapurlegt, en satt þegar vel er að gáð. DEPURÐ ALÞÝÐU- MENNIN GARINNAR Vilji íslendingsins til að láta arðræna sig endurspeglast líklegahvaðbestíSpaugstofunni, þætti sem hefur sett heimsmet í árafjölda og er orðinn svo úldinn að lyktin nánast fylgir með í útsendingunni. Fimm eða sex meintir grínistar, sem eru einfaldlega hættir að reyna, koma fram í viku hverri án þess að nokkrum heilvita manni stökkvi bros á vör. Brandararnir hafa engan lokahnykk svo ómögulegt er annað en að brosa dapurlega og af vorkunn við þessum fulltrúum íslenskrar lágmenningar. íslendingurinn lætur bjóða sér hvað sem er, dag eftir dag, ár eftir ár, einvörðungu vegna þess að hann er vanur viðbjóðnum. Að borða þorramat er hliðstætt dæmi. Hið súra bragð þorramatarins er undirtónn raunagöngu íslensku þjóðarinnar, alþýðan lap dauðann úr skel og þess minnumst við með því að endurupplifa þann ófögnuð sem fólk lagði sér til munns - álíka fáránlegt væri ef gyðingar minntust helfararinnar á ári hverju með því að anda að sér baneitruðu gasi. Hættum að láta ræna okkur, hættum að láta bankaforstjóra, bensínrisa, kvótakónga og stjórnmálamenn hafa okkur að fíflum. Væri undirgefni meðfæddur eiginleiki íslendingsins væri honum fátt skynsamlegra en að farga sér. Förgum heldur ódæðismönnunum, segjum nei við arðráni. Magnús Björn DAÐI REYNIR KRISTLEIFSSON Lifestream Spirulina gefur mér mjög mikla orku en ég finn ótrúlega mikinn mun þegar ég tek það inn. Þó svo að ég borði mjög hollt fæði er það Spirulina sem gerir mér kleyft að hafa orku í allt sem ég þarf að gera en ég er í skóla, vinnu, líkamsrækt og æfi fótbolta. Ég tek alltaf inn Spirulina fyrir æfingar og finn að ég hef miklu meira úthald og er hressari á morgnana. Áður en ég fer í próf, tek ég inn Spirulina en stundum hef ég þurft að fara í tvö próf sama daginn og ég finn greinilegan mun að hugsunin er skýrari, ég man mikið betur, geri færri klaufavillur og gengur betur í prófunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.