Orðlaus - 01.04.2005, Blaðsíða 35
Súffragetturnar náðu að knýja fram
kosningarétt kvenna í Bretlandi eftir
stríðið og Bandaríkin fylgdu fast á eftir.
Á meðan almenningur var að jafna sig
eftir hörmungarnar fór hann að efast um
ágaeti þeirrar kynslóðar sem hafði ráðið
ríkjum í stríðinu og tískufrömuðirnir
hugsuðu með sér að núna þyrfti að
gera ákveðnar breytingar. Menn sáu
að lífið var stutt og því þyrfti að njóta
þess. Litríkir og blómstrandi tímar voru
framundan, (að minnsta kosti í nokkur
ár).
Á þessum tíma fóru menn að líta framhjá
formlegu reglunum sem höðu ríkt í lengri
tíma og konurnar fóru að sýna þetta
aukna frelsi sitt í hversdagsklæðnaði.
Lífsstykkin fuku fyrir brjóstahöldurum.
Pils og kjólar fóru að styttast og náðu
núna niður á kálfa í staðinn fyrir að
vera í ökklasídd. Konur, (auk þess að
ganga í buxum), fóru að klippa hárið
stutt, sem áður þótti alveg óhugsandi,
enda var það óneitanlega þægilegra í
vinnunni. Hattarnir urðu barmaminni
og náðu niður fyrir eyru, hálsmálin
þurftu núna ekki lengur að ná upp í háls
og sexý háhælaðir skór tröllriðu öllu,
því að þar sem pilsin voru orðin styttri
skipti skófatnaðurinn óneitanlega meira
máli. Tventíslúkkið kallaði þó á grannt
útlit, því að lífsstykkin héldu núna ekki
svona fast að eins og áður og konur
fóru því að fara í megrun. Meiköpp varð
hversdagslegra og konur urðu ófeimnar
við það að draga upp varalitinn á
veitingahúsinu og smyrja varirnar með
æsandi litum. Föt kalmannanna urðu
um leið meira sportí og þægileg.
Einn fremsti hönnuður þessa tíma er
án efa Coco Chanel og hönnun hennar
hefur verið talin ímynd tventís lúkksins.
Hlutlausir litir og einföld snið, hnésíð
pils, berir handleggir og boxý jakkar
urðu einkennandi, algjörlega í kontrast
við það sem áður hafði verið. Stutta
hárið var bylgjað, sólbrúnka var flott
og skartgripir, sem þurftu ekki að vera
ekta, voru notaðir tii að skreyta bert
holdið. Litli svarti kjóllinn, sem er eitt af
einkennismerkjum Chanel, kom fram á
svipuðum tíma. Samkvæmt henni áttu
fötin fyrst og fremst að vera þægileg.
Þegar kreppan mikla skall á árið 1929 átti
skellurinn eftir að ná til tískubransans
eins og til annarra þátta atvinnulífsins.
Fólk taldi sér trú um að verið væri að
refsa þeim fyrir kasjúal lúkkið, stuttu
pilsin og drengjalegu klippingarnar.
Pilsasíddinféll niðurafturog bringan var
ekki lengur til sýnis. Atvinnuleysi þýddi
minni kaupmátt og tískubransinn þurfti
að finna aðrar leiðir, enda friðartímarnir
brátt á enda.
-f næsta blaði: aðdragandi
allsherjarstríðs og ár seinni
heimsstyrjaldarinnar.
Suðurlandsbraut 6
Hlíðasmára 12
Stórhöfða 17
Kringl !
Vinsælasti kínverski rétturinn
á veitingahúsum
um allan heim
Críspy
Aromatic
önd
Hálf önd með 18 pönnukökum, vorlauk,
agúrku, sósu og steiktum hrísgrjónum,
frábær aðalréttur fyrir 2 einnig
spennandi forréttur fyrir 4-6
Fáfð öndina senda
heim eða borðið
á staðnum!
kr. 1745 kr.3490
| Crispy Aromatic önd er eingöngu afgreidd fyrir 2 eða fleiri |