Orðlaus - 01.04.2005, Qupperneq 54
Hrúturinn er mjög ákveðinn núna og lætur engan komast upp með frekju
við sig. Þú ert búin/n að gera mikil plön fyrir sumarið og þú ættir að gera
allt sem þú getur til að standa við þau, þá eiga næstu vikur eftir að vera
fullar af ævintýrum og óvæntri rómantík. Þú mátt samt ekki gera of miklar
væntingar til vina þinna því það eru ekki allir í sömu hugleiðingum og þú.
Sumir vilja bara slappa af næstu vikurnar og þú verður að virða það. Gerðu
hlutina þá bara sjálf/ur, þú hefur gott af því að prófa að standa á eigin
fótum.
If^Naut ‘ft'^Tvíburar 6^ Krabbi
21. apríl - 21. maí 22. maí - 21. júnf 22. júní - 23. júlí
Nautið er búið að vera mjög einangrað upp á síðkastið
og núna er kominn tími til að þú fáir smá útrás. Næstu
vikurnar gætu einkennst af mikilli rómantík og líklegt
er að þú kynnist áhugaverðum aðila. Úr því gæti orðið
eitthvað meira en vinátta því þú tekur smá áhættu
og hættir að vera stöðugt á varðbergi. Þú þarft að
fókusa vel á verkefnin sem eru framundan í vinnunni
og skipuleggja þig vel. Kláraðu þau verkefni sem þú
ert búin að láta sitja á hakanum allt of lengi og byrjaðu
sumarið á núllpunkti. Ekkert stress, bara skemmtun.
Tvíburinn er búinn að lenda í miklum leiðindum síðustu
vikurnar og margir hafa sært hann illa. Núna verður
þú þó að reyna að fyrirgefa, þér á eftir að líða betur á
eftir. Þú ert búin/n að fá mikla athygli frá hinu kyninu
en hefur verið of upptekin af eigin vandamálum til
að taka eftir henni. Hættu þessari sjálfsvorkunn og
kannaðu alla möguleikana áður en það verður um
seinan. Planaðu partý, bjóddu fólki heim og sýndu
hvað þú getur verið skemmtilegur félagsskapur.
Hugur þinn er búinn að vera í órafjarlægð frá heimilinu
þínu síðustu vikur og þú hefur gaman af að láta þig
dreyma um framtíðina. Krabbinn er búinn að halda
sig mikið út af fyrir sig og hefur um leið misst mikið
samband við fjölskyldu og vini. Núna þarftu að fara
út að skemmta þér, setja draumana á smá pásu og fá
útrás. Ef þú blandar geði við annað fólk og segir frá
hugmyndum þínum er líklegra að draumar þínir verði
að veruleika. Miklar breytingar á lífi Krabbans munu
eiga sér stað í byrjun maí og þú átt eftir að vera hikandi
í fyrstu, en eftir smá tíma áttu ekki eftir að vilja líta til
baka.
2^Ljón (fc^Meyja &^Vog ^HEsporðdreki
24. júlí - 23. ágúst 24. ágúst - 23. september 24. september - 23. október 24. október - 22. nóvember
Þú ert búin/n að reynast vinum þínum
alveg ótrúlega vel upp á síðkastið og
núna er tími til að fá greiðana til baka.
Furðulegir tímar eru framundan og
mikið af nýju og athyglisverðu fólki á
eftir að vera partur af daglega lífinu og
þú ættir að nýta þér það til að ná lengra
í vinnunni. Þú ert mikil félagsvera og
þarft að hafa nóg að gera og þér á svo
sannarlega ekki eftir að leiðast í apríl.
Maí á eftiraðvera rólegri en einstaklega
rómantískur. Líklegt er að kunningi þinn
fari að skipta þig meira máli og að úr
verði meira en góð vinátta en þú verður
að fylgja innsæinu og vera alveg viss um
hvað þú ert að gera. Þetta samband gæti
nefnilega endað í hrikalegum leiðindum
fyrir báða aðila.
Þú ert búin/n að standa þig vel í vinnunni
og munt bráðum fá viðurkenningu fyrir
allterfiðið, líklega íformi launahækkunar
þó að þú þurfir eflaust að biðja um
hana. Vinnan á hug þinn allan núna
og þú ættir að halda því striki næstu
vikurnar. Eftir að þú ert búin/n að ná
markmiðinu geturðu farið að hugsa um
ástarmálin, en ekki reyna að skora hátt
á báðum stöðum í einu núna. Þú hefur
einfaldlega ekki orkuna í það. Leitaðu
til vinanna ef þig vantar félagsskap en
passaðu þig á að gorta þig ekki af eigin
frammistöðu því að það er mjög auðvelt
að falla í skuggann af þér.
Þú hefur sjaldan verið vinsælli hjá hinu
kyninu en einmitt núna. Nýttu þessa
auknu athygli, losaðu um beislið og
skemmtu þér. Vinur úr fortíðinni kemur
óvænt upp á yfirborðið á næstu vikum
og það á eftir að setja þig í erfiða
aðstöðu. Meyjan verður að standa fast á
sínu núna og ekki láta plata sig í að gera
einhverja vitleysu, sama hversu erfitt það
á eftir að verða. Mikil uppsveifla verður í
vinnunni og mikið álag á eftir að hvíla á
meyjunni í byrjun sumarsins. Framundan
eru þó spennandi verkefni og þú ættir
að eyða orkunni í þau fremur en nokkuð
annað.
Steingeitin er ekki mjög ánægð með
lífið og tilveruna núna og er stöðugt
að leita að einhverju sem hún veit samt
ekkert hvað er. Það sem þú þarft er að
prófa nýja hluti, vera opin/n fyrir því
að kynnast nýju fólki og jafnvel bjóða á
stefnumót. Ekki vera feiminn/ og missa
af öllum tækifærunum! Þú getur lært
heilmikið af fólkinu sem er í kringum
þig og færð þá kannski þau svör sem þú
þarft til þess að halda áfram. Þó að þú
trúir því ekki núna þá brosir sumarið við
þér.
Vogin er búin að vera mjög viðkvæm
síðustu daga og hefur ekki verið feimin
við að ausa öllum sínum tilfinningum yfir
á vini og vandamenn. Núna þarftu að
segja skilið við fortíðina og byrja upp á
nýtt. Þá er ekki verið að segja að þú eigir
að gleyma því sem hefur verið að angra
þig, heldur finna leið til að gera gott úr
öllu saman. Nýttu þessa tilfinningasemi
í ástarlífinu. Ef allt fer ekki eftir áætlun
í þeim málunum máttu þó ekki taka það
persónulega heldur halda áfram þínu
striki því þúfellur oftfyrir þeim sem sýna
þér engan áhuga en lítur ekki við þeim
sem gera það. Breyttu hugarfarinu, nýtt
og spennandi ástarsamband gæti verið í
uppsiglingu ef þú þara tekur eftir því.
Vatnsberinn þarf að stíga aðeins frá
rútínunni sem hann er búinn að vera
fastur í og gera öðruvísi hluti. Þú hefur
ekki þorað að taka neinar áhættur í
ástarmálunum í lengri tíma því þú óttast
höfnun eins og heitan eldinn, en hleður
á þig vinnu til að dreifa huganum.
Sumarið er tími ævintýranna og ef
vatnsberinn drattast á lappir og fer að
gera eitthvað í sínum málum mun hann
svo sannarlega upplifa hvað það er að
vera ástfanginn. Þú getur auðveldlega
fengið það sem þú vilt ef þú gengur
bara aðeins á eftir því.
Spennandi ferðalög eru framundan
hjá sporðdrekanum sem á þó eftir að
þurfa að taka erfiðar ákvarðanir hvað
þau varðar. Sérstaklega þegar kemur
að framtíðarplönum. Mikið stress er
búið að einkenna þig upp á síðkastið
og núna þarftu að finna leið til að slaka
á og hlaða batteríin. Þegar kemur að
ástarmálunum þarftu alltaf að vera
einu skrefi á undan hinum aðilanum
og hefur mjög gaman af því að spila
með þann sem þú hefur áhuga á og ert
stöðugt í einhverri keppni. Ef það er
engin spenna missirðu fljótt áhugann.
Núna þarftu samt að gefa honum/henni
tækifæri til að sanna sig fyrir þér. Ekki
afskrifa of fljótt því að sá/sú sem þú ert
að hitta núna gæti staldrað við lengi ef
þú leggur niður vopnin.
Haltu vel utan um peningana næstu
vikurnar því að erfiðir tímar eru
framundan. Það þýðir þó ekki að þú eigir
ekki eftir að skemmta þér svakalega því
að þú átt auðvelt með að gera gott úr
því litla sem þú hefur. Fiskurinn á eftir
að standa frammi fyrir stórri og erfiðri
ákvörðun í byrjun sumarsins og þá er
nauðsynlegt að enginn ýti á þig því
hún gæti breytt lífi þínu til frambúðar.
Gefðu þér síðan tíma til að vera ein/einn
í nokkra daga og melta hlutina í ró og
næði og hlaða upp orku. Sumarið á
nefnilega eftir að vera stanslaust fjör!
A^Bogmaður ^fi^Steingeit &áttVatnsberi ^jpFískar
23. nóvember - 21. desember 22. desember - 20. janúar 21. janúar -19. Febrúar 20. febrúar - 20. mars