Orðlaus - 01.04.2005, Qupperneq 50
ÞAÐ ER VARLA AÐ ÞÚ GETIR FARIÐ TIL AMSTERDAM
OG EKKI FUNDIÐ EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI. BORGIN
ER EINKAR FJÖLBREYTT OG ÞAR FINNURÐU ALLT
FRÁ ÓMENNINGU EINS OG RAUÐAHVERFINU TIL
HÁMENNINGU VAN GOGH. LITSKRÚÐUGT MANNLÍFIÐ
SETUR SVIP SINN Á BORGINA OG HÚN IÐAR AF
LÍFI ALLAN ÁRSINS HRING. ICELANDAIR ERU MEÐ
BEINT FLUG TIL AMSTERDAM Á FRÁBÆRU VERÐI
OG ÞVÍ TILVALIÐ AÐ FARA ÞANGAÐ í SUMAR OG
SKELLA SÉR Á TÓNLEIKA, FARA Á ÁHUGAVERÐ
SÖFN OG VERSLA Á ÓDÝRUM MÖRKUÐUM.
HELSTU STAÐIR
Dam Square
5 mínútna labb frá Central stöðinni
og er miðpunktur borgarinnar. Stutt
labb í búðir sem umkringja Dam. Við
mælum með götunni Rokin til að versla
en fyrir þá sem vilja skera sig úr og
komast í gramsbúðir mælum við með
Kalverstraat.
Leidseplein
Þarfinnurðu helsta næturlíf borgarinnar
með hundruðum veitingastaða,
vinsælumklúbbumogkvikmyndahúsum.
Þar er líka allt fullt af götulistamönnum
sem setja svip sinn á planið.
Rembrandtplein: Fallegur garður
umkringdurkaffihúsum.veitingastöðum
og túlípönum.
Museumplein
Þar er að finna Albert Hein Markaðinn,
Van Gogh safnið, Stedelijk Museum og
stóran garð.
GARÐAR
Vondelpark
Á sumrin fara allir í Vondelpark sem
er risastór garður og troðfullur af
fólki. Þar er mikil stemning og þú mátt
eiga von á því að sjá fólk að grilla,
giftingar, götulistamenn og margtfleira
skemmtilegt. Fólk fer þangað til að
slappa af, hafa það notalegt og skoða
mannlífið.
DÝRAGARÐUR
Við mælum sérstaklega með
dýragarðinum sem er staðsettur inni
í miðborginni en það tekur aðeins 5
mínútur að taka strætó í hann f rá Central
lestarstöðinni. í honum eru yfir 8000 dýr
ásamt nýlega endurbyggðu sædýrasafni,
tveimur söfnum og geimvísindasafni.
MARKAÐIR
Albert Cuyp
Þetta er einn stærsti götumarkaður
í Evrópu. Hann er mjög svipaður
Kolaportinu og þar finnurðu allskyns
vörur, húsgögn, plöntur, mat og föt.
Það er auðvitað hægt að finna mikið af
fallegum vörum á Albert Cuyp en fyrir þá
sem eru að leita sér að fatnaði mælum
við frekar með Waterloo markaðinum.
Albert Cuyp er opinn mán - lau frá kl.
9-17.
Waterloo
Þessi markaður er minni en hentar
safnaranum betur. Hann er með mikið af
notuðu dóti svo sem föt, plötur, græjur,
spreybrúsa, skart, skó og bara allt milli
himins og jarðar. Þar finnur þú mikið af
second hand vörum og það er um að
gera að taka sér góðan tíma í að leita í
gegnum básana. Á horninu á Waterloo
markaðnum er einnig að finna risastóra
búð sem svipar til Spúútnik hér heima.
Waterloo er opinn mán - lau frá kl. 9-
17.
TÓNLEIKAR
Það er fullt af tónleikum í Hollandi allan
ársins hring. Vertu þér úti um góðan
tónleikabækling þegar þú ert komin
eða fylgstu með á netinu áður en þú
ferð. Hér fyrir neðan eru nokkrir af þeim
tónleikum sem verða í sumar.
Mos Def - 22. apríl
The Shadows - 10., 11. og 12. maí
The Black Eyed Peas - 18. maí
Destiny's Child - 22. og 23. maí
Moby - 22. maí
Duran Duran - 30. og 31. maí
Marilyn Manson - 2. júní
Joe Cocker - 9. og 10. júní
Audioslave -15. júní
BB King - 27. júní
James Brown - 29. júní
Vefsíða vinsælasta tónleikastaðarins í
Amsterdam:
www.heineken-music-hall.nl
Vefsíða stórs tónleikastaðar í Rotterdam
(l.klst frá Amsterdam): www.ahoy.nl
Vefsíða til að kaupa miða á flest alla
viðburði: www.ticketmaster.nl
SKEMMTUN
Það er alltaf djamm í Amsterdam. Þú
labbar kannski framhjá ítölskum bar
klukkan 3 um dag og þar er fullt af fólki
í rífandi stemmningu að dansa hópdans.
Barirnir eru einnig hálf fullir alla daga
og þá er bara að labba um og finna
einhvern stað sem þér líkar vel við. Þú
finnur staðina alveg frá Centralinu upp
að Museumplein, en mesta fjörið er á
Leidseplein.
SÖFN
The Heineken Experience - Safn fyrir
þá sem vilja vita meira um listina að
brugga. Þú færð einnig þrjá Heineken
og óvæntan glaðning í lokin.
Nemo Sicence and technology museum -
Eitt skemmtilegasta safnið í Amsterdam
þar sem þú færð að taka mikinn þátt í
sýningunum.
Sex Museum - Elsta kynlífssafn í
heiminum. Inniheldurmyndir, teikningar
og fylgihluti eins og tóbaksbox innréttuð
með myndum.
Madame Tussauds Museum -
Vaxmyndasafn staðsett á Dam torgi.
Van Gogh Museum - Eitt þekktasta
safnið í borginni og algjört "möst" fyrir
listafólk sem á leið sína um Amsterdam.
Anne Frank - Fræga húsið þar sem
Anna Frank var í felum og skrifaði
dagbækurnar sínar.
Hash Museum-Saga og notkuncannabis
efna í heiminum er rakin á þessu safni.
Erotic Museum - Hefur að geyma fimm
hæða hús af erótískum verkum frá öllum
tímum og hvaðan að úr heiminum.
Þetta er þó aðeins smá brot af öllum
þeim söfnum sem eru í borginni en það
er alveg öruggt að það geta allir fundið
eitthvað við sitt hæfi. Náðu þér í "Day
by Day" bæklinginn sem er að finna á
öllum ferðamannastöðum og þar munt
þú finna þitt rétta safn.
ALLIR SEM FARA
TIL AMSTERDAM
VERÐA AÐ ...
Fá sér franskar með majónesi,
hnetusmjörssósu og lauk. Já, ég veit
þetta virkar ekki girnilegt en þetta
borða allir Hollendingar og mikið af
því. En við getum staðfest að þetta er
gottl!
Kíkja á stemninguna á einu af þeim
hundruðum "Kaffihúsa" sem eru út um
alla borg. Við mælum með Dampkring
en það kaffihús er orðið frægt eftir að
Ocean'sTwelve tókuppatriði í myndinni
þar.
Leigja sér hjól og rúnta um borgina eða
fara í síkjabát. Hvort sem þú ákveður að
taka hjól eða bát verður þú ekki svikin.
Kíkja á að minnsta kosti eitt safn. Þó svo
að þú hafir ekki áhuga á myndlist getur
þú skellt þér á öðruvísi safn eins og til
dæmis pyntinga-, kynlífs- eða
töskusafn.